Ský - 01.10.2004, Page 30
m
\ liVlt'Klll 3 h
1! .- 'íM 11111 l*J "1111
Hver man ekki eftir X-kynslóðinni? Með breyttum tímum hefur
sprottið fram ný kynslóð sem heitir því frumlega nafni XL-kynslóðin
(Generation XL). Eins og nafnið gefur til kynna er hér verið að
ræða um börn og unglinga sem eru of þung og því skírskotað
til fatastærðarinnar XL (Extra Large). Hvað er það sem einkennir
þessa kynslóð og hvernig er hún tilkomin?
Með sífellt minni hreyfingu og óhollara mataræði eru börn og
unglingar föst fyrir framan sjónvarpið eða tölvuna meirihluta dags
og það að fara út að leika heyrir sögunni til. „Eigum við að fara
út í fótbolta?" „Til hvers? Ég var að fá FIFA 2005 tölvuleikinn fyrir
PlayStation2. Hann er svo raunverulegur að við þurfum ekkert að
fara sjálfir í fótbolta." Þetta er staðreyndin í dag. Tölvuleikirnir eru
svo raunverulegir að það er erfitt að greina á milli þeirra og beinnar
útsendingar frá enska boltanum. Annað sem minni hreyfing leiðir
til eru sífellt minni samskipti milli barna. í stað þess að börnin séu
að hittast úti á fótboltavelli og eiga venjuleg samskipti meðan á
leiktímanum stendur húka þau frekar ein inni með fjarstýringuna
í hendi. Börn niður í sex ára aldur eru komin með GSM-síma og
eru farin að senda SMS í staðinn fyrir þessi gömlu góðu „Viltu vera
memm?" símtöl.
Hvað mataræðinu viðvíkur eru börn það mikið ein á þessum nýju
tímum að foreldrarnir sjálfir vita varla hvað þau eru að setja ofan í
sig. Þegar þau koma heim úr skólanum (á milli þess sem kennarar
eru í verkfalli), fá þau sér varla sjálf ávöxt, jógúrt eða ristað brauð.
Nei, þess í stað velja þau sér ís með súkkulaðisósu, snakk, snúða
eða annað sykurmikið og feitt fæði. Þessir hröðu tímar sem við
lifum á kalla á hraða matargerð og viðskipti á skyndibitastöðum
hafa aldrei verið meiri. Stærðirnar stækka líka alltaf og nú geta
krakkarnir úr XL-kynslóðinni ekki aðeins keypt fötin sín í þeirri
stærð, heldur einnig máltíðirnar sínar.
Ef ekki verður spornað við þessari þróun er ekki bjartra tíma
að vænta. Við vorum X-kynslóðin. Nú eru börnin okkar af XL-
kynslóðinni. Sjáum við fram á að barnabörnin verði XXL-kynslóðin
og barnabarnabarnabarnabörnin verði kennd við XXXXXL-
kynslóðina? Eru engin takmörkfyrir þessari vitleysu?
‘tíafmdiuinn, IRfhatTrau&ta&an, er af X-kyn&láðinni...