Ský - 01.10.2004, Síða 42
og gera ýmsa hluti sem ég hef ekki þorað áður, eins og að tala
frammi fyrir hópi fólks. Ég lagði minni áherslur á hreyfinguna og
breytt mataræði þegar ég kom hingað, en það breyttist heldur
betur! Þetta námskeið skilaði mér miklu í hugsuninni um lífið
framundan, að breyta lífsstílnum, borða hollari mat og hreyfa mig
meira."
S-IN ÞRJÚ - SÆTAR Á SJÖTUGSALDRI: SVANHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
SÆUNN SIGURSVEINSDÓTTIR OG SÓLEY SIGURÐARDÓTTIR.
Sæunn Sigursveinsdóttir var hressa konan í hópnum. Hún söng
og dansaði, spjallaði við alla og það geislar af henni kátínan. Hún
er 61 árs, vinnur á Hrafnistu í Hafnarfirði og á fjögur börn og níu
barnabörn: „Ég er hértil þess að láta mér líða vel og þetta hefur
verið mjög skapandi og gefandi. Að sumu leyti þurfti ég á meiri
sjálfsstyrkingu að halda, opna mig meira og deila með öðrum. Ég
lærði að vera glöð og var hlæjandi alla daga."
Æskuvinkona Sæunnar og jafnaldri er Svanhildur Guðmundsdóttir
sem starfar hjá sýslumanninum í Hafnarfirði, en þær vinkonur hafa
nokkrum sinnum áður ferðast tvær saman:
,,Ég ákvað að sækja þetta námskeið því mér leist svo vel á að fá í
einum pakka upplýsingar um hvernig maður getur bætt líf sitt með
því að lifa heilbrigðu lífi og hreyfa sig. Svo finnst mér óskaplega
gaman að velta fyrir mér aldrinum; hverju má búast við á næstu
tíu árum. Ég hef verið í kvenfélagi og öðrum félögum og þurft
að koma fram fyrir hópi og hafði því fengið prófraunina á það.
Samkenndin hér milli þessara kvenna er dásamleg. Ég kom sjálfri
mér kannski mest á óvart með því að geta sagt frá svolitlu sem
tilheyrði mér persónulega fram að þeim tíma; nokkru sem ég hélt
ég myndi alltaf halda fyrir mig."
Aðalheiður Benediktsdóttir, gjaldkeri í íslandsbanka, er 54 ára
móðir og kisumamma sem segist hafa lært að vera hún sjálf á þessu
námskeiði: „Ég hafði aldrei farið ein til útlanda fyrr, en frá því ég
heyrði fyrst af þessu námskeiði fannst mér ég verða að komast
á það. Mér fannst merkileg upplifun að vera í prógrammi sem
þessu, á stað þar sem ekkert truflar mann," segir hún. „Ahyggjur
af daglegu amstri voru í bið og það er óvanalegt að hafa heila viku
til að vinna í sjálfum sér og kynnast svona skemmtilegum konum."
Sóley Sigurðardóttir er frá ísafirði, 63 ára, fjögurra barna móðir og
á sjö barnabörn. „Það var snögg ákvörðun hjá mér að fara hingað,
en svona hafði ég aldrei gert fyrr," segir hún og bendir á að hún
sé aldursforsetinn í hópnum. „Mér fannst mjög skemmtilegt
og gefandi að vera hér og ég er undrandi á hvað allar þessar
ólíku konur náðu vel saman. Ég held ég fari að hugsa meira um
mataræði, hreyfingu og um lífið og tilveruna almennt. Jú, ég er
bara stolt af sjálfri mér að hafa farið þessa ferð. Maður verður að
fara að heiman til að finna hvað það er gott að koma heim."
Nú erum við allar komnar heim. Níutíu konur sem lögðu af stað í
ferð í leit að innra öryggi, meira heilbrigði og breyttari lífsstíl. Það
þarf enginn sem staddur var í Leifsstöð dagana sem við komum
heim að spyrja hvort við hefðum lært eitthvað í mannlegum
samskiptum og hvort við hefðum tengst vinaböndum á þessum
sjö dögum á Spáni. Bjargey og Edda réttu okkur verkfærin. Okkar
er að beita þeim á réttan hátt...
cAnna ‘Krvstine- náði að kama &jálfri sér á áuart. 'tíwn fár í
tikanusrækt ag- slákkti á far&ímanum...
„ÁHYGGJUR AF DAGLEGU AMSTRI VORU I BIÐ,” SAGÐl AÐALHEIÐUR
BENEDIKTSDÓTTIR.
m
Tl
Nú fá allir punkta í Vildarklúbbi lcelandair hjá Olís
sama hvort greitt er með korti eða peningum. Kynntu
þér málið á næstu Olísstöð eða á www.olis.is.
Olís - upphafið að góðri ferð.