Ský - 01.08.1998, Blaðsíða 49

Ský - 01.08.1998, Blaðsíða 49
 í annarri af heitu laugunum á Uunartoq eyju. Útsýnið yfir jakana á firðinum var ekki til að draga úr stemmningunni. fréttir að hafísinn sé ekki hliðhollur þeirri ferðaáætlun. Eftir stuttan fund með skipstjóra okkar, heimamannin- um Kasper Ludvigsen, fáum við það endanlega staðfest að Appillattoq er úr sögunni og einnig Ketilsfjörður. Það er sérstaklega svekkjandi að missa af tækifærinu til þess að komast í Ketils- fjörð en þar eru hæstu og tignarlegustu fjöll Suður-Grænlands og einnig eini skógur landsins með allt að sex metra háum birkitrjám. En svona er Græn- land. Hér leika náttúruöflin stærra hlutverk í hinu daglega lífi en á flest- um öðrum stöðum. Óðal arnanna Benedikte er fljót að draga upp nýja á- ætlun og næsta morgun leggjum við úr höfn með Akaaka, 20 feta yfirbyggð- um plastbáti, með Kasper kaptein við stjómvölinn. Háseti er Claus Nielsen, fjórtán ára sonur eiganda bátsins. Kúr- sinn er tekinn inn í Suður-Sermelik fjörð, sem er næsti fjörður við Ketils- fjörð. Við erum ekki búin að sigla mjög lengi þegar við komum að mikl- um ísbreiðum. Þetta er mest lagnaðarís sem flýtur nú um í misstórum flekum Á ströndinni við Uunartoq. en inná milli eru tignarlegir borgarís- jakar. Kasper rennir Akaaka rólega á milli jakanna og nú upphefjast miklar krókasiglingar. Það líður hins vegar ekki á löngu þar til glufumar em orðn- ar of litlar fyrir bátinn. Kasper leggur því að landi við litla eyju og fer upp á klett til þess að kanna útlitið. Niður- staðan er sú að við verðum að bíða þess að losni um ísinn þegar tekur að flæða frá. Þegar ýtt er aftur frá landi tökum við íslendingamir það að okkur að vera í stafni ásamt hásetanum og stökkva niður á jakana og ýta þeim frá bátnum. Þetta er all ævintýralegt verk- efni og ekki gott til þess að hugsa að lenda í sjónum sem mælar bátsins sýna að er um 4 stiga kaldur. Allt gengur þó að óskum og eftir um klukkutíma baming komumst við út úr jakabreið- unni. Fáeinum klukkustundum síðar vörpum við akkerum innarlega í firð- inum. Hér skal nátta. Helmingurinn af hópnum gistir í bátnum, hinn í landi. Kasper kapteinn segir að á nesinu sem við veljum fyrir náttstað hafi áður ver- ið hafarnaóðal. Emimir fluttu sig um set þegar mannaferðir gerðust tíðar um fjörðinn en fyrir botni hans stendur nú yfir gullgröftur í tilraunaskyni. Við íslendingarnir leggjumst til svefns í mosanum undir bemm himni í þar til gerðum svefnpokum. Útsýnið yfir fjörðinn þar sem ísjakar af öllum stærðum fljóta er magnað. En ég skal ekki segja hvort það hafi ráðið staðar- vali arnarhjónanna sem áður réðu hér ríkjum. Á söguslóðum Einn vinsælasti viðkomustaður Suður- Grænlands, bæði meðal innfæddra og ferðamanna, eru heitu uppsprettumar á 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.