Ský - 01.10.2004, Síða 44
AikIui* Havalds vitltölundui* spyi*
HVER FÆR ÝSUSPORÐINN? Ilillí
Auður Haralds heldur áfram að leiðbeina fólki í leitinni að hinum eina,
rétta maka ... í síðasta tölublaði SKÝJA ráðlagði hún konum; nú er
röðin komin að karlmönnum. Hvor skyldi vera heppilegri: Sú sem
dansar magadans eða 600 króna konan?
Kvöld. í pottinum gárar ýsusporður kalt soðið. Hann er að fara til
spillis. í sjónvarpinu er endurtekið efni. Afnotagjaldið er að fara til
spillis. Þú horfir á vegginn. Líf þitt er að fara til spillis.
Það er á svona augnablikum sem menn taka skyndiákvarðarnir. Væri
þetta ekki allt annað ef mjúklima kona hefði borðað ýsusporðinn,
þvegið upp á meðan heimilisfaðirinn fylgdist með Kastljósi og
mætt til að sinna honum þegar endurtekna efnið silaðist upp á
skjáinn? Dansað magadans, nuddað herðar hans, laugað fætur
hans, kysst augnlok hans?
Án þess að skoða handritið að heppilegum síðkvöldum nánar,
hendir hann yfir sig úlpunni og anar á næstu veiðislóð. Sjaldan er
flas til fagnaðar.
Handritiðersvoforntaðþaðá heima íglerborði á Landsbókasafninu.
Rétt er að konur dansa magadans. Hann iðka þær til að styrkja
magavöðvana og temja línurnar. Ef þær dansa fyrir áhorfendur,
þá er það gegn greiðslu. Fái einhver að njóta lystisemdanna
endurgjaldslaust, þá eru það hinar konurnar í danshópnum. Engin
kona kemur heim úr vinnunni, matreiðir, þrífur og tekur síðan að
dilla sér. Konur eru hvorki eins fórnfúsar né sterkar og þær voru á
miðöldum. Segja má að konur í dag séu annað og afkastaminna
kyn. Eftir aðeins sextán stunda vinnudag eru þær gefnar fyrir að
stynja og hníga í stóla, ef þær liðast ekki bara alla leiðina út af.
Vera má, ef þetta er einstaklega eljusöm kona og óvenju fjörugt
Kastljós, að hún rísi upp og vindi lendarnar nokkra hringi. En hann
sér það ekki. Hann er frammi í eldhúsi að þvo upp. Nú tíðkast
verkaskipting á heimilum. Ef hann ætlar að tíðka eitthvað annað,
þá kemur það honum á óvart hvað skilnaðir ganga hratt fyrir sig.
Og hvað þeir kosta.
Vilji menn horfa á eitthvað fagurlimað líða mjúklega um húsakynnin
eftir kvöldmatinn, þá fái menn sér kött. Kettir liggja að vísu meira
fyrir en konur, en hringli maður þurrmatnum þeirra, þá rísa þeir
strax upp og renna á hljóðið af hrífandi yndisþokka. Margir menn
halda að konur líði yfir gólfið ef hringlað er smápeningum. Það
var líka á miðöldum. Nú þarf að láta skrjáfa í verðbréfum á góðu
gengi, bara til að þær líti upp. Þá horfa þær ekki ástleitnum augum
á mennina, heldur verðbréfin.
Þótt konur séu ekki eins vandaðar og þær voru á öldum áður má
samt hafa bæði gagn og gaman af þeim. Flestar eru þær mjög
vinnufúsar, þar eð þeim var sagt að heimavinnandi konur væru
bæði heimskar og heilasoðnar. Þær þeysa því á milli þriggja starfa
með glöðu geði og kaldpressaðan heila. Þegar þær loks koma
heim og eiga að annast manninn eru þær oft eins og undnartuskur.
Ástandið versnar eftir því sem á líður vikuna og í vikulok er hárið
orðið rytjulegt, húðin gráleit og baugarnirná niðurá bringu. Ef þær
hafa af að reiða fram einhvern mat seinni hluta viku má láta þær
borða annars staðar, svo menn þurfi ekki að horfa á óskapnaðinn
á meðan þeir borða.
Köttur heldur sömu góðu áferðinni alla vikuna. Það gerir hundur að
mestu líka, en þeim þurfa menn að sinna þegar þeir koma þreyttir
heim úr vinnunni. Konum þarf almennt ekkert að sinna, aðeins umla
hvort maturinn sé ekki að koma.
Jákvæði og neikvæði munurinn á tegundunum kemur skýrast fram
í sokkavanda karlmanna. Hundurinn étur sokka sem liggja á gólfinu
og bíða eftir kraftaverki. Kötturinn veiðir þá og tætir þá sundur.
Konan tínir þá upp. Hún urrar kannski á meðan, en það gerir
kötturinn líka á meðan hann drepur þá.
Hvað varðar umhirðu er kötturinn fyrirhafnarminnsta dýr jarðar. Ein
bólusetning á ári og tvær ormahreinsanir og hann er eins og nýr í
allt að 14 ár. Hundinn þarf sífellt að bursta og snyrta og aðgæta.
Hreinn og hraustur hundur er fullt starf og hann verður aldrei stór
og getur gert sjálfur.
Konuna þarf ekki að hirða. Hún sér um það sjálf í nokkrar stundir