Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 26
24 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 99. árg. 2023 Dýrmætt að finna gleði í hjartanu í lok vaktar Hvað varð til þess að þú valdir hjúkrun frekar en eitthvert annað nám? Vegna þess að það hefur alltaf verið ástríða mín að hjálpa og hlúa að fólki, sérstaklega þeim sem eru veikir og/eða einmana. Hvar starfar þú í dag og hvað myndir þú segja að væri það besta við starfið? Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Mér finnst það vera forréttindi að fá að sinna veiku fólki, sérstaklega öldruðum. Málefni aldraðra eru mín hjartans mál, eldra fólk er viðkvæmur hópur í samfélaginu sem hefur þjónað samfélaginu og lagt sitt af mörkum oft frá unga aldri. Þegar aldraðir hafa ekki nægan styrk til að sjá um sig sjálfir, sérstaklega í veikindum, þurfa þeir aðstoð og umönnun og ég er ánægð að fá að gera það í starfi mínu. Þetta er gefandi starf og veitir mér ánægju. Draumastarfið þitt innan hjúkrunar? Öldrunar-, krabbameins-, barna- og geðhjúkrun. Bestu eða skemmtilegustu vaktirnar/ vinnudagarnir? Ég myndi segja að það skipti máli að vera jákvæður gagnvart hverri vakt í vinnunni, gera vinnuna og verkefnin skemmtileg og þá er vinnudagurinn alltaf gefandi í lok dags. Að finna gleði í hjartanu í lok vaktar er dýrmætt og að vita að ég gerði mitt besta gagnvart skjólstæðingum mínum eru alltaf bestu launin í starfi mínu sem hjúkrunarfræðingur. Bros, hlýtt handaband og þakklæti frá skjólstæðingum eða frá aðstandendum þeirra fyllir hjarta mitt alltaf af gleði, það eru bestu stundir starfsins. Hefur þú farið erlendis að starfa sem hjúkrunarfræðingur? Ég starfaði sem hjúkrunarfræðingur í mínu heimalandi, Filippseyjum. Ég er hamingjusamari og öruggari á Íslandi, þess vegna vil ég helst vera hér á landi áfram. Hvernig var upplifunin af því að fara í myndatöku fyrir ímyndarherferð Fíh? Það var heiður að vera með í þessari herferð. Ég er auðmjúk yfir því að hér á landi, starfa hjúkrunarfræðingar af erlendum uppruna. Hvernig hafa viðbrögðin við auglýsingunum verið? Margir vinir mínir og samstarfsfólk, hér og erlendis, hafa óskað mér til hamingju. Hver er þín fyrirmynd í faginu? Áður en ég kom til Íslands var það samstarfsmaður minn sem starfaði á gjörgæsludeild. Hér á Íslandi voru það mikil forréttindi að fá að vinna með Hönnu Þórarinsdóttur á Landakotspítala. Á öllum mínum 17 ára hjúkrunarferli er hún að mínu mati eins og lifandi Florence Nightingale. Hún er svo sannarlega góð fyrirmynd. Framúrskarandi eiginleikar í starfi að þínu mati? Seigla, jákvæðni, dugnaður, sýna skjólstæðingum skilning og þolinmæði. Hver er draumurinn? Draumur minn er að geta stundað framhaldsnám á meistarastigi í öldrunar- og krabbameinshjúkrun. Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu? Ég ætla að verja tíma með börnunum mínum. Að vera einstætt foreldri og vinna 100% starf er áskorun, að hafa jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Á frídögum set ég alltaf í forgang að tengjast börnunum mínum sem best og verja tíma með þeim. Eitthvað að lokum? Að vera hjúkrunarfræðingur gerir mér líka kleift að lifa óuppfylltan draum minn um að verða nunna. María Lowenda B. Depamaylo fædd 9. október árið 1978. Hvenær útskrifaðist þú úr hjúkrunarfræði? Ég útskrifaðist frá University of Cebu á Filippseyjum árið 2006. Hjúkrunarfræði var mitt annað nám því ég lærði fyrst viðskiptafræði og starfaði í banka í rúm fjögur ár. Ímyndarherferð Fíh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.