Almanak skólabarna - 01.01.1934, Blaðsíða 23
17
Hraustur og reglusamur unglingur
iðkar frjálsar íþróttir.
íþróttimar fegra likamsvöxtinn, gera líkaman
sterkbyggöari, gefa hverju einu líffæri hæfilega
áreynslu, gerir þau þess vegna hæfari hvert fyrir
sig til að vinna starf sitt.
íþróttaiðkanir, vernda margan manninn frá því
að verja tómstundum sinum sér og öörum til
leiðinda.
Sá, sem iðkar iþróttir verður því að öðru jöfnu
'raustari, jjolnari, afkastameiri verkmaður, og
reglusamari en hinn, sem nennir því aldrei.
Er þú verð tómstundum til iþróttaiðkana, safn-
arðu þeim í sjóð, er þú getur nefnt heilsubrunn,
af honum drekkurðu svo smám saman siðar meir.
Mmmmmn Útbreiðið tlnga ísland. ■m
— Það flytur fjölda greina um heilsuvernd. —
Eigandi Unga íslands er Kauði kross íslands.
2
A