Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 58
PICC-teymi Vökudeildar
Aðdragandi þess að stofnað var sérstakt PICC-teymi
skipað hjúkrunarfræðingum var að Björk Áskelsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, hóf störf á deildinni
en hún hafði starfaði um árabil í Svíþjóð. Við störf á
nýburagjörgæslu þar í landi fór Björk á námskeið og hlaut
þjálfun í uppsetningu PICC-leggja. Þegar Björk hóf störf
á Vökudeildinni eftir flutning heim til Íslands tíðkaðist
annað vinnulag en nýburalæknar sáu um að leggja PICC-
línur. Björk fór fljótlega að leggja PICC-línur í samráði
við lækna deildarinnar og nokkrum árum seinna var
PICC-teymi hjúkrunarfræðinga stofnað. Það er skipað
um 10 hjúkrunarfræðingum sem hafa hlotið sérstaka
þjálfun í uppsetningu leggjana.
Árangur verkefnis góður
Verkefnið hefur gengið vel. Almenn ánægja er meðal
starfsfólks á deildinni með nýja teymið, og góð samvinna
hefur verið við nýburalækna. Meðlimir PICC-teymisins
vinna að stöðugum umbótum, til dæmis voru fengnir
skurðhjúkrunarfræðingar til að þjálfa teymið og ganga úr
skugga um að vinnulag teymisins væri fullnægjandi hvað
varðar hreinlæti og steril vinnubrögð við uppsetningu
leggjanna. PICC-dagur er haldinn einu sinni á ári með
teyminu til að fara yfir ísetningu, umbúðir og nýjar
rannsóknarniðurstöður. Vökudeildin fylgist vel með tíðni
línusýkinga og hefur hún haldist óbreytt eða lægri frá því
að teymið hóf störf.
Ísetning PICC-leggja
Mikilvægt er að tryggja hreinlæti við ísetningu
en setja þarf upp steríla vinnuaðstöðu og þurfa
hjúkrunarfræðingarnir að klæðast sterílum sloppi og
hönskum. Mæla þarf hversu langt inn línan þarf að
þræðast til að hún endi í stórri holæð. Finna þarf álitlega
æð í útlim eða höfði til að þræða í en línan er þrædd í
gegnum venjulegan æðalegg sem hefur verið settur upp í
útlæga æð. Þegar línan er komin nógu langt inn þarf svo
að meta staðsetningu með röntgenmynd. Ávallt er reynt
að hafa tvo hjúkrunarfræðinga úr teyminu sterila við
ísetningu PICC-leggja eða hjúkrunarfræðing úr teymi
ásamt nýburalækni. Ísetningin er gerð á Vökudeildinni
á stæði barns og því getur verið flókið að halda sterilu
umhverfi. Sjúklingar deildarinnar eru smávaxnir og
viðkvæmir og æðaaðgangur því oft takmarkaður, ísetning
PICC leggja getur því verið áskorun og krefst góðrar
samvinnu.
Hjúkrun við ísetningu PICC-leggja
Að setja upp PICC-legg krefst margra handa. Fyrir utan
þá hjúkrunarfræðinga sem setja inn legginn, þarf einn
hjúkrunarfræðingur að vera í kring til að aðstoða teymið
og annan hjúkrunarfræðing sem sér alfarið um að sinna
barninu og veita stuðning og verkjastillingu.
Ísetning miðlægra
bláæðaleggja af
hjúkrunarfræðingum
Vökudeildar
Á Vökudeild Landspítala leggjast inn fyrirburar og veikir nýburar að
þriggja mánaða aldri. Til þess að gefa næringu, lyf og vökva geta
þessir sjúklingar þurft miðlægan bláæðalegg. Til eru ýmsar tegundir
miðlægra bláæðaleggja en yfirleitt eru PICC-línur valdar fyrir þessa
sjúklinga. PICC-línur (e. peripherally inserted central catheter) eru
þræddar inn um útlæga æð í handlegg, fæti eða höfði. Lengi vel
voru þessar ísetningar í höndum nýburalækna en nú sér teymi
hjúkrunarfræðinga á Vökudeild um ísetningu leggjanna.
Höfundur og myndir: Sölvi Sveinsson
Ísetning miðlægra bláæðaleggja