Ský - 01.01.2015, Side 65
1. tbl. 2015 SKÝ | 65
Keaton betur en í kvikmyndum og er þar
helst að nefna sjónvarpsmyndina Live From
Bagdad (fékk Golden Globe tilnefningu
fyrir leik sinn) og míniserían The Company
sem hlaut mikið lof. Hlutverkin fóru sem
sagt hægt batnandi en útslagið gerði Bird
man.
Þakkaði syni sínum
Ekki hefur verið mikið í boði fyrir slúður
pressuna þegar kemur að einkalífi Michaels
Keaton. Hann var að vísu um skeið með
Friendsleikkonunni Courtney Cox, en
gift ist síðan leikkonunni Caroline McWil
liams, sem nú er látin. Þau skildu og einn
son á Michael úr því hjónabandi, Sean
Douglas. Fáir hafa vitað um hann og
beindust allra augu að honum þegar
Keaton tók við Golden Globe verðlaun
unum. Í þakkarræðu sinni þakkaði hann
besta vini sínum „gáfuðum, fyndnum og
hæfileikaríkum ungum manni sem vill svo
til að er sonur minn.“ Sean Douglas, sem
valdi ættarnafnið frekar en Keaton hefur
síðan verið vinæll á síðum blaða og tíma
rita og það kannski ekki eingöngu fyrir að
vera sonur Michaels Keaton. Hann er ekki
með öllu óþekktur þó fáir hafi hingað til
tengt hann við föðurinn. Hann er þekktur
laga smiður og hljóðfæraleikari sem hefur
samið lög fyrir Madonnu, Michael Bolton,
Backstreet Boys og Demi Lovato svo ein
hverjir séu nefndir.
Michael Keaton er aftur kominn á blað
í Hollywood og er nóg að gera hjá hon
um næstu misseri. Einna mest spennandi
af framtíðarverkefnum hans er að leika
stofnanda McDonaldskeðjunnar í The
Founder, en það er víst dramatísk saga
um hinn miskunnarlausa Ray Croc, sölu
mann sem hreifst af því hvernig bræðurnir
Mac og Dick McDonald framleiddu með
miklum hraða hamborgara. Croc tókst að
sölsa undir sig fyrirtæki bræðranna og gera
að billjónafyrirtæki. Í millitíðinni megum
við eiga von á Spotlight, sem fjallar um
mikinn skandal sem hristi stoðir kaþólsku
kirkjunnar í Bandaríkjunum. Mótleikarar
hans eru Rachel McAdams, Mark Ruffalo,
Liv Schreiber og Stanley Tucci. Þá talar
Keaton inn á teiknimyndina Mininos og þar
sitja til borðs með honum Sandra Bullock,
John Hamm og Steve Coogan. Loks má geta
að á undirbúningsstigi er ævintýramyndin
Kong Skull Island, sem fjallar um uppruna
risaapans King Kong.
Desperate Measures (1998), en smátt
og smátt varð eftirspurnin eftir honum
minni. Keaton, sem gerði lítið til að fylgja
frægðinni eftir, dró sig meira og minna í hlé
í kringum alda mótin og þegar fór að líða
á fyrsta áratug nýrrar aldar. Sagði að hann
ætti orðið nóg af peningum til að geta lifað
góðu lífi og keypti sér búgarð í Montana
þar sem hann heldur til að mestu leyti enn
í dag.
Um síðir, þegar þörfin fyrir að leika aftur
blossaði upp hjá Keaton, var hann búinn að
missa af lestinni. Í boði voru að vísu ágæt
hlutverk en ekki nein af þeirri stærðargráðu
sem hann var vanur. Má því segja að hans
helstu hlutverk hafi verið aukahlutverk í
misgóðum gamanmyndum og að tala inn
á teiknimyndir, m.a. Cars og Toy Story 3
myndir sem náðu gífurlegum vinsældum.
Þegar verið var að undirbúa hina vinsælu
sjónvarpsseríu Lost var Michael Keaton sá
sem aðstandendur seríunnar vildu í aðal
hlutverkið. Keaton, sem hélt að ekki væri
um langframaseríu að ræða, var spenntur
en þegar hann sá að samningur hans gerði
að verkum að hann þyrfti jafnvel að vera
bundinn seríunni í mörg ár hætti hann við.
Matthew Fox tók við hlutverkinu og serían
gekk í sex ár. Í sjónvarpinu gekk Michael
Sem mikill aðdáandi Busters Keaton ákvað
hann að taka upp eftirnafn hans og til varð
Michael Keaton.
Hlutverk Keatons í sjónvarpinu urðu
stærri og hann fór að fá góð kvikmynda
hlutverk þótt ekki væru þau öll stór í sniðum.
Ungur leikstjóri, Tim Burton, hreifst af
Keaton sem gamanleikara og réð hann í
titilhlutverkið í sinni fyrstu kvikmynd í
fullri lengd, Beetlejuice (1988). Sú mynd
fékk fína dóma og leikur Keatons þótti
afbragðsgóður. Burton hélt tryggð við
Keaton og réð hann ári síðar til að leika sjálfan
Batman í samnefndri kvikmynd og þurfti að
hafa mikið fyrir því að fá hann samþykkt
an. Þeir sem réðu peningastreyminu hjá
Warnerbræðrum á þessum árum voru
ekki fyrirfram hrifnir af Keaton í hlutverki
Batmans, fannst að gamanleikari ætti ekki
að leika hetjuna og það var aðeins þrjóska
Tims Burton sem réð því að hann fékk
hlutverkið. Michael Keaton sló í gegn og
hefur síðar sagt að í raun hefði ekki komið
honum á óvart að Burton skyldi velja hann
þar sem hann hélt að Batmanmyndin væri
ódýr útgáfa af vinsælli sjónvarpsseríu þar
sem meira var gert út á gaman en alvöru.
Annað kom á daginn og Batman var al
vöru stórmynd sem fleytti bæði Keaton og
Burton upp á stjörnuhimininn og ekki var
amalegt að hafa Jack Nicholson í hlutverki
Jókersins. Batman Returns fylgdi í kjöl
farið og naut mikilla vinsælda, en fleiri
urðu Batmanmyndirnar ekki með Michael
Keaton. Þegar kom að þriðju myndinni
voru Warner bræður búnir að fá nóg af Tim
Burton og vildu annan leikstjóra, en Michael
Keaton áfram. Keaton stóð með sínum
manni og hætti einnig þrátt fyrir að honum
hefðu verið boðnar 15 milljónir dollara
fyrir að leika í myndinni. Val Kilmer tók við
keflinu og fleiri stórstjörnur á eftir honum,
m.a. George Clooney, sem vill helst gleyma
því að hafa leikið Batman. Ævintýrið hélt
svo áfram og Batmanmyndirnar lifa enn
góðu lífi í dag.
ErfiTT að HæTTa að lEika
Michael Keaton lék ekki Batman áfram, en
hann þurfti ekki að kvarta, tilboðin komu á
færibandi og fram til ársins 1998 lék hann
í mörgum ágætum kvikmyndum, m.a.
Pacific Heights (1990), One Good Cop
(1991), Much about Nothing (1993), The
Paper (1994), Multiplicity (1996), Jack
ie Brown (1997), Jack Frost (1998) og
kvikmynDastjarna
michael keaton lék Batman í tveimur stórmyndum
sem Tim Burton leikstýrði.