Ský - 01.10.2004, Side 28
SKÝ
28
KÖKUGERÐARMEISTARINN ÞORMAR
vanur óvæntum uppákomum..
Fólk sat fyrir framan sjónvarpstækin í vor og það mátti sjá tár í augum margra ... Allt í
lagi, kannski ekki karlmanna, en þeir sáust nú samt nokkrir fyrir framan skjáinn. Það
var ekki verið að tárfella yfir því að ísland væri að tapa enn einum fótboltaleiknum.
O, nei, það var verið að gráta yfir fegurð og rómantík! Friðrik Danaprins var að kvænast
hinni undirfögru Mary og við hérna heima á í^róni vissum nákvæmlega hvers konar
terta biði þeirra í veislunni!
Þormar Þorbergsson, kökugerðarmaðurinn káti, í Café Konditori Kopenhagen á
Suðurlandsbraut, hafði nefnilega fengið uppskriftina hjá kollegum sínum í Kóngsins
Kaupmannahöfn og gefið okkur landanum kost á að bragða á henni. En hvað?
Borðuðum við bara brúðartertuna í kringum brúðkaupsdaginn?
Xjéáinynd Táll Stefánsóon
Hvað er í þessari köku sem gerir hana svona góða?
„Vanilla, makkarónur, hindber og ekta rjómi; klassísk dönsk hráefni,
annars er það nú pínu leyndó..."
Heldurðu að fólk hafi kannski keypt meira af þessari svokölluðu
„prinsaköku" til að finna til meiri samkenndar með danska
brúðarparinu?
„Já, sennilega sumir, en ég held að íslendingar hafi mjög mikinn áhuga
á Danmörku og öllu sem danskt er, það hafa svo margir íslendingar
búið í Danaveldi."
Hvers konar kökur eru mest keyptar hjá þér?
„Desertterturnar okkar eru mjög vinsælar og fólk hefur þær mikið eftir
að hafa búið til og borðað góðan mat eða bara þegar það á von á
gestum. Fólkkaupirfyrst og fremstterturfyrir brúðkaup, skírnarveislur,
erfidrykkjur og afmæli en svo er fólk farið að kaupa tertur og nota
sem tækifærisgjafir."
Misjafn er smekkur manna. Ég verð með nokkur kaffiboð og veit
ekkert hvað ég get boðið upp á. Nú leita ég til þín.
Hvað býð ég: a) Kínverjum b) Bretum c) Finnum d) frænku minni að
austan, sem hefur aldrei borðað neitt nema heimabakað?!
„Við sérhæfum okkur í danskri og norður-evrópskri kökugerð, það
hefur Islendingum líkað mjög vel. Flestum þjóðum finnast súkkulaði
og rjómi góður. Ég geri ráð fyrir því að flestir útlendingar sem ferðast
til íslands vilji smakka eitthvað íslenskt, til dæmis skyrmús-tertu eða
gott íslenskt rabarbara-pie og svo gerir íslenskt brennivín flesta
útlendinga glaða og káta!
Fyrir frænku þinni að austan myndi ég kynna nýjustu tískusveiflur í
evrópskri kökugerð og „blow her mind"!
Hvaða nýjungar ertu með núna?
„Við erum að búa til kryddblöndur sem fólk notar til að laga jólaglögg
og danskar eplaskífur eru orðnar talsvert vinsælar hjá okkur. Svo
verðum við við með ýmsar nýjungar í konfekt- og súkkulaðigerð um
jólin".
Jólin nálgast og flestar húsmæður hafa í nógu að snúast. Hvað
geturðu selt þeim sem hver húsmóðir getur verið stolt af að setja
sem eftirrétt á jólaborðið?
„Ris a l'amande, danskur jóladesert, er alveg frábær í jólaboðið.
Þetta er vinsælasti jóladesert Dana og gerir ávallt mikla lukku hjá
íslendingum þegar ég hef borið hann fram."
Þarf að panta slíkt með löngum fyrirvara?
„Svona tveggja til þriggja daga fyrirvari á yfirleitt að vera nóg."
Heldurðu að það sé liðin tíð að húsmæðrum finnist ekkert nógu
flott á veisluborðið nema þær hafi búið það til sjálfar?
„Já, ég held að það sé liðin tíð, fólk í dag er orðið svo opið og spennt
fyrir nýjungum og held lika að fólk hafi mun minni tíma nú en áður til
að baka sjálft."
Setjum svo að ég eigi von á 15 manns í jólaboðið, hafi pantað hjá
þér tertu, en uppgötvi mér svo til skelfingar á Þorláksmessu að
ættingjar mínir frá útlöndum ætla að koma mér á óvart og verða hjá
mér um jólin. Þá þarf ég 30 manna tertu! Geturðu bjargað því? - En
ef ég myndi nú hringja kl. 13 á aðfangadag???
„Við gætum örugglega hjálpað þér, við undirbúum okkur mjög vel
fyrir jólin og erum ekkert óvön því að taka á óvæntum uppákomum.
Á aðfangadag erum við með opið til kl. 14 og það yrði þá ekki í
fyrst skipti sem við stæðum frammi fyrir þessu en við myndum að
sjálfsögðu fórna okkur fyrir málstaðinn."
Hvers konar kökur verðið þið hjónin með á ykkar borðum á
jólunum?
„Þessi jól verða danskir tengdaforeldrar minir á Islandi og þau koma
yfirleitt með fullar ferðatöskur af gourmet-jólamat, osta, kjöt og
rauðvín og efast ég um að það verði breyting á því ekki þá nema
tollverðirnir gómi þau. Eftirrétturinn verður að sjálfsögðu ris a
l'amande".
Ertu mikið jólabarn, Þormar?
„Nei, ekkert sérstaklega. Ég borða góðan mat, hvíli mig og er í faðmi
fjölskyldunnar sem er náttúrlega mjög gott."
lízelkt mar hytjuð að fletta uppskriftarbékum
þegar fubv uppgÁUnaði að fljádegra uderi að fudngja
í kökugerðannei&tarantv...