Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 6

Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 6
Gefið út annan hvern mánuð fyrir farþega Flugfélags íslands og aðra íslendinga ANNA KRISTINE HEFUR ORÐIÐ ... að gera upp við sig hvaða hlutverk hún vill leika. Henni hefur ekki verið boðið að leika í stórmynd. Tilboðið stendur um hlutverk iífsins. Vill hún vera fyndin, einlæg, beitt, reið, sár eða sátt? Hlutverkaskipti voru meðal fyrirlestra sem Edda Björgvinsdóttir leikkona flutti á námskeiðinu „Ný og betri kona" í Albir á Spáni. Þangað héldu níutíu konur, hver í sínu hlutverki. Nokkrum sinnum áður hef ég farið sem blaðamaður með hópum kvenna, fylgst með þeim að störfum og skrifað greinar um ferðirnar. Þessi ferð var allt öðruvísi því á námskeiðinu var unnið með tilfinningar og þar greindu margar kvennanna frá sínum dýpstu leyndarmálum. Þau verða áfram leyndarmál. Hlutverki blaðamannsins lauk á því sekúndubroti sem konurnar opnuðu hjarta sitt. Við erum sífellt að skipta um hlutverk. Metsölubókin 11 mínútur eftir Paulo Coelho er byggð á sannri sögu vændiskonu, sem kemst gegnum starf sitt með því að bregða sér í alls konar hlutverk: „Förum með gát, núna bregð ég mér í hlutverk vændiskonu, vinkonu eða skilningsríku móðurinnar, þótt innra með mér sé ég dóttirin sem þarf ástúð ..." Sjálf leik ég mörg hlutverk á dag. Ég byrja mína daga á að vera í hlutverki læknaritara, konunnar sem veit að „hvað tungan meiðir er torvelt að lækna". Ég get ekki - má ekki - og vil ekki - segja neinum frá því sem ég upplifi í því hlutverki. Hinn hluta vinnudagsins skrifa ég nær eingöngu það sem fer fyrir sjónir almennings. Þá er ég í hlutverki blaðamannsins, þess sem hlustar, spyr og skráir. Blaðamaðurinn og læknaritarinn eru afar ólíkar konur. Milli þessara tveggja hlutverka leik ég hlutverk dótturinnar, móðurinnar, vinkonunnar, systurinnar, frænkunnar, nágrannans, fyrirlesarans ... Það getur verið lýjandi að skipta sér milli hlutverka; leika kannski átta mismunandi hlutverk á sólarhring. Þess konar lífi lifum við flest. Á námskeiðinu kenndi Edda Björgvins okkur meðal annars það að við getum sótt hlutverkin sem við viljum vera í. í stað þess að vera pirraða, þreytta mamman get ég einfaldlega brugðið mér í hlutverk glaða fyrirlesarans sem nýtur þess að segja frá föðurlandi sínu. Fýlupúkinn getur vikið fyrir húmorísku konunni — það er mitt að velja. Hugsið ykkur hvað það verður gaman að lifa þegar við höfum vanið okkur á að skilja leiðinlegu hlutverkin eftir heima. Þegar við sækjum markvisst þá manneskju sem okkur sjálfum líkar best við því það er næstum öruggt að það er manneskjan sem öðrum líkar við. Hlutverkið sem þó hentar hverri manneskju best er að geta verið hún sjálf. Það eru stundirnar þegar við sitjum með þeim sem við treystum fullkomlega, getum sagt sannleikann, getum sagt frá leyndarmálum okkar, tekið út úr lífsreynslubankanum og deilt með öðrum án þess að hugsa: „Hvað ætli hann/hún haldi um mig?" Ég hef verið svo lánsöm síðasta ár að hitta slíkt fólk. Það er fátt sem er meiri hreinsun fyrir sálina en að geta sagt það sem manni býr í brjósti við þann sem ekki fellir dóma. Þann sem veit að „hvað tungan meiðir, er torvelt að lækna." cAmia %rÍ6tin& Ritstjórn og auglýsingar: Borgartúni 23, 105 Reykjavík, s. 512 7575. Dreifing: Heimur hf. s. 512 7575 netfang ritstjóra: annakm@heimur.is Útgefandi: Heimur hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Anna Kristine Magnúsdóttir Útlitshönnun: Helga Guðný Ásgeirsdóttir Ljósmyndir: Áslaug Svava Jónsdóttir Geir Ólafsson Pavel Horejsi Páll Stefánsson Skjár 1 & úr einkasöfnum Pennar: Auður Haralds Erna Margrét Kristján Jónsson Lízella Margrét J. Pálmadóttir Róbert Traustason Sif Arnarsdóttir Vilmundur Hansen Þórunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Vilhjálmur Kjartansson Framleiðslustjórn: Helga Guðný Ásgeirsdóttir Prentun: Oddi hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.