Ský - 01.08.1998, Síða 8

Ský - 01.08.1998, Síða 8
Liggur í loftinu BIO w Islendingar leika Færeyinga Ágúst Guðmundsson spreytir sig á Heinesen s Agúst Guðmundsson kvikmynda- leikstjóri frumsýnir kvikmynd sína Dansinn í liaust. Myndin er byggð á sögu færeyska skáldsins Willi- am Heinesens Her skal danses og fjallar eins og svo margar aðrar hjartnæmar sögur um ástir og örlög. Eins og gjarnan er eðli ástarsagna er ástin í Dansinum ekki alltaf farsæl. Húmorinn er þó aldrei langt undan: „Án þess að vera sprenghlægileg mynd þá er hún launfyndin. Við tökum á sumum hlutum af alvöru, eins og til dæmis hinum sígilda ástarþríhyrningi, en ýmsir kaflar myndarinnar eru mjög kómískir," segir Ágúst. Myndin er tekin upp á íslandi og á söguslóðum bókarinnar í Færeyjum. Aðspurður um hvernig það hafi verið að vinna í heimalandi Heinesens segir Ágúst það hafa verið mjög þægilegt og tekur hann fram að það hafi verið ein- staklega gott að vinna með Færeying- um. „Þeir kunna því vel að athyglin bein- ist að þeim og hafa áhuga á að fá svona gesti. Mér finnst þeir líka vera að rétta úr kútnum og varð ekki var við neitt gjaldþrotahugarfar. Þeir eru komnir yfir það versta.“ Dansinn gerist árið 1913 í brúðkaupi á einni af átján eyjum Færeyja. Eftir að skip strandar við eyna í ofsaveðri fara hlutirnir að fara úrskeiðis og margt fer öðruvísi en upphaflega var ætlað. Það kemur til dæmis í ljós snemma að hin væntanlega brúður hefur ekki enn gert upp hug sinn og ennþá leynast í brjósti hennar tilfinningar til gamals kærasta. Leikarar í myndinni eru nánast allir Islendingar. I aðalhlutverkum eru Gunn- ar Helgason, Baldur Trausti Hreinsson, Pálína Jónsdóttir og Dofri Hermannsson auk þess sem Jóhann G. Jóhannsson fer með hlutverk í myndinni. „Þetta eru ungir leikarar sem sumir kannast kannski ekki mjög vel við en af eldri leikurum má nefna Gísla Halldórs- son og Arnar Jónsson. Það eru mörg lit- rík hlutverk og sægur leikara í mynd- inni,“ segir leikstjórinn. En hvernig skyldi íslensku leikurunum hafa gengið að leika Færeyinga? Tókst þeim að forð- ast klisjurnar sem hafa í gegnum tíðina tengst þjóðinni. „Já, já. Þetta gekk ágætlega og var ekkert vandamál. Reyndar á ég afskaplega erfitt með að sjá nokkurn mun á Færeyingum og íslendingum nema hvað Færeyingar eru kannski ívið þægilegri í viðmóti. Svo sérmaður auð- vitað íslendinga sífellt leika útlendinga og þetta var ekkert öðruvísi. Þessi saga er ástarsaga og þær ná út yfir landamæri tungumálsins. Þessi verður að vísu dálítið ruglings- leg á köflum út af því hversu margir ást- fangnir koma við sögu, en það er bara betra.“ FIN Dansinn verður frumsýndur í Háskóla- bíói síðari hluta septembermánaðar. Sporlaust Spennumyndir hafa oftar en ekki verið oln- bogabörn í íslenskri kvikmyndagerð enda íslenskur veruleiki að margra sögn ekki sá hentugasti til brúks í hasar- og spennu- myndagerð. Aðrir hvá og benda á að höfuð- borgin sé óðum að færast nær stórborgum heimsins í umfangi og hörku undir- heimanna. Það má því segja að mynd Hilm- ars Oddssonar, Sporlaus, komi sem kölluð fyrir raunsæja íslenska spennufíkla. Myndin gerist í Reykjavík samtímans. Nokkrir vinir lenda í slæmum félagsskap óprúttinna glæpamanna sem svífast einskis og verður fróðlegt að sjá hvernig útkoman verður. Hilmar leikstýrir fríðum flokki ungra leikara, þeim Guðmundi Inga Þorvaldssyni, Ingvari E. Sigurðssyni, Dofra Hermannssyni, Þrúði Vilhjálmsdóttur, Nönnu Kristínu Magnús- dóttur og fleirum. fl Perfect Murder Leikstjórinn Andrew Davis á að baki nokkra af mestu spennutryllum samtímans, t.d. The Fugitive og Under Siege. Nýjasta mynd hans er byggð á þekktri mynd Hitchcock, Dial M for Murder. Auðkýfingur nokkur reynir að finna skothelda leið til þess að ráða unga eiginkonu sína af dögum en áður en yfir lýk- ur flækjast málin... Aðalleikarar eru Michael Douglas, Gwyneth Paltrow og Viggo Mortensen. ' * Saving Private Ryan Steven Spielberg er sem fyrr heillaður af seinni heimsstyrjöldinni. Nú hefur meistarinn gert mynd sem fjallar um óbreyttan her- ------------- _ _ mann, Ryan að nafni, sem er fastur bak við ó- vígan her óvina og -jfpf-li kemst hvorki lönd né strönd án hjálpar félaga sinna sem að sjálf- sögðu hoppa yfir til Evr- ópu frá USA til þess að kippa málum í liðinn. Með aðalhlutverk fara Tom Hanks, sem fer fyrir björgunarliðinu og hinn ungi og efnilegi Matt Damon, sem leikur Ryan. Báðir státa af gullinni styttu á arinhillunni. The Horse Whisperer Robert Redford er orðinn nokkurs konar vörumerki fyrir góðar og þægilegar melló- dramamyndir, samanber A River Runs Through It. í þessari mynd leikur hann bæði aðalhlutverkið og leikstýrir. Myndin er byggð á þekktri skáldsögu og segir frá móður sem gerir víðreist í leit að lækningu fýrir reiðskjóta dóttur sinnar og finnur hinn dularfulla Hesta- hvíslara í Montana. Þar er kominn gamli sjarmörinn sjálfur Redford en í hlutverki móðurinnar er Kristin Scott Thomas, hjúkrun- arkonan úr Enska sjúklingnum. 6
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.