Ský - 01.10.2004, Page 24

Ský - 01.10.2004, Page 24
MÁ EKKERT BORÐA SEM ER GOTTIDESEMBER? Jólin eru tími aukakílóanna. Flestir virðast bæta meira við sig í þessum mánuði en alla aðra, enda ærin ástæða til. Smákökurnar, jólaglöggin, hangikjötið, jólaölið og nammið flæðir á borðum landsmanna allan mánuðinn og oft rúmlega það. Og þar liggur einmitt vandamálið. Fólk er að leyfa sér allt, í öll mál, allan mánuðinn! Það er því ekki furða þótt vigtin sýni meira í byrjun janúar en hún gerði í nóvember. Hvað er þá til bragðs að taka? Á að neita sér um allar kræsingarnar sem eru aðeins á boðstólum í jólamánuðinum? Alls ekki! Fólk þarf einfaldlega að vera meðvitaðra um það sem það lætur ofan í sig. Desembermánuður er ekki undanskilinn þegar kemur að mataræðinu, þótt margir myndu eflaust óska þess. Ef mataræðið er slæmt bitnar það á manni sjálfum í janúar, hjá sumum einnig í febrúar, hjá öðrum fram í mars og enn öðrum jafnvel lengur! Þeir sem stunda reglubundna hreyfingu og lifa á hollri fæðu leyfa sér flestir einn svindldag í viku. Það er því sjálfsagt að fylgja þeirri reglu í desember eins og alla aðra mánuði ársins. Ef sex dagar vikunnar eru hollir og góðir er það gott fyrir líkama og sál að fá smáverðlaun í lok vikunnar. Að auki nýtur maður þess matar enn betur ef maður hefur þurft að hafa aðeins fyrir því að fá hann. Frá Þorláksmessu til nýársdags er sjálfsagt að leyfa sér að njóta þess sem býðst. Ein vika af 52 skemmir ekki þann árangur sem þið hafið náð með líkamann. Hins vegar geta 6-8 vikur samfleytt gert það! Hvað erbetra en að vakna á nýársdag og hafa ekki þurft að strengja þess heit við áramót að þurfa ekki að ná heilum 15 kílóum af sér, eingöngu vegna þess að þú náðir að koma hreyfingu og góðu mataræði inn í þétta dagskrá desembermánaðar? Desember verður ekkert síðri þó að maður hreyfi sig 2-3 sinnum í viku og passi sig að borða ekki smákökur í öll mál. Eitt er þó víst; janúar verður léttari! 'Ráhert Trawstmcn uát meim um matai'æði en aðrír &em vinna fyrír STý. 'Pesmegrta er alltaf leitað í aiskuhanka fian&, &á'&taklega nú þegar & máJiökubak&tiirin 11 fer að fiefja&t...

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.