Almanak skólabarna - 01.01.1934, Blaðsíða 15
9
Hinn 21. mars eru vorjafndægur.
Þá er dagur og nótt jafn löng. Þá snýr jörö
þannig viö sólu, aö sólargeislarnir falla iGðrétt á
* kolla þeirra manna, er búa við miðjarðarlinu, og
nýtur þá bæði suður og norðurhvel jarðar, jafn
vel sólarinnar.
Hinn 22. júni eru sumarsólstööur.
Um sumarsólstöður snýr jörðin þannig viö sólu,
að geislar sólar falla lóðrétt á kolla þeirra er
búa við nyrðri hvarfbaug.
Þá cr lengstur dagur á norðurhveli jaröar. cn
styzt nótt.
— Sumar og sól á íslandi.
Hinn 23. september er haustjafndægur.
Það er þegar jörð snýr þannig við sólu, að
geislar hennar falla lóðrétt á kolla þeirra manna
’ er búa við miðjarðarlinu.
Þá stendur bæði norður og suöurbúinn jafnvel
að vígi, svo sem um vorjafndægur, eigi þeir báöir
heima nákvæmlega jafn langt frá miðjarðarlínu,
annar í suðri en hinn í norðri.