Ský - 01.10.2004, Qupperneq 12
SKÝ
12
MISJAFNT HVERNIG FÓLK METUR HÆFNI SÍNA
Guðný Harðardóttir hefurtuttugu ára reynslu í mannaráðningum.
Hún er ein af frumkvöðlum Liðsauka, fyrstu ráðningar-
þjónustunnar hér á landi, en hefur síðasta áratuginn rekið eigið
ráðningarfyrirtæki, STRÁ. Hún var fyrst spurð að því hvort konur
séu almennt ekki nógu góðir samningamenn.
„Þær eru misgóðar - rétt eins og karlmenn."
Hvað segja konur þegar þær heyra launaupphæð sem í boði er?
Spyrja þær hvort þetta sé réttlátt? Spyrja þær hvort karlmaður
í sömu stöðu fái sömu laun? Ef þeim er svarað satt og rétt, að
svo sé ekki, þá hvað? Taka þær samt við þeim launum sem í boði
eru?
„Það á við bæði konur og karla að hvorugt kynið „diskúterar"
réttlát laun í starfsviðtali. Þegar laun eru rædd er frekar að
vinnuveitendur spyrji um launaóskir umsækjandans og ef þær
hugmyndir samræmast engan veginn launum fyrir umrætt starf
dettur umsækjandinn oftast út."
Á umsóknareyðublöðum er oft spurt um launakröfur. Er áberandi
munur á svörum karla og kvenna?
„Það er misjafnt eftir stéttum. Algengara er að karlmenn séu
fyrirvinnur og bendi á að þeir geti ekki unnið fyrir lægri laun en
eínhverja tiltekna upphæð til að sjá fyrir fjölskyldunni. Það er mjög
misjafnt hvernig fólk metur sjálft sig og hæfni sína. Þroskaðri
einstaklingar hafa réttmætari sýn á eigin hæfni og getu og eru oft
betur í stakk búnir til samninga um kaup og kjör. Umsækjandinn
þarf líka að hafa marktæka reynslu og/eða menntun til að selja
vinnuveitandanum svo þeir nái samkomulagi."
Getur það beinlínis eyðilagt fyrir konu ef hún gerir of lágar
launakröfur? Setja forstjórar þá samasemmerki á milli; léleg
launakrafa = lélegur starfskraftur?
,Ég hef reyndar aldrei orðið vör við að umsækjendur um störf séu
með of lágar launakröfur; menn eru almennt vel upplýstir um
launin í landinu. Það er fremur að einhverjir hafi of háar hugmyndir
um kjörin en hitt. tslendingar eru sannarlega ekki með þrælslund.
Konur í æðri stjórnunarstöðum eru yfirleitt með sambærileg
laun og karlar í svipuðum stöðum. Hjá opinberum fyrirtækjum er
síður munur á launum kynjanna, þar ræður menntunin, reynslan
og lífaldurinn úrslitum. Það er hins vegar sýnilegri munur hjá
einkareknum fyrirtækjum og almennum starfsgreinum á launum
karla og kvenna.
Hvað með of háar launakröfur? Geta þær táknað of mikið
sjálfsálit?
„Já, en það veltur þó á bakgrunni viðkomandi, þ.e. menntun og
reynslu. Kona sem veit að hún uppfyllir þær kröfur sem sóst er eftir
gerir launakröfur í samræmi við það."
KONUR SPÁ í FLEIRA EN LAUNATÖLUNA
Hvað er það sem gerir að verkum að konur gera ekki háar
launakröfur? Eru þær með svona lágt sjálfsmat, þiggja þær það
sem að þeim er rétt, finnst þeim þær einfaldlega ekki meira virði
en þetta?
„Konur sjá oft hlutina í víðara samhengi, þær spá í starfið sjálft,
starfsumhverfið, starfsandann og slíkt, jafnvel staðsetningu
fyrirtækisins. Kona sem rekur heimili með annarri fyrirvinnu leggur
oft meiri áherslu á þessi atriði en launin sjálf."
Hvaða augum lítur þá kona sjálfa sig þegar hún leggur í
langskólanám? Að það geri ekkert til þótt hún verji svo og svo
mörgum árum og peningum í nám; hún muni hvort sem er aldrei
fá eins há laun og karlmaður? Eða leggur hún upp með mikinn
metnað, sem koðnar svo niður þegar kemur að því að fara að
vinna fyrir sér?
„Það er afar misjafnt á milli einstaklinga. Kona með langskólanám
og marktæka starfsreynslu gerir kröfur um laun í takt við það."
Tökum dæmi af fólki sem er að vinna við það sama. Þegar konan
VEIT að karlmaðurinn er að gera nákvæmlega sömu hluti og hún,
hvers vegna sættir hún sig þá við lægri laun fyrir sömu vinnu?
„Laun eru yfirleitt trúnaðarmál og því erfitt að gera samanburð á
launum í fyrirtækjum. Ég veit þess þó dæmi að kona var rekin úr
starfi eftir að hún komst að því að samstarfsmaður, karlkyns, var
með hærri laun fyrir sambærilegt starf. Að mati yfirmanns var um
trúnaðarbrest að ræða."
Er misjafnt að semja við konur, eftir því hvort þær eru fyrirvinnur
eða ekki?
„Já, sannarlega. Kona, ein fyrirvinna, hefur ríkari þörf fyrir hærri
tekjur."
Þýðir nokkuð að ræða þennan eilífa „launamun kynjanna'
endalaust; þarf ekki einhver að taka af skarið?
„Konur sjálfar hafa á stundum sýnt linkind, sérstaklega ef þær hafa
aðra fyrirvinnu, eiga lítil börn og þess háttar. Fjölskyldan er sett i
fyrsta sæti að mæðra sið."
Heldurðu að yfirmenn skammist sín ekkert innst inni þegar þeir
eru að ráða fólk til starfa og vita að konan fær miklu lægri laun en
karlmaður við sömu störf?
„Ég held reyndar ekki að svo sé, veit um ótal dæmi þess að
vinnuveitendur hafi boðið konum áhugaverð störf og góð launakjör,
en konur sjálfar hikað vegna ábyrgðar og yfirvinnu þeirrar sem
fylgirt.d. ábyrgðarstörfum."^.