Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 46

Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 46
MARTIN BENDA SELUR „EINA MEÐ ÖLLU“ í PRAG! OG VERÐUR VONANDI SENDIHERRA TÉKKLANDS Á ÍSLANDI í FRAMTÍÐINNI Það er örugglega fátt sem gerir Islendinga stoltari en það að hitta útlending sem talar málið okkar og elskar landið. Þannig líður einmitt mörgum sem hafa hitt Martin Benda, 21 árs Tékka sem fékk svo mikinn áhuga á íslandi þegar hann var unglingur, að hann innritaði sig í íslenskunám við Karlsháskóla í Prag. Á þeim fimm árum sem liðin eru frá því Martin hóf að læra íslensku hefur hann ekki látið sitt eftir liggja í að kynna landið okkar fyrir Tékkum. Hann er afkastamikill í Aðdáendaklúbbi öfgafullra íslandsaðdáenda í Tékklandi og starfar sem sjálfboðaliði hjá Nordica Café í Scandinavian house í miðborg Prag. Þar er meðal annars seld „íslensk pylsa með öllu“ en Martin hefur gert fleira til að vekja athygli á Islandi. Hann hannaði til dæmis T-boli með teikningum af útlínum íslands og Tékklands og selur þá til fjáröflunar fyrir endurútgáfu bókar eftir Þórberg Þórðarson. Þá eru ótaldar allar þær greinar sem Martin Benda hefur skrifað um Island í Norræn tíðindi, „Severské listy". £jásmy.ndir 'Paael ‘tíarej&i Hann heilsar mér á íslensku eins og gömlum vini og smellir kossi á kinn. Heillar strax frá fyrstu mínútu og ég sé að það er engum ofsögum sagt að þetta er elskulegur drengur. Svo er hann húmorískur og byrjar á að gera létt grín að sjálfum sér og íslandsáhuga sínum: „Ég er meira að segja kallaður „mörgæsin" af vinum mínum í Prag!" segir hann brosandi. Hann segir þeim það þó til málsbóta að þeir viti vel að mörgæsir sé ekki að finna á íslandi, þeim finnist bara fyndið hversu mikið hugur hans stefnir til Norður-Evrópu og geri þess vegna smágrín að honum. Martin getur ekki útskýrt hvers vegna hann hefur svo mikinn áhuga á íslandi. Foreldrar hans eru bæði arkitektar og hann segir flesta í sinni fjölskyldu vera tæknilega sinnaða - þangað til hann og systir hans komu til sögunnar: „Foreldrar mínir hefðu sennilega frekar viljað sjá mig læra stærðfræði, en hún er ekki mín sterka hlið," segir hann. „Systir mín, Hana, býr í New York en hún lærði „Internatinal Education" og fræði Afríkuríkja. Hún hefur því áhuga á Afríku og ég á Islandi ...I Ég fékk mikinn áhuga á sögu Norðurlandanna þegar ég var sextán ára, en þó einkum sögu Islands og sá áhugi hefur verið alveg stöðugur. Á þeim tíma þurfti ég að leggja drög að hvað ég vildi læra i háskólanum, þannig að ég fór í Karlsháskóla og lærði dönsku. íslenska er hins vegar aðeins kennd sem tómstundafag og þar heldur um taumana mikill íslandsvinur, Helena Kadecková, vel þekktur þýðandi í Tékklandi sem hefur þýtt margar íslenskar bækur yfir á tékknesku. í Tékklandi hafa verið þýdd mörg bókmenntaverk íslenskra rithöfunda. Þar er til dæmis að finna allt ritsafn Laxness þannig að ég er ekki sá eini sem hefur áhuga á íslandiI Ég lærði fyrst íslensku hjá Auði Loftsdóttur, sem var nemandi við Karlsháskóla í Prag." Hann segist telja áhuga Tékka á Norðurlöndunum stafa af því að Tékkar séu mikið fyrir ósnortna náttúru:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.