Muninn - 01.08.2021, Page 70
fá útrás frá allri þessari greddu og að mínu mati er allt betra í
góðum félagsskap. Frekar myndi ég ríða einhverjum sætum
strák og hafa smá gaman en að sitja ein í myrkrinu inni hjá mér.
Kæri samnemandi, ríddu eins og enginn sé morgundagurinn,
hvað er það versta sem gæti gerst? Jújú þú gætir nælt í klamma
en hey, hver hefur ekki fengið klamma? Það að það sé skömm í
því að greinast með kynsjúkdóm er einfaldlega fáránlegt! Þú
skammast þín varla fyrir að fá kvef eða hálsbólgu og ættir alls
ekkert að skammast þín fyrir að fá kynsjúkdóm. Það gerist á
bestu bæjum. Ég býst ekki við neinu öðru en að hann Jóhannes
Óli komi með einhverja punkta um að við ættum ekki að stunda
kynlíf til gamans vegna þess að maður getur fengið
kynsjúkdóma og óvelkomnar þunganir og vissulega er erfitt að
takast við slík vandamál sem ungmenni en ég, Áslaug María
Stephensen, geri alltaf mitt allra allra besta til þess að líta á
björtu hliðarnar og sé þess vegna kynsjúkdóma og óvelkomnar
þunganir bara sem tækifæri til þess að þroskast og læra af fyrri
mistökum. Kynlíf með samþykki er svo fallegur hlutur í þessum
ljóta ljóta heimi og við verðum að muna það að við lifum bara
einu sinni (#yolo) svo farðu heim með eins mörgum og þú vilt af
djamminu, farðu í bekkjó, farðu í kennara for all i care en mundu
bara alltaf að hafa gaman.
Kynlíf ti
Áslaug - Með
Kæri lesandi, ég er gröð og þú líka, bara sorry
en þetta er fact. Við erum lang flest mjög gröð,
enda unglingar og búum á Akureyri. Þó að ég
sé stoltur Brekkusnigill þá get ég alveg
viðurkennt fyrir sjálfum mér að það er ekkert
annað að gera hérna en að ríða, djamma og
dópa. Sem unglingar erum við STÚT full af
hormónum og einhvern veginn þurfum við að
Þegar maður heyrir „Kynlíf til gamans” hugsar
ábyggilega meðal greddupaddan að það sé
bara snilld. Ég veit hins vegar að þú, kæri
lesandi ert gáfaðri en það, þú sérð í gegnum
allar lygarnar um að þetta sé á einhvern
hátt mannbætandi og yfirhöfuð eitthvað
sem maður ætti að sækjast eftir. Ég myndi
aldrei mæla á móti kynlífi sem heild því
kynlíf býr til börn og börn eru gleði. Það kynlíf þar sem
ætlunarverkið er ekki að búa til börn hefur hins vegar
einungis slæmar afleiðingar. Tveir mikilvægustu punktarnir
eru óvelkomnar þunganir og kynsjúkdómar. Við vitum öll að
í kynlífi fylgir sú áhætta að verða ólétt eða gera einhverja
ólétta og það er ándjóks alveg pínu algengt. Ég meina þótt
þú notir varnir þá virkar smokkurinn bara í 98% tilvika og
ég veit um allt of marga sem eru ekki einu sinni að nota
varnir. Óvelkomnar þunganir geta haft mjög slæm andleg
áhrif og ótímabærar barneignir eru ein af megin ástæðunum
fyrir því að fólk festist í fátækt. Á Íslandi er klamydíu
faraldur, það eru meiri líkur en ekki á að smitast af því á
lífsleiðinni. Ég veit það er alltaf sagt að það sé ekkert
vandræðalegt að fá kynsjúkdóm en come on, það er það. Að
sitja og þurfa gera lista yfir fólk sem þú svafst hjá fyrir
einhvern hjúkrunarfræðing er fokking vandræðalegt. Það er
mjög einföld leið til að minnka líkur á þessu, það er að
hætta að ríða til gamans. Það er ekki einu sinni það
skemmtilegt, oftast er það bara vandræðalegt, skrýtið og
einhver sér á þér nipplurnar, sem er hræðilegt. Þar að auki
segir vinur minn Kári alltaf að maður fari til helvítis ef
maður stundar kynlíf utan hjónabands og ég trúi honum.
Kæru samnemendur, hættum að vera síríðandi og finnum
gleði í litlu hlutunum eins og að elda humarpasta eða horfa
á vikuna með Gísla Martein.
l gamans
Jóli - Móti
68