Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 26
24 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 99. árg. 2023
Dýrmætt
að finna
gleði í
hjartanu í
lok vaktar
Hvað varð til þess að þú valdir hjúkrun frekar
en eitthvert annað nám? Vegna þess að það hefur
alltaf verið ástríða mín að hjálpa og hlúa að fólki,
sérstaklega þeim sem eru veikir og/eða einmana.
Hvar starfar þú í dag og hvað myndir þú segja
að væri það besta við starfið? Á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja. Mér finnst það vera forréttindi að
fá að sinna veiku fólki, sérstaklega öldruðum.
Málefni aldraðra eru mín hjartans mál, eldra fólk er
viðkvæmur hópur í samfélaginu sem hefur þjónað
samfélaginu og lagt sitt af mörkum oft frá unga aldri.
Þegar aldraðir hafa ekki nægan styrk til að sjá um sig
sjálfir, sérstaklega í veikindum, þurfa þeir aðstoð og
umönnun og ég er ánægð að fá að gera það í starfi
mínu. Þetta er gefandi starf og veitir mér ánægju.
Draumastarfið þitt innan hjúkrunar? Öldrunar-,
krabbameins-, barna- og geðhjúkrun.
Bestu eða skemmtilegustu vaktirnar/
vinnudagarnir? Ég myndi segja að það skipti máli
að vera jákvæður gagnvart hverri vakt í vinnunni,
gera vinnuna og verkefnin skemmtileg og þá er
vinnudagurinn alltaf gefandi í lok dags. Að finna
gleði í hjartanu í lok vaktar er dýrmætt og að vita
að ég gerði mitt besta gagnvart skjólstæðingum
mínum eru alltaf bestu launin í starfi mínu sem
hjúkrunarfræðingur. Bros, hlýtt handaband og
þakklæti frá skjólstæðingum eða frá aðstandendum
þeirra fyllir hjarta mitt alltaf af gleði, það eru bestu
stundir starfsins.
Hefur þú farið erlendis að starfa sem
hjúkrunarfræðingur? Ég starfaði sem
hjúkrunarfræðingur í mínu heimalandi, Filippseyjum.
Ég er hamingjusamari og öruggari á Íslandi, þess
vegna vil ég helst vera hér á landi áfram.
Hvernig var upplifunin af því að fara í
myndatöku fyrir ímyndarherferð Fíh? Það var
heiður að vera með í þessari herferð. Ég er auðmjúk
yfir því að hér á landi, starfa hjúkrunarfræðingar af
erlendum uppruna.
Hvernig hafa viðbrögðin við auglýsingunum
verið? Margir vinir mínir og samstarfsfólk, hér og
erlendis, hafa óskað mér til hamingju.
Hver er þín fyrirmynd í faginu? Áður en ég
kom til Íslands var það samstarfsmaður minn
sem starfaði á gjörgæsludeild. Hér á Íslandi voru
það mikil forréttindi að fá að vinna með Hönnu
Þórarinsdóttur á Landakotspítala. Á öllum mínum 17
ára hjúkrunarferli er hún að mínu mati eins og lifandi
Florence Nightingale. Hún er svo sannarlega góð
fyrirmynd.
Framúrskarandi eiginleikar í starfi að
þínu mati? Seigla, jákvæðni, dugnaður, sýna
skjólstæðingum skilning og þolinmæði.
Hver er draumurinn? Draumur minn er að geta
stundað framhaldsnám á meistarastigi í öldrunar- og
krabbameinshjúkrun.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu? Ég ætla að
verja tíma með börnunum mínum. Að vera einstætt
foreldri og vinna 100% starf er áskorun, að hafa
jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Á frídögum set ég
alltaf í forgang að tengjast börnunum mínum sem
best og verja tíma með þeim.
Eitthvað að lokum? Að vera hjúkrunarfræðingur
gerir mér líka kleift að lifa óuppfylltan draum minn
um að verða nunna.
María Lowenda B. Depamaylo
fædd 9. október árið 1978.
Hvenær útskrifaðist þú úr hjúkrunarfræði?
Ég útskrifaðist frá University of Cebu á Filippseyjum árið
2006. Hjúkrunarfræði var mitt annað nám því ég lærði fyrst
viðskiptafræði og starfaði í banka í rúm fjögur ár.
Ímyndarherferð Fíh