Ský - 01.06.2002, Síða 40

Ský - 01.06.2002, Síða 40
ust skoóanir sem ekki eru viðurkenndar af meginþorra manna. Túlkun og skoðanir passa heldur ekki alltaf saman þótt uppruninn sé sá sami. Benda má á að þegar Biblían er skoðuð á mismunandi tungumálum er þýðingu oft ábatavant, kaflar hafa dottið út og túlkunin orðin misvtsandi. Því lesa menn ekki alltaf það sama út úr leiðbeiningum Guðs til mannanna, auk þess sem beeði Vottar Jehóva og mormónar hafa sinn eigin vettvang fyrir sínar prívat-túlk- anir sem alls ekki eru viðurkenndar meðal kristinna manna. Það er því vandratað um Drottins veg. Sigurður Bogi Stefánsson, geólæknir á geðdeild Landspítalans, segir heilaþvott vera aðferðir sem auka líkur á að koma þoðskap á framfæri og hafa áhrif á hugsanir fólks. „Þessar aðferðir eru þekktar og mikið notaðar í sölumennsku og þólitík. Vafalaust má einnig nota þær í trúarhópum ef menn vilja koma skoðunum sínum á framfæri.” íslenskir trúarleiðtogar segja trúarboöun ekki eiga að vera byggóa á heilaþvotti, heldur boðun kristni þar sem fólk sé leitt á- fram af leiðsögn Heilags anda. „Við leggjum mikla áherslu á að fólk leiti svara hjá Himneskum Föður við öllum spurningum er varða fagnaðarerindi Hans," segir Ólafur Einarsson í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu en bætir við að vitaskuld komi til kirkjunnar brotiö fólk sem kannski er móttækilegra fyrir boöskapn- um fyrir vikið. Þar stendur hnífurinn í kúnni. Fólk sem er einmana, veikt, brot- ið, leitandi og auðmótanlegt sækir stíft í sértrúarsöfnuði landsins. Eða einsog Ólafursegir: „Aðjafnaði koma ekki þeirsem eiga nóga peninga því þeir hafa sinn guð í bankabókinni. Þeir koma sem eiga við einhvers konar vandamál að stríða, hinir eru í vananum eða ör- yggi. En við svermum ekki fyrir þeim heldur leitar fólk sjálft. Þeir sem eiga við vanda að stríða eru meira á ferðinni.” Þó fara mormónar spariklæddir á hjólunum sínum og boða trú sína þegar þeir knýja dyra hjá landanum. Til fróðleiks má geta þess aðjakkafötin stífu eru vinnuföt mormóna, en á miðvikudögum má sjá þá í gallabuxum og háskólabol því þá er frí. Önnur trúfélög fara líka í heimahús eða þá í fangelsi og á sjúkrahús þar sem auðvelt er að nálgast hina veiku og boða Guðs orð. Það er líka mikið í húfi að þeir sem hlusta gangi síðar til liðs vió söfnuðina því ríkið greið- ir sóknargjöld með hverju sóknarbarni og Biblían boöar að sóknar- barnið borgi tíund af launum sínum til safnaðarins. Því fylgja flest- ir, enda Guðs orð og skipun. Sigurður Árni í Biskupsstofu segir heilaþvott eiga sér stað í verstu tilfellunum og það sé í raun hægt að líkja þeim við masó- kista sem vilja láta skamma sig og lesa yfir sér. „í skörpum sér- trúarsöfnuðum eru gjarnan menn sem vilja vera miklir leiðtogar. Það er þekkt að slíkir menn nota oft ofbeldi og færa jafnvel trúar- leg rök fyrir því að lemja. Trúin er þar meö notuð sem tæki eða réttlæting grimmdar. Þjóðkirkjan er mjög meðvituð um að bera viróingu fyrir frelsi einstaklingsins og að vilja efla hann til þroska. Þeir sem ekki þora að vera þeir sjálfir og taka afleiðingum gjörða sinna finnst þægilegt að lifa í afmörkuðum heimi smáhóps þar sem þeir lifa eftir ákveðinni rullu og leiðtoginn segir þeim hvernig þeir eiga að lifa, deyja, starfa, elska og hvað má og má alls ekki. Það er enda auðvelt að finna reglusafn og nota sem flóttatæki við því að glíma við samtíðina og þá þekkingu sem þarf að samræma í dag.” Mátturinn og dýrðin? í kristinni trú og íslamskri gegnir Djöfullinn veigamiklu hlutverki. Sumir aðhyllast reyndar og dýrka þennan fallna engil Guðs og til eru þröngir hópar manna sem stunda svartagaldur og djöflatrú á ís- landi með tilheyrandi kynlífsfórnum og ólifnaði. Fróðir menn segja þó hvergi vera stundaða jafnmikla djöflatrú og í kristinni trú og þá einkum og sér í lagi hjá sértrúarsöfnuðum landsins þar sem synd- ir og freistingar ógni mönnum f hverju horni. Sumir hafa gantast með það að sjónvarpsstöðin Omega sé höfuðvtgi djöfladýrkenda því fáir fá eins ríflegan útsendingartíma og skrattinn sjálfur á þeim bæ. Leiðtogar kristinna trúfélaga á íslandi segjast fullvissir um til- vist Satans og það helvíti sem hann útbreiðir meðal vor. Sigurður Árni hjá Biskupsstofu segir helvíti og djöfulinn hluta af sameigin- legri trúarhugsun kristninnar en það skiþti miklu máli að túlka þessi mál ekki yfirborðslega. „Þjóðkirkjan erekki upptekin af djöfl- inum en tekur hið illa alvarlega, hvort sem það er í lífi einstaklings eða óréttlæti samfélagsins. Þegar maður er í andstöðu, eins og gjarnan er í litlu trúfélögunum, þarf alltaf að finna óvin og þá er djöfullinn eitt besta stjórnunartæki sem völ er á. Þjóðkirkjan er uppteknari af Guði en óvininum, gæskunni en grimmdinni og gleð- inni en depurðinni.” Eins og áður sagði sækja viðkvæmar sálir einna mest í um- hyggju sértrúarsafnaða. Þeim verður líka skeinuhættara en hinum sterkari. „Ég hef þó ekki orðið var við að til mín sem læknis sæki fólk fremur úr einu trúfélagi en öðru,” segir Sigurður Bogi geðlækn- ir. „Flestir sem rækja sína trú standa föstum fótum á jörðinni og valda því að sinna þeim þáttum í eðli stnu sem ekki þurfa að lúta lögmálum skynseminnar, svo sem tilfinningum og trúarþörf. Ein- mana fólk og vansælt, sem er að öðru leyti heilbrigt, leitar stund- um eftir félagsskap og lífstilgangi í trúmálum, gjarnan sér til gagns. Hins vegar geta þeir sem veikir eru fyrir lent í miklum erf- iðleikum. Þeir sækja í óhefðbundna hópa í leit að nýrri heimsmynd, sem hæfir breyttri hugsun og skynjun þeirra sjálfra. En það á ekk- ert sérstaklega við um trúarhópa, heidur líka óhefðbundna heim- speki- eða stjórnmálahópa. Og þeim vegnar yfirleitt ekki vel þar.” Hvað sem á gengur mun trúarþörf fólks valda áframhaldandi leit að fullkomnu samlífi með Guði. Hið fullkomna nesti í þann leiðang- ur er heilbrigð skynsemi og varúð gagnvart mislitum lömbum Guðs. Biskupsstofa og prestar Þjóðkirkjunnar hafa fengið smjör- þefinn af því þegar Guðs ríki hefur verið skekið. „Já, við fáum margar og óbeinar kvartanir inn til okkar,” segir Sigurður Árni hjá Biskupsstofu. „Prestar þjóna þá því hlutverki að sinna sálgæslu fyrir viðkomandi, en hafa auðvitað ekki lögsögu í málefnum söfnuðanna. Menn hafa lent í öllu mögulegu innan þess- ara trúfélaga og málin eru margvísleg. Ég get þar á meðal talið upp kynferðislega misnotkun og andlegt ofbeldi. Þetta er alltaf hættan þegar sjálfskipaðir spámenn eiga í hlut og kemur æ meira inn á borð til okkar.” Rúna Jónsdóttir, fræðslu- og kynningarfulltrúi Stígamóta, kann- ast vel við að kynferðisofbeldi tengt trúfélögum komi inn á borð til hennar, en segir þau flest tilheyra íslensku Þjóðkirkjunni og henn- ar þjónum, enda sóknarbörnin langflest þar. „Kynferðislegt ofbeldi á sér því miður stað innan Þjóðkirkjunnar en hún er ekki undanskil- in öðrum starfsgreinum, þótt ætla mætti að þeir sem innan henn- ar starfa ættu að vera meiri fyrirmyndir en aðrir. Það er þó mikil- vægt að geta þess að misnotkun innan kirkjunnar er væntanlega ekki meiri en annars staðar og e.t.v. minni. Ég man líka eftir ein- stökum dæmum úr sértrúarsöfnuðum landsins. Ég get staðfest að konur og börn hafa sagt frá þvf hjá Stígamótum að þeim hafi ver- ið nauögað af kirkjunnar þjónum og í Guðs nafni og vilja. Kirkjunn- ar menn eiga auðvelt með að misnota aðstöðu sína þótt það heyri sjaldgæfum undantekningum til að þeir nýti sér það, sem betur fer.” Hún segir flest kynferðisbrotanna framin án nokkurra vitna og sum í nafni trúar. Því sé oftast orð á móti orði þegar kemur til kasta dómstóla. „En níutíu prósent þess kynferðisofbeldis sem kemur inn til okkar er aldrei kært, einfaldlega vegna þess að fórn- arlömbin vilja það ekki og vita jú að fæstar kærur leiða til dóms- fellinga. Þau fáu mál sem kærð eru eru ósjaldan felld niöur vegna skorts á sönnunum. Því ganga þessir ofbeldismenn um með óflekkað mannorð og enginn veit hvaóa eðii þeir hafa að geyma." Þórdís Lilja Gunnarsdóttir er blaóamaður Skýja. Hún var fermd í Bústaðakirkju. 38 SkÝ ( JESÚ NAFNI

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.