Ský - 01.10.2004, Page 43
FYRIR OG EFTIR
6. NÓVEMBER - 6. FEBRÚAR 2005
Fyrir og eftir er heiti á sýningu sem opnuð var í
Ljósmyndasafni Reykjavíkuró. nóvember. Með þessum
titli er verið að skírskota til útlits, fyrirmynda eða
ímyndar manneskjunnar sem situr fyrir á Ijósmynd hjá
Ijósmyndara. Frá upphafi Ijósmyndunar árið 1839 hefur
verið leitast við að sýna manneskjuna sem fallegasta
á hefðbundnum andlitsljósmyndum og tekið mið af
tískustraumum hvers tíma.
Tilgangurinn með sýningunni er að velta fyrir sér þeirri
ímynd sem fólk skapar með Ijósmyndum,
fyrirmyndum og fegurðinni - hvað telst fallegt. Samtímis verður
ekki komist hjá þvíað Ijóstra upp „atvinnuleyndarmáli" Ijósmyndara
og jafnframt svipta hulunni af andlitinu og sýna andlitsmyndir
áður en Ijósmyndin er retússeruð eða fótosjoppuð og síðan eftir
breytinguna.
A sýningunni er jafnframt myndaröð þar sem sjá má þróun
tískustrauma í töku andlitsmynda frá 1900 til dagsins í dag. Einnig
verða sýndar baksviðsmyndir sem sýna fyrirsætur að störfum, þ.e.
þegar verið er að mynda þær.
I sýningarbæklingi er grein eftir Hermann Stefánsson bókmennta-
fræðing og rithöfund þar sem hann setur fram ýmsar hugleiðingar
um „Fyrir og eftir" en þar segir m.a.: „Hverju sætir þessi
löngun til að fegra mynd okkar? Áður en ijósmyndin kom til sá
portrettmálverkið um þetta, að sníða agnúana burt af andliti okkar,
slétta úr hrukkunum, grenna módelið og stækka á því brjóstin.
Hér mætti setja á mikið mál um hégóma og göfgun og svo mætti
líka andmæla því jafnharðan, spyrja: Hver er ekki hégómlegur?
Og benda á að fegurð - rétt eins og Ijótleiki - ristir ekki djúpt í
hörundið."
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð, 101 Reykjavík
Sími: 563-1790 Fax: 563-1799. Aðgangur ókeypis
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga frá kl. 10 - 16,
Sýningar eru opnar kl. 12 - 19 virka daga, kl. 13-17 um helgar
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
photomuseum@reykjavik.is