Ský - 01.08.1998, Blaðsíða 10
Licgur í loftinu
uiKHús -m
Islenski
Með tilkomu fjallahjólanna á
síðustu árum hefur það smám
saman gerst að hjólafólki eru
allir vegir færir, í bókstaflegri merk-
ingu. Og nú eru það ekki bara „vitlausir
útlendingar“ sem feta ótroðnar slóðir og
hjóla um hálendið.
Islenski Fjallahjólaklúbburinn er
geysiöflugur ferða- og fræðsluklúbbur
um allt sem viðkemur hjólreiðum, ekki
hvað síst við hinar sérstæðu og oft erf-
iðu aðstæður sem eru hérlendis. Fjalla-
hjólaklúbburinn stendur fyrir öflugu
starfi allan ársins liring og eru farnar
hinar ýmsu ferðir um allt land. Á döf-
inni hjá klúbbnum síðsumars og í haust
er meðal annars helgarferð í Veiðivötn
dagana 21. til 23. ágúst.
Að sögn Páls Guðjónssonar, gjald-
Þreyttir bændur og þrifalegt fé
Stafnsrétt í Svartárdal
Réttir. Þar gægjast pytl-
ur upp úr köflóttum
brjóstvösum og bænd-
ur með rauðleit blóðhlaupin
nef hesthúsa neftóbak á milli
þess, sem þeir snúa niður
stygga og sílspikaða dilka
með tilheyrandi bölvi og
ragni. í almenningnum yfir-
gnæfir jarmið allt mannsins
mál nema það sé bundið og
borið fram eftir kúnstarinnar reglum -
stökur og vísur fljúga milli flámæltra
vara og fyrripartar seljast hæstbjóð-
anda, þeim, sem dýrast getur kveðið.
Rauð andlit og hvellar raddir, lykt af
blautri ull og sterku svörtu og sykur-
lausu, og gott ef ekki örlar á kúmeninu
einhvers staðar inn á milli.
Myndin er frá Stafnsrétt í Svartárdal.
Þar hafa lömbin enn ekki þagnað og
réttin bráðum staðið þar í tvær aldir þó
torf og grjót hafi vikið fyrir steinsteyp-
unni eins og annars staðar. Á tímabili
var þessi stæðilega rétt ein sú stærsta á
landinu, en réttað var yfir allt að 20 þús-
und fjár þar á hverju hausti áður en
kvóti og annað slíkt kom til. Þar er þó
enn handagangur í öskjunni þegar
þreyttir bændur og þrifalegt fé koma af
fjalli, ár eftir ár eftir ár. FIN
kera og stjórnarmanns IFHK, er þessi
ferð auðveld og tilvalin fyrir fólk sem
langar að prófa þctta skemmtilega sport.
„Þetta er nú samt ekki neitt dútl því
þarna fær fólk smjörþefinn af því livað
hjólreiðar í óbyggðum snúast um. Við
hjólum yfir eyðisanda og litlar ár, alls
um 23 kílómetra leið hvorn dag. Ef fólk
ræður ekki við þetta getur það ekki
hjólað í vinnuna.“
Af öðrum ferðum ÍFHK má nefna
Fjallabaksferð sem farin verður 11. til
13. september um nýja slóða að fjalla-
baki. Fyrir þá sem ekki nenna út úr
borginni er meira að segja hjólað viku-
lega um höfuðborgarsvæðið frá strætó-
stoppistöðinni í Mjódd, alla fimmtudaga
klukkan 20.00 og standa þær ferðir út
september. FIN
Bróðir minn Ljónshjarta
Leikgerð sögu Astridar Lindgren um bræð-
urna Jónatan og Snúð er fyrsta frumsýning
leikársins hjá Þjóðleikhúsinu. Er þetta í fyrsta
skipti sem verkið er sett upp í Reykjavík.
Sagan af ævintýrum bræðranna, sem ger-
ast eftir að jarðvist þeirra líkur, þykir einhver
sú fallegasta sem höfundurinn hefur sent frá
sér. Með hlutverk bræðranna fara Hilmir
Snær Guðnason og Atli Rafn Sigurðarson
en meðal annarra leikara eru Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Valdi-
mar Örn Flygenring og Hjálmar Hjálmars-
son. Frumsýnt verður á Stóra sviðinu um
miðjan september. Leikstjóri er Viðar Egg-
ertsson.
Miklabæjar-Sólveig og séra Oddur
Um mánaðamótin september-október verð-
ur frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins
nýtt íslenskt leikrit eftir Ragnar Arnalds um
skötuhjúin séra Odd og ráðskonu hans
ungu, Sólveigu, en ástarsamband þeirra fyr-
ir hartnær tveimur öldum vakti mikla
hneykslan. Verk þetta bókstaflega iðar af á-
stríðum, afbrotum, tabúum og dulhyggju en
eins og óhjákvæmilegt er um fólk sem
elskast í meinum lauk sambandi þeirra
Odds og Sólveigar með voveiflegum hætti.
Með aðalhlutverkin tvö fara Þröstur Leó
Gunnarsson og Vigdís Gunnarsdóttir en
einnig eru í burðarhlutverkum Pálmi Gests-
son, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Baldur Trausti
Hreinsson og Hjalti Rögnvaldsson. Leikstjóri
er Þórhallur Sigurðsson.
Rommý
Tónleikar, leiksýningar og fjölbreytt dagskrá
af ýmsu tagi hefur verið í menningarmið-
stöðinni Iðnó frá opnun hennar í vor og er
ekkert lát þar á. í byrjun september verður
frumsýnt þar leikritið Rommý í leikstjórn
Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Leikritið fjallar
um fólk sem hittist á elliheimili og tekur að
spila saman rommý. Bæði eiga sína fortíð-
ardrauga, sem sækja á, en eftir því sem þau
spila lengur saman dýpkar vináttan og ástin
skýtur upp rjóðum kollinum. Með hlutverk
parsins fara Erlingur Gíslason og Guðrún
Ásmundsdóttir og eru þau einu leikarar sýn-
ingarinnar.