Ský - 01.10.2004, Qupperneq 54
BOURBON STREET í NEW ORLEANS
Maður sogast inn á götuna eins og inn í stóran svelg.
Engin venjuleg lögmál stjórna manni lengur. Maður er skyndilega
á valdi einhvers óútskýranlegs máttar sem gerður er úr mörgum
öflum og þyrlar manni upp eins og fisii
Tónlistin er úr öllum áttum og einnig fólkið sem smýgur þétt hvert
framhjá öðru, stundum harkalega.
Straumar og stefnur veitingahúsa og klúbba eru af öllum gerðum.
Maður verður engum háður og til í allt. Stórhættulegt fyrir
áhrifagjarna konu eins og mig.
Ólýsanlega fagur tónn úr sópransaxófón berst frá litlum stað og
lokkar mig og vinkonu mína inn. Sá tónn fylgir mér síðan. Þvílíkur
listamaður, blakkur og fagur.
Alinn upp við rætur Louis Armstrongs og gefur honum ekkert eftir.
Hann sleppir lúðrunum og hefur upp sína ótrúlegu rödd sem
opnar hjarta mitt og tárakirtla á hraða Ijóssins og ég er varnarlaus.
Engin nema María Callas hefur leyfi til að fara svona með mig!
Betra gat það ekki orðið fyrir unglinginn sem kom heim með
frumburðinn sinn aðeins 17 ára gömul. Nóg af öllu og allir
velkomnir á Hringbraut 57.
MARIA HILFERSTRASSE, VÍNARBORG
Það tók heilan dag að sikk-sakka götuna á enda frá Westbahnhof
lestarstöðinni að hringnum sem liggur svo haglega utan um
miðborgina.
Búðirnar svo „glamorus" að ég hafði aldrei verið vitni að
þvílíkri stemningu þrátt fyrir frábærar Þorláksmessuminningar á
Laugaveginum.
Sigríður Ella söngkona sagði við mig áður en ég fór til Vínar:
„Mundu svo Magga mín, að þjónustan við þig fer eftir klæðnaði
þínum og framkomu!"
Það var því engin sveitakona sem leið eftir einni lengstu
verslunargötu Evrópu þennan jólamánuð árið 1976. Ég var eins
og uppstríluð fertug kona og ávörpuð "Gnadige Frau" í hverri
versluninni eftir aðra.
Nærföt hjá Gazelle, skór hjá Stiefelkönig, konfekt í litlu kondi-
toríunum, Melange-kaffisopi og Strudel-terta á Aida-kaffihúsinu
og loks kvöldverður á Wienerwald (sá smekkur átti eftir að breytast).
Ljósadýrð, jólaglögg, götutónlistin og marglitt fólkið átti svo vel
við mig að ég fékk heimþrá.
Elskuleg búðarkona hjá Quelle fann sárt til með mér þegar hún var
að Ijúka við að pakka inn litla bláröndótta sloppnum sem ætlaður
var þriggja ára syni mínum á íslandi og hafði verið aðskilinn frá mér
í þrjá mánuði.
"Alles in Ordnung, gnadige Frau?" spurði hún blíðlega, ég kinkaði
kolli og þáði litla jólagjöf í kveðjuskyni.
Iðandi gatan tók á móti mér í rökkrinu, líðandi sporvagnarnir juku
á stemninguna, eins og glæsileg og framandi gatan, en ! huganum
var ég komin heim á Frón með alla pakkana undir jólatréð.
Örlítil kveðja frá Vínarborg gladdi fjölskylduna á Hringbrautinni
þessi jól.
ÓLA PÁLS KRISTJÁNSSONAR...
m
Tl
Nú fá allir punkta í Vildarklúbbi lcelandair hjá Olís
sama hvort greitt er með korti eða peningum. Kynntu
þér málið á næstu Olísstöð eða á www.olis.is.
Olís - upphafið að góðri ferð.