Kaupsýslutíðindi


Kaupsýslutíðindi - 08.10.1940, Blaðsíða 2

Kaupsýslutíðindi - 08.10.1940, Blaðsíða 2
Gjaldeyris- og bankamál Aðstaða bankanna gagnvart útlöndum var 19,5 milj. kr. hagstæSari í lok ágúst- mánaSar s.l. en um sama leyti í fyrra. Inneignir bankanna erlendis 1. sept s.l. námu 3.4 milj. kr. en skuld þeirra í fyrra á sama tíma nam 16.1 milj. kr. í ágúst- mánuði einum batnaði hagur bankanna út á við um 2.7 milj. kr. — Br hjer átt við mismun á inneignum og skuldum við erlenda banka í víxlum, sem greiðast eiga erlendis eða seldir eru erlendis. Hinsvegar hafa ekki verið teknar með innheimtur fyrir Norðurlönd, sem ekki hafa orðið yfirfærðar vegna stríðsins. Innlög í sparisjóði og hlaupareikninga bankanna námu 103.5 milj. kr. 31. ágúst s.l. á móti 92.2 milj. kr. 31. júlí og 73.1 milj. 31. ágúst í fyrra. Með innstæðufénu mun nú vera talið fé það, sem brezka setuliðið hefir flutt hingað til sinna þarfa. Útlán bankanna námu í ágústlok sam- tals 116.4 milj. kr. og jukust um rúmar 6 milj. kr. í ágúst. Á sama tíma i fyrra námu útlánin 104.2 milj. kr. Seðlar í umferð 31. ágúst s.l. voru 18.1 milj. kr., en 12.7 milj. kr. í fyrra á sama tíma. í ágúst þ.á. jókst seðlaumferðin um 1.6 milj. kr. Innlög í 10 stærstu sparisjóðunum námu 10.9 milj. kr. i lok júlímánaðar, á móti 9.1 milj. kr. 31. júli í fyrra. Útlánin námu rúmum 9 milj. kr. á móti 8 milj. kr. í júli- lok í fyrra. Atvinnumál. Óvenju mikil atvinna hefir verið hér í bænum undanfarna mánuði, samanborið við nokkur undanfarin ár. En þrátt fyrir það er alltaf nokkuð atvinnuleysi, og hefir það fremur aúkizt en minnkað nú upp á síðkastið, enda þótt bætt hafi verið við mönnum í Bretavinnuna. Stafar það fyrst og fremst af því, að menn eru nú sem óðast að koma í bæinn úr sumarvinnunni. Lang minnst var atvinnuleysið i ágústmán- uði s.l. T. d. voru þann 23. ágúst s.l. skráð- ir 96 menn atvinnulausir en 7. október 162 menn, og eru flest allir þeirra dag- launamenn, eða 131 og 15 sjómenn. Til samanburðar má geta þess, að skráðir at- vinnulausir menn voru: 7. október 1939 485 7. október 1938 522 7. október 1937 258 7. október 1936 413 7. október 1935 628 — Kaup verkamanna hækaði um siðustu mánaðamót, þannig að tímakaup í dag- vinnu er nú kr. 1,84 (áður 1,78), í eftir- vinnu kr. 2,73 (áður 2.63) og í nætur- og helgidagavinnu kr. 3,43 (áður 3,31) Gildir kauptaxti þessi til áramóta. Ýms stéttartíðindi. Vfðskiptaháskóli íslands tók til starfa i síðastliðinni viku. Sú breyting hefir orðið við skólann, að ráðinn hefir verið að hon- um fastur kennari með sömu réttindum og kjörum og dósentar við Háskólann, og er þeð Gylfi Þ. Gíslason, hagfræðingur. Hefir komið til orða, að skólinn yrði nú á þessu hausti sameinaður Háskólanum. Ur þvi verður ekki að sinni, en Alþingi mun taka það mál til meðferðar. Aðgangur að skólanum var áður takmarkaður en sök- um þess, að leiðir allar til náms við er- lenda háskóla eru nú lokaðar, mun það ekki verða nú. Samkvæmt nýútkomnum „Ægi“ hefir fiskur seldur i ísfiskflutningaskip frá ára- mótum til 1. sept. numið 27.936 smál. og hefir framleiðendum verið greitt fyrir það 5.447 þús. kr. í ágústmánuði keyptu ísfisks- flutningaskip 1.578 smál. af fiski fyrir 390 þús. kr. Merkiseðlar \ HERBERTSprent Bankastrœti Simi 3635 230 KAUPSÝSLUTÍÐINDl

x

Kaupsýslutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kaupsýslutíðindi
https://timarit.is/publication/1798

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.