Ský - 01.08.1998, Blaðsíða 24
„Mér er alveg voðalega sama þótt einhverjum finnist ég ruddi og karlrembusvín."
þegar hann ákveður að í staðinn fyrir
að berjast á móti sannleikanum ætli
hann að berjast með honum.“
Bubbi hefur verið opinskár um
hjónaband sitt og ást sína á eiginkon-
unni Brynju og þótt væminn. Hefur
hann séð eftir því á einhvern hátt að
opinbera svona einkalífið í textum
sínum?
„Nehei,“ svarar Bubbi hlæjandi.
„Ég meina það. Það er ekki til sá tón-
listarmaður sem ekki hefur sungið um
ástina. Hörðustu þungarokkarar, heit-
ustu hljómsveitirnar, allir syngja um
ástina. Og þar sem ég hef verið mjög
persónulegur í mínum plötum þá er ég
bara að syngja um það hvernig mér
líður. Allar plöturnar mínar eru
ævisögutengdar og byggja á minni
eigin reynslu."
Botnaðu þá þetta: Án Brynju væri
ég...
„Ef ég hefði ekki kynnst Brynju
væri ég fátækari, svo einfalt er það.“
Hvað er koss?
„Tjáning þagnarinnar og þögnin er
tjáning ástarinnar."
Það líður að kveðjustund og Bubbi
hefur komið mér á óvart. Hann er ljúf-
ur, þægilegur og skemmtilegur og ég
velti því fyrir mér hvers vegna margir
telja hann svalan rudda og karlrembu-
svín.
Bubbi hlær innilega þegar ég ber
þetta undir hann.
„Mér er alveg voðalega sama þótt
einhverjum finnist ég ruddi og karl-
rembusvín. Ég upplifi mig ekki sem
slíkan og held reyndar að karlmenn
hafi farið miklu verr út úr samskiptum
sínum við kvenfólk en það vill vera
láta. í níutíu prósent skilnaðarmála á
íslandi fara konurnar með sigur af
hólmi, þær fá forræðið, húsið og þetta
og hitt og karlmenn eru því undirmáls-
hópurinn. Ég er alls engin karlremba,
ég hef kappkostað að vera afar ljúfur,
kurteis og alúðlegur við kvenfólk á
alla kanta. Og þótt ég hafi sagt opin-
berlega að ég hafi riðið einhverjum
fjölda kvenfólks, þá er það bara vegna
þess að ég segi hlutina eins og þeir eru
og telst það varla karlremba. Ég er
nokk ömggur og veit hvar ég hef sjálf-
an mig og því læt ég ekki svona hluti
hafa áhrif á mig.“
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir er lausapenni í
Reykjavík og gaf út bók um annan kóng fyrir
nokkrum árum. Sá hét Elvis Presley.
22