Ský - 01.10.2004, Síða 47

Ský - 01.10.2004, Síða 47
EIN MEÐ ÖLLU Á KAFFIHÚSI I PRAG! MARTIN NOTAR SS-SINNEP OG GUNNARS REMÚLAÐI „Samfélag Tékka í Prag, sem hafa áhuga á Norðurlöndunum , „ Nordic Society"er mjög öflugt og hefur marga meðlimi og svo erum við líka með „Club of lcelandic Fanatics", aðdáendaklúbb íslands, sem var stofnaður af Jan Burían, sjónvarpsmanni og vísnasöngvara og í honum eru í kringum tvö hundruð félagsmenn." frá prag í vatnaskóg Þegar heimasíða Martins er skoðuð kemur í Ijós að hann hefur lesið fjöldann allan af íslenskum bókum sem þýddar hafa verið yfir á tékknesku. Hann segir að útilokað sé að segja hvaða bók sér finnist „best" eða „skemmtilegust" en viðurkennir þó að íslandsklukkan höfði sterkt til sín: „Eg hafði sérstaka unun af að lesa íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness og lifði mig inn í söguna. Mér fannst líka mikilsvert hversu mikið er af sögulegum staðreyndum í bókinni, enda lá góð heimildavinna að baki. Ég hef mjög gaman af fleiri bókum Laxness, eins og Gerplu og Sjálfstæðu fólki. Ég hef lesið bækur eftir fleiri íslenska rithöfunda, eins og Guðmund Kamban og Gunnar Gunnarsson, og svo hef ég verið áskrifandi að lceland Review í gegnum Netið." Pegar ég bendi honum á að það sé sennilega leitun að jafnöldrum hans á íslandi sem hafi lesið þessar bækur svarar hann að bragði: „Já, en það er eðlilegt að ég hafi lesið meira af íslenskum bókum en islenskir jafnaldrar mínir. Svona grípa áhugamálin mann og ég hef ekki lesið eins mikið eftirtékkneska rithöfunda! Ég var 16ára þegar ég byrjaði í íslenskunáminu og las íslenskar bækur. Hins vegar hafði ég aldrei komið til íslands svo ég sendi tölvupóst á nokkur íslensk netföng sem ég fann, sagði frá sjálfum mér og áhuga mínum á landinu og að mig langaði að fá vinnu á íslandi. Einhverra hluta vegna sendi ég bókasafninu á Akureyri eitt bréf ...I Það bréf skrifaði ég á lélegri íslensku, en kona ein á Akureyri svaraði mér og benti mér á Ársæl í Vatnaskógi. Þar fékk ég vinnu sumarið 2002, vann í Vatnaskógi í 20 daga og náði þá ágætis tökum á íslenskunni. Það kom mér á óvart hversu auðvelt það reyndist mér að koma í Vatnaskóg. Þaðan hélt ég til Reykjavíkur þar sem ég gisti hjá Jóhönnu Þráinsdóttur, þýðanda, sem ég hafði hitt í Prag. í gegnum Jóhönnu eignaðist ég góða vini sem ég er að heimsækja núna, en þeir komu í heimsókn til mín í vor." Þegar Martin kom hingað í sumar hafði hann verið á dönsku- námskeiði í Roskilde og segir að sér finnist nokkuð erfitt að skipta úr tékknesku yfir í dönsku og úr dönsku yfir í íslensku. „Islenskan er erfiðari en danskan, þótt framburðurinn í dönsku sé erfiðari. Landslagið er auðvitað gjörólíkt og Tékkum finnst Danmörk smækkuð útgáfa af Þýskalandi, meðan náttúran á íslandi og í Noregi heillar. Mér líkaði mjög vel í Danmörku og kunni vel við fólkið." OF MIKIL BANDARÍSK ÁHRIF En kom honum eitthvað á óvart hér á landi? ,Ég vissi reyndar svo mikið um ísland áður en ég kom hingað fyrst, að það var ekki margt sem kom á óvart. Það eina sem kannski

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.