Ský - 01.10.2004, Side 14
■ > ■•••< «>» nytt...
PÓLSKA BÚÐIN í HAFNARFIRÐI
Stokrotka er nafn á litlu blómi, sem vex víða í Póllandi og Danmörku. Það er
eftirlætisblómið hennar Mariu Valgeirsson frá Gdynia í Póllandi, sem hefur
búið hér á landi í fimmtán ár. Maria saknaði pólsks matar, ekki ólíkt því
sem íslendingar í útlöndum sakna hangikjötsins, Ópalsins og lakkríssins.
Hún ákvað að gera eitthvað í málunum og í október í fyrra opnaði hún
verslunina Stokrotka á Hvaleyrarvegi í Hafnarfirði. Verslunin er yfirleitt bara
kölluð „Pólska búðin" manna á milli, en þangað hafa margir lagt leið sína
til að kaupa ekta, pólska vöru. Maria selur alls kyns niðursuðuvörur, snakk
sem framleitt er úr maís og því bæði fitu- og sykurlaust, pólskar pylsur,
skinku, dósamat og barnamat. Búð sem er vel þess virði að heimsækja ...
ÍSLENSKIR LOPAPEYSUBOLIR
Frábær hugmynd, öðruvísi jólagjöf! Er ekki kominn tími til að senda
eitthvað annað en leirkrús eða ullarteppi til vina og fjölskyldu erlendis?
Það er hægt að vekja athygli á íslenskri hönnun á margan hátt og
í versluninni IÐU í Lækjargötu er farið að selja boli með íslensku
lopapeysumynstri. Bolirnir eru óður til íslensku lopapeysunnar, þar sem
klassískt lopapeysumunstur er silkiprentað. Peysurnar eru tilvaldar fyrir
þá sem ekki þola ull - nú eða á sumrin þegar er of heitt til að vera í
lopapeysu. Ekki amalegt að sjá fólk af öllum þjóðernum spranga um með
íslenskt lopapeysumynstur á barminum!
SÆLKERABÚÐ í PERLUNNI
4. hæð. Til hægri. Kaffiterían. „Gourmet shop" stendur á skilti fyrir ofan
salatbarinn. „Sælkeraverslun"? Salatbar??? Nei - beygja til hægri og
sjá: Þarna blasir við í hillum alls kyns sælkeravarningur, meðal annars
graflaxsósur sem matreiðslumeistarar Perlunnar hafa búið til, krydd, lax,
humar og annað góðmeti. Þarna er líka hægt að kaupa eldhúsáhöld af
öllum gerðum og er ekki nokkur vafi á því að sósurnar hætta að fara í kekki
þegar maður notar áhöldin sem alvörukokkar nota! - Og vel á minnst:
í framhaldi af sælkerabúðinni taka við hillur sem geyma muni tengda
íslensku jólahaldi...
KERTASLÖKKVARI KNUDS
Fólk þarf ekki endilega að vera sérlega rómantískt til að njóta þess að
kveikja á kertum þegar rökkva tekur. Danski arkitektinn Knud Johansen er
einn hinna rómantísku sem veit fátt notalegra en sitja við kertaljós í góðra
vina hópi, en honum finnst ekki eins skemmtilegt að ganga um húsið og
blása á kertin í lok góðs kvölds! Þá kom honum í hug þessi frábæra lausn:
Kertaslökkvari sem sér um að engin eldhætta skapast.
Kertaslökkvarar Knuds eru framleiddir í gylltum og silfruðum litum
og eru þeim eiginleikum gæddir að þeir eyðileggja hvorki kertin né
kveikina, en það mun hafa verið helsti galli forvera þessa slökkvara.
Hann er einfaldlega settur á þann stað á kertinu sem maður heldur
að dugi það kvöldið og sjá: Þegar kveikurinn kemur niður að
slökkvaranum, leggur hann takkana yfir kertið hægt og hægt og slekkur
logann. Ekki amaleg eign þegar aðventan gengur í garð og við förum að
hafa kveikt á aðventukransinum!
Ef þið viljið sjá myndrænt hvernig þessi frábæra uppfinning virkar, bendir
SKY á slóðina: www.lyseslukker.dk
Slökkvararnir fást í öllum helstu blómabúðum og í Tékk-Kristal