Ský - 01.06.2002, Qupperneq 48

Ský - 01.06.2002, Qupperneq 48
Ljósmyndir: PÁLL STEFÁNSSON Lífið slær annan og mannlegri takt í Madríd en flestum öðrum stórborgum eins og Jón Kaldal komst að þegar hann lagði tand undir fót og ferðaðist án fyrirheits um þröngar götur spænsku höfuðborgarinnar, heimsótti stórfengleg listasöfn og sá knattspyrnusniltinga Reat Madríd í návígi. Það fyrsta sem ég tók eftir var augnaráð fólksins úti á götu. f stórborgum foróast fólk venjulega að horfa í augun á ókunnugum. Það gengur áfram eins og vagnhestar með blöðkur fyrir augunum og í neðanjarðarlestinni les það blað eða bók eða horfir í kjöltuna á sér. En ekki í Madríd. Þar mætir fólk óhikað augnaráði manns eins og tíðkast í litlum bæjum og þorpum og við fslendingar þekkjum reyndar svo vel (það hefur stundum verið sagt að maður geti alltaf þekkt íslending á götu í útlöndum; hann er sá sem horfir í augun á þér). Þetta afslappaða, vinalega viðmót Madrídar-búa er í raun lýsandi fyrir höfuðborg Spánar. Þótt ríflega fimm milljónir manna búi í borginni og úthverfum hennar sko- rtir hana sem betur fer hraðann, stressið og harðneskjuna sem einkennir svo margar aðrar borgir af svipaðri stærð. Og einmitt þetta gerir Madríd svo heillandi fyrir ferðalanga. Museo Del Prado, Centro De Arte Reina Sofía, Santiago Bernabéu, Plaza de la Cibales og Las Ventas, það er yfirdrifið nóg af stórkostlegum söfnum, fallegum byggingum og öðrum hefóbundnum ferðamannastöðum í Madríd, en þegar maður heimsækir borgina á maður ekki síður að leggja sig eftir andrúmslofti og takti lífsins hjá innfæddum; slaka á, rölta á milli bara og veitingahúsa sem virðast vera óendanlega mörg (þau eru reyndar yfir 17.000 talsins, var mér sagt). ÞÆR ERU GJARNAN bornar saman, Madríd og Barcelona, þessar tvær drottningar spænskra borga og Barcelona sogar yfirleitt til sín stærsta hluta sviðsljóssins, enda afbragðs skemmti- leg borg með sínum stásslegu Römblum, glæsilegum Gaudí-byggingum og Miðjarðarhaf- sströndum. En í samanburði við Madríd er Barcelona mun alþjóðlegri og því Ifkari öðrum evrópskum stórborgum. í Madríd skynjar maður að ræturnar liggja dýpra og maður hefur á til- finningunni að þar komist maður frekar í snertingu við spænsku þjóðarsálina. TILVINSTRl: Séð frá Cibales-torginu í áttina að Puerta del Sol og Gran Via. 46 SKÝ MEÐ HÆGÐ tniiii
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.