Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Side 15
virkjunarmálum og beita sér fyrir upp-
byggingu stóriðjuvera sem getur orðið
vaxtarbroddur atvinnuuppbyggingar um
land allt.
Sjálfstæðisflokkurinn telur að ákvarð-
anir um eignaraðild íslendinga að iðju-
verum svo og samstarfssamningar um
önnur atriði eigi að ráðast af eðli hvers
máls fyrir sig og aðstæðum á hverjum
tíma. Af hans hálfu koma því til greina
margvíslegir kostir að þessu leyti.
Nýting vatnsorkunnar og uppbygging
stóriðju er tvímælalaust eitthvert stærsta
verkefni sem þjóðin hefur tekist á
hendur og það mun væntanlega standa
yfir í a. m. k. hálfa öld. Koma verður stór-
iðjumálunum í öruggan farveg til fram-
búðar á vegum þingkjörinnar nefndar,
sem hefur þetta verkefni með höndum.
Nefndin þarf m.a. að kynna málið ræki-
lega innanlands og utan, safna upplýs-
ingum um framleiðslugreinar, tækni,
markaði og einstök fyrirtæki, athuga
staðsetningu, móta heildarstefnu, sam-
ræma undirbúning virkjana, gefa stjórn-
völdum ráð og síðast en ekki síst að hafa
frumkvæði um samninga við erlend fyrir-
tæki, virkjunaraðila og aðra innlenda
aðila sem við sögu koma.
Kanna þarf til hlítar hvort vinnanleg
olía sé á yfirráðasvæði íslands.
Efling undirstöðuatvinnu-
veganna:
Landbúnaður - aukin
framleiðni og nýjar búgreinar
Það er skoðun Iandsfundar Sjálf-
stæðisflokksins að landbúnaðurinn sé
enn sem fyrr einn af undirstöðuatvinnu-
Vegum þjóðarinnar. Hann á rætur í ís-
lensku þjóðlífi og er tengdur Iandinu og
Þjóðinni órofa böndum.
Tilhneigingar hefur gætt á undanförn-
um árum til að vanmeta þýðingu land-
búnaðarins fyrir þjóðarbúskapinn og
gera lítið úr framtíðarhorfum hans. Hér
er í senn þörf á raunsæju mati og já-
kvæðari viðhorfum. Landbúnaður er
undirstaða efnahagsstarfsemi í heilum
•andshlutum, og hann sér fyrir drjúgum
nluta þeirra matvæla, sem þjóðin þarfn-
ast- Jafnframt eru landbúnaðarafurðir
notaðar í vaxandi mæli sem hráefni til
'önaðar bæði fyrir innlendan og erlendan
ntarkað. Hitt er ekki síður mikilvægt, að
búgreinar, sem eru í vexti, mæta fjöl-
reyttari þörfum á innlendum markaði.
ýnt hefur verið fram á, að framleiðsla
einnar nýrrar búgreinar, Ioðdýraræktar,
er fyllilega samkeppnisfær á heimsmark-
a i> enda hefur hún hagstæð skilyrði hér
Leiðin til bætlra lifskjara
á Iandi, og tollar og innflutningshöft
erlendis ekki sama hindrun eins og yfir-
leitt er, þegar aðrar landbúnaðarafurðir
eiga í hlut. Á þessar staðreyndir hafa
tímabundnir erfiðleikar því miður
skyggt.
Efla þarf markaðstengsl milli fram-
leiðenda og neytenda sem eðlilega
hvatningu til að framleiða nægilega fjöl-
breytt úrval af hollum matvælum fyrir
neytendur með batnandi lífskjör, innlent
fóður, verðmætari hráefni til iðnaðar og
þær afurðir, sem best geta keppt á
erlendum mörkuðum.
Stjórnvöld hafa nýlega gert ráðstafan-
ir til bráðabirgða í samráði við samtök
bænda, komið á kvótakerfi og lagt á
fóðurbætisskatt, en slíkar ráðstafanir eru
neyðarúrræði og ber að vinna að því, að
þeirra verði ekki þörf.
Sjálfstæðisflokkurinn telur, að miklir
möguleikar séu á áframhaldandi fram-
förum og framleiðniaukningu í hinum
hefðbundnu búgreinum, sauðfjárrækt og
nautgriparækt. Framleiðniaukning í
þessum búgreinum getur hins vegar leitt
til fækkunar mannafla í þeim, ef ekki
opnast erlendir markaðir. Til að fyrir-
byggja frekari fækkun í sveitum landsins
þarf því að efla aðrar greinar landbúnað-
ar, eins og alifugla- og svínarækt, ylrækt,
garðrækt, skógrækt, kjarnfóðurfram-
leiðslu, fiskeldi og loðdýrarækt. Þessar
búgreinar virðast geta átt bjarta framtíð
hér á landi. Þá getur ferðamannaþjón-
usta skapað aukin atvinnutækifæri í
sveitum, svo og þjónusta við veiðiskap
og útivist. Flokkurinn vill leita varan-
legra og jákvæðra lausna á núverandi
vandamálum landbúnaðarins, stuðla að
vaxandi framleiðni, auka verðmæti og
fjölbreytni framleiðslunnar og leggja
sem áður mikla áherslu á landvernd og
landgræðslu. Til að ná þessu marki, þarf
að efla leiðbeiningar, rannsóknastarf-
semi og búfræðimenntun. Bændum verði
þannig búin heilbrigð skilyrði til að njóta
atorku sinnar og þekkingar sem sjálf-
stæðir atvinnurekendur. Þeir taki eigin
ákvarðanir um framleiðslu sína í sam-
ræmi við kostnað aðfanga og raunveru-
lega eftirspurn eftir fjölbreytilegum
afurðum innan lands sem erlendis.
Sjávarútvegur - hámarks-
afrakstur fískstofna og
aukin verðmætasköpun
Sjávarútvegurinn verður um fyrir-
sjáanlega framtíð undirstöðuatvinnu-
vegur þjóðarinnar. Á honum mun öflun
gjaldeyris fyrst og fremst byggjast og
hann er og verður áfram meginundir-
staða þéttbýlis umhverfis landið. Forysta
Sjálfstæðisflokksins við útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar í 200 mílur, ásamt ráð-
stöfunum þeim er gerðar voru af ríkis-
stjóm Geirs Hallgrímssonar til vemdar
og betri nýtingar fiskstofna em forsend-
ur hinnar miklu aukningar afla mikil-
vægra fiskstofna. Þetta er undirstaða
þeirrar uppbyggingar fiskveiða og stór-
aukinnar framleiðslu sjávarafurða, sem
verið hefur undanfarin ár.
Sjálfstæðisflokkurinn telur nauðsyn-
legt að sjávarútvegi verði búin skilyrði til
að vaxa og eflast á næstu árum til jafns
við aðrar atvinnugreinar og leggur
áherslu á eftirfarandi atriði:
Unnið verði markvisst að því að
tryggja varanlegan hámarksafrakstur
hinna ýmsu fiskstofna og annarra sjávar-
dýra með samræmdum líffræðilegum og
efnahagslegum aðgerðum þannig að sem
mest samræmi verði á hverjum tíma milli
afraksturgetu stofnanna og afkastagetu
fiskiskipastólsins. Stjómvöld vinni að
þessu markmiði í náinni samvinnu við
samtök sjómanna og útvegsmanna og
taki bæði tillit til hagkvæmni veiða og
vinnslu og atvinnusjónarmiða á þeim
stöðum, sem byggja afkomu sína á
sjávarútvegi.
Gengið verði til samninga við ná-
grannaþjóðirnar um að endurreisa og
tryggja hámarksafrakstur af þeim fisk-
stofnum, sem gengið hafa milli auðlinda-
lögsögu þessara þjóða svo og um skipt-
ingu heildarafla og samvinnu um fisk-
veiðieftirlit.
Stuðlað verði að aukinni verðmæta-
sköpun og bættri nýtingu alls sjávar-
fangs, svo og að fiskeldi og með þeim
hætti fjölgað atvinnutækifærum í sjávar-
útvegi.
Eitt mikilvægasta skilyrði þess að
sjávarútvegurinn geti starfað með við-
hlítandi árangri er að gengi krónunnar sé
skráð þannig að fyrirtæki í sjávarútvegi
geti í meðalárferði greitt laun til jafns við
aðrar atvinnugreinar og skilað hagnaði
til uppbyggingar.
Sjálfstæðisflokkurinn varar eindregið
við millifærslukerfi, þar sem það leiðir til
mismununar milli atvinnuvega, fyrir-
tækja og einstakra byggðarlaga.
Hlutverk Verðjöfnunarsjóðs er að
jafna markaðssveiflur. Þess vegna skal
þess ætíð gætt, að misnota ekki sjóðinn
með millifærslum milli deilda hans, eins
ognú er gert.
Sjálfvirkni verðbólgunnar undangeng-
in ár hefur leitt til misnotkunar verð-
jöfnunarsjóðs. Þetta ber að forðast.
Víxlverkanir kaupgjalds og verðlags
koma harðast niður á útflutnings-