Muninn - 01.08.2021, Page 84
Minningargrein geðorða
Ó elsku hjartans geðorð, hvert fór tíminn? Mér finnst eins
og það hafi bara verið í gær þegar við hlógum saman yfir
þínum fallegu og hvetjandi orðum.
Það er þér að þakka að ég komst í gegnum samkomubann
og endalausan heimaskóla. Ég var spenntari fyrir
mánudögum en fössörum vegna þess að ég vissi að þú
kæmir í pósthólfið í hvert skipti.
Ég vil þakka þér fyrir allt, grátinn og hláturinn. Spakmælið
"you don't know what you got until it's gone" hefur aldrei
átt jafn mikið við.
Elska þig að eilífu<3
ABBMA
Hver elskar ekki ABBA? ABBA á svo
marga bangera að það er erfitt að velja
á hvað maður á að hlusta. ABBMA
leysti þetta vandamál forðum með því
að birta lag vikunnar á Instagram
reikningnum sínum. Þegar við
reynum að hlusta á ABBA núna fáum
við víðáttubrjálæði og getum ekki
valið:’(
Menningarferðin
Ferð til stærsta Menningarseturs
Evrópu, Reykjavíkur, aflýst tvö ár í
röð. Það er mikill missir að missa
þessa ferð þar sem hún átti svo stóran
þátt í því að siðmennta busana.
Skorturinn á Menningarferðinni
hefur valdið því að stór hluti
nemenda MA eru siðlausir,
menningarsnauðir plebbar.
Trúnó
Á þessum síðustu og verstu,
horfum við til baka á gömlu góðu
dagana. Trúnó var hið eina sanna
sveitaball Menntskælinga, bezta
djamm haustannarinnar. Síðustu
tvö ár hefur það ekki verið
haldið. Vér syrgjum.
KaffMA
Ó, það sem hefði getað orðið.
Útópían sem MA hefði getað verið ef
KaffMA hefði staðið við loforð sitt
um heitt kaffi á hverjum morgni.
Enginn væri þreyttur, allir væru
glaðir.
Minningargreinar
82