Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 37
MARINÓ MÁR MAGNÚSSON, LÖGREGLUMAÐUR:
Lögregluþjónar eru auðvitað alltaf á vakt, hafa ekki einu sinni verkfallsrétt, og því
ekki erfitt að finna lögreglumann sem hefur unnið um jólin:
„Þegar ég byrjaði í lögreglunni fannst mér þetta yfirleitt ekkert mál, jafnvel bara
gaman," segir Marinó. „En núna, þegar ég er kominn með fjölskyldu, breytast hlutirnir.
Stundum fáum við að mæta seinna eða fáum aðeins að skreppa heim meðan við erum
á vakt en það er samt ekki það sama. Þá þarf maður samt að vera til taks, í búningnum
og með talstöðina við höndina. Ég hef nú ekki fundið fyrir mikilli heimþrá þegar ég er
á vaktinni á jólunum, en vissulega er hugurinn hjá fjölskyldunni á svona kvöldum."
En hverjir lenda í því að þurfa að vinna um jólin?
,,Á þessum vinnustað eru sólarhringsvaktir allt árið og í öllum hópum er fólk á öllum
aldri, svo það er ekki eins og þeir yngstu eða nýliðarnir lendi í því að vinna og þá skiptir
engu hvort það eru jól eða aðrir hátíðisdagar. Oft býðurfólk sig fram til vinnu eða skiptir
á vöktum, sérstaklega þeir sem eru ekki með börn. Þeir vilja þá lofa fjölskyldufólkinu frekar að vera heima. Yfirleitt reynir þó enginn að
komast undan því að vinna."
En hvernig skyldi stemningin vera í vinnunni?
„Stemningin á jólunum er alltaf svolítið sérstök. Það er nú svo að þó að desembermánuði fylgi streita hjá flestum okkar virðist yfirleitt vera
létt yfir mönnunum á vaktinni og stutt í brosið og góða andann. Svo er maturinn yfirleitt góður og alls konar kransæða-tertur í boði allan
sólarhringinn. Sem betur fer er oftast minna að gera um jól heldur en aðra daga, en vissulega geta líka komið upp leiðinleg mál."
INGA GUÐMUNDSDÓTTIR VINNUR í FRÍHÖFNINNI í FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR:
,,Það er náttúrlega öðruvísi að vinna hér í fríhöfninni á jólunum en venjulega. Það er allt önnur
stemmning; alls ekki alslæmt, þótt vissulega sé alltaf sé best að vera heima hjá ættingjum og vinum
um hátíðirnar," segir Inga. „Við vinnum á vöktum og fólkið hér vinnur því annaðhvort um jól eða
áramót. Þó getur komið fyrir að fólk þurfi að vinna bæði jól og áramót ef það koma upp veikindi eða
annað óvænt."
En eru einhverjir sem beinlínis óska eftir því að vinna á hátíðisdögum?
,,Það kemur sjaldan fyrir að einhver bjóði sig fram til vinnu á hátíðisdögum, en áður fyrr gerðist
það reyndar að karlmennirnir buðu sig fram til að konurnar fengju að fara heim til að undirbúa
jólamatinn."
Og hvernig er stemningin í Fríhöfninni þegar jólin eru hringd inn?
,,Hún er með rólegra yfirbragði. Yfirleitt er reynt að komast af með færra starfsfólk en það ríkir mikil
tilhlökkun og samkenndin er mikil meðal okkar. Einnig er alltaf jólamatur í mötuneytinu yfir hátíðarnar.
Eg finn þó alltaf fyrir heimþrá þegar ég þarf að vinna ..."
SKÝ
37
UNNSTEINN JÓNSSON, ÖRYGGISVÖRÐUR Á VOGI:
Unnsteinn hefur unnið sem öryggisvörður á Vogi í tæp 25 ár. Þar af leiðandi vinnur
hann alltaf annaðhvort um jól eða áramót enda ekki auðvelt að skipta um næturvaktir
þar sem tveir menn skipta þeim með sér og þær halda fastri áætlun. Venjulega hittist
það því þannig á að Unnsteinn hefur unnið þrenn til fern jól í röð, en í staðinn fengið frí
jafnmörg jól á eftir. En hvernig finnst honum að vinna um jólin?
„í dag þykir mér þetta ekki svo leiðinlegt, en þegar ég var með fjölskyldu var hugurinn
heima við hjá konu og barni. Núna ersonur minn uppkominn og konan mín er látin, svo
það er bara ágætt að vera í vinnunni á jólunum," segir Unnsteinn.
En hvernig er stemningin á aðfangadagskvöld á Vogi?
„Hér er yfirleitt rólegt og gott að vera, það er hátíðarmatur, matsalir starfsfólks og
dvalarfólks eru samliggjandi svo það borða allir saman. Við reynum að gefa sem flestum
frí á aðfangadagskvöld þannig að það er færra hjúkrunarfólk á vakt en aðra daga.
Það er ekki hlustað á messu nema stundum á jóladag og við höfum ekki sjónvarp. Reyndar fær fólk að sjá áramótaskaupið á gamlárskvöld
en það er eina undantekningin á árinu. Eftir kl. 17 á hverjum degi, þegar fastri dagskrá lýkur, má fólk spila ef það vill og sumir gera það
yfir hátíðarnar, en kl. 20.30 er AA-fundur eins og alla aðra daga, á þvi er engin breyting. Á aðfangadag mega fjölskyldur dvalarfólksins
einnig koma í heimsókn í tvær klukkustundir."
Hvað með jólagjafir?
,,Jú, dvalargestir mega fá gjafir frá fjölskyldu og vinum en einnig fá allir smápakka frá Vogi. Ég opna mínar gjafir reyndar oft áður en ég
mæti á vakt þar sem henni lýkur ekki fyrr en snemma daginn eftir."
SifcArnarádáttir erjúlíham, m innm meá fienni hýr líka jólabam að fmn
umhreyti&tíjálabam ímmar&kapi í hyrjun aðuentu ...