Ský - 01.10.2004, Qupperneq 20

Ský - 01.10.2004, Qupperneq 20
Hvei* maduvinn? JAY LENO Stundum er maður eins og úti á þekju á kaffihúsi, í skólanum og í vinnunni, Fólk er að vitna í eitthvað eða einhvern sem ég hef misst af. Oftar en ekki voru þetta vangaveltur og endursagnir úr spjallþaetti Jay Leno, Maður er nefnilega vart viðræðuhæfur hafi maður ekki séð Jay Leno á Skjá 1. Allir virðast horfa á þáttinn, flestir kunna brandarana og jafnvel þeir sem hafa varla séð einn þátt vita a.m.k. hver maðurinn er. Samt virðist maður vita furðu fátt UM Jay Leno, enda sér hann um að taka viðtölin, ekki að fara í þau. Hann gerir miskunnarlaust grín að forsetum, ráðherrum, þingmönnum og stórstjörnum Bandaríkjanna og tekst yfirleitt að hitta naglann á höfuðið af einstakri og skemmtilegri kaldhæðni. En hver er þessi maður og hvernig varð hann svona frægur? GRÁTANDI GRANT James Douglas Muir Leno hóf feril sinn sem skemmtikraftur á næturklúbbum þar sem hann vílaði ekki fyrir sér að vinna allt að þrjúhundruð daga á ári. Ekki bara var hann þekktur sem grínisti heldur einnig sem mikill áhugamaður um mótorhjól og bíla, enda á hann í dag 30 bíla og 40 mótorhjól! Þátturinn „Tonight Show with Johnny Carson" varfyrir löngu orðinn álíka fastur í sessi og Kastljós hér á Fróni og þegar Johnny ákvað að víkja úr stólnum fyrir aldurs sakir þótti erfitt að fylla það skarð. Þó komu tveir sterklega til greina, Jay Leno og David Letterman. Baráttan var mjög hörð því þeir þóttu jafnlíklegir. Letterman hafði verið með þátt á eftir Johnny Carson á sömu stöð en þar sem Leno hafði oft hlaupið í skarðið fyrir Carson hafði hann þvívinninginn og tókviðstólnum. CBS (helsti keppinautur NBC sjónvarpsstöðvarinnar, sem sendir út „Tonight Show") bauð þá Letterman að koma yfir til sín fyrir dágóða summu svo mér skilst að hann eigi fyrir salti í grautinn þótt hann hafi misst af tækifærinu að feta í fótspor Carsons (Kaldhæðin? Ég?l). Þetta var árið 1992 og jafnvel þó að Letterman fengi Emmyverðlaun fyrir bestu þætti næstu árin var það kærkomið þegar Jay loksins fékk styttuna árið 1995. Það hefur væntanlega ekki skaðað áhorfið það árið að hann fékkfyrsta sjónvarpsviðtalið við Hugh Grant eftir að hann var gripinn með vændiskonunni Divine. Fram að því hafði Letterman yfirleitt fengið meira áhorf en Jay Leno, nema þegar „sérstaka gesti bar að garði" eins og við íslendingar segjum, eins og fyrrnefndan Hugh Grant eftir jafnmikinn „skandal"! Ekki sakaði að Hugh Grant fór að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.