Ský - 01.06.2002, Síða 58

Ský - 01.06.2002, Síða 58
RNGRN R5TRR » Nokkur hnitmiðuð ráð Þaö er ekki einfalt verkefni að velja ilmvatn handa konu. Fyrir það fyrsta er úrvalið nán- ast yfirþyrmandi og í öðru lagi er það sérstök kúnst að finna út hvaöa ilmur hæfir - eða klæöir - hverri og einni konu. Ekki láta þér detta í hug eitt augnablik að falleg, glæsilega innpökkuð ilmvatnsflaska sé allt sem til þarf. Að láta konu og ilmvatn passa saman krefst töluverðrar útsjónarsemi, jafnvel leynilög- reglustarfa. Áður en haldið er af stað í snyrtivöruverslunina er sniðugur leikur að rannsaka svo lítið ber á baðskápinn eða snyrtiborðið hennar, ef á annað borö eru tök á því; þaö er ef konan sem á að fá ilmvatniö er það nátengd þér að þú þurfir ekki að brjótast inn á heim- ili hennar. Skráðu niður nöfnin á ilmvatnsglösunum sem minnst er í og einnig á hinum sem eru nánast full. Þetta tvennt gefur góða vísbendingu um hvað konunni líkar og hvað henni líkar ekki. Farðu því næst með listann í snyrtivöruverslun. Auðveldasta leiöin er að kauþa áfyllingu af uppáhaldsilmvatninu hennar. En auðveldustu lausnirnar vekja einhvern veginn aldrei jafnmikla lukku og þær frumlegu og óvæntu. Með listann að voþni, ásamt upplýs- ingum um aldur, hárlit, húðgerð og áhugamál konunnar, er hægt að velja með aðstoð sér- þjálfaðs afgreiðslufólksins ilmvatn sem miklir möguleikar eru á að falli konunni í geð og afli þér að auki priks fyrir sérstaka smekkvísi. Ef aðgangur þinn að baðherbergi konunnar er hins vegar með þeim hætti að þú getur með engu móti komist í tæri við þau ilmvötn sem hún á í fórum sínum - og gjöfin á ef til vill einmitt að vera til þess fallin að afla þér slíks aðgangs - þá eru hér fáein ráð: Ef hún á fleiri pör af skóm en potta og pönnur og vill frekar boröa úti en næra þig með heima- gerðum mat, skaltu slá um þig með þekkingu þinni á tískuheimin- um og færa henni svalan ilm sem heitustu tískuhönnuðurnir hafa sent frá sér: til dæmis Ef hún er þessi heilþrigða týpa sem er alltaf í sundi, spinning eða úti að skokka skaltu leita að fersku ilmvatni sem hefur orðið eau í nafninu eða einhverju með sítrónuilmi: til dæmis Calvin Klein Truth, Ralph frá Ralph Lauren, Coco Mademoiselle frá Chanel eða Thierry Mugler Angel Innocent. Fyrir þær ihaldssomu, eða segjum frekar þær sem eru fýrir hið klassíska, er tilvalið að kaupa til dæmis Svo er auðvitað alltaf sá einfaldi möguleiki fyrir hendi aö lykta af ilmvatninu sjálfur og athuga hvort það minnir þig á hana. 56 SKY Hvernig velja skal ilmvatn fyrir konu

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.