Ský - 01.10.2004, Page 59
Icelandaúp hótelln:
FULLKOMIN FYRIR FRÍ OG FUNDI
Það færist sífellt í vöxt að starfsmenn fyrirtækja velji
að halda jólagleði, árshátíð og aðra skemmtan utan
borgarmarkanna, enda fátt betra til að efla starfsandann
en dvelja fjarri daglegu amstri og fjarri þeim stað sem
minnir á daglega hluti. Icelandair hótelin eru glæsileg hótel,
sem bjóða upp á frábæra aðstöðu, hvort heldur í því sem
fyrr var nefnt eða þegar halda skal fundi og ráðstefnur.
Innlendir og erlendir ferðamenn, sem og athafnamenn,
þekkja líka vel til lcelandair hótelanna f Reykjavík, Hótels
Loftleiða og Nordica Hotels, þar sem starfsfólk gerir allt til
að uppfylla óskir gesta og aðbúnaður allur eins og best
getur orðið ...
VIÐ FLUGVÖLLINN ...
Þegar Reykjavík er heimsótt vilja margir halda í sínar daglegu þarfir
eins og gönguferðir. Þá er Hótel Loftleiðir kjörinn staður því stutt er
í göngu- og útsýnisferðir í Oskjuhlíð, þar sem fólk á von á að hitta
kanínur innan um gróðurinn, og góð og rómantísk gönguferð liggur
líka niður að ylströndinni í Nauthólsvík. Þeir sem kjósa að verja degi í
gamla miðbænum njóta þess svo að fá frían akstur frá hótelinu með
svokallaðri „shuttle service" eða „miðbæjarskutlu".
En fólk heimsækir ekki aðeins Hótel Loftleiðir sér til hvíldar og
hressingar. Þar er fjöldinn allur af ráðstefnum og fundum haldnir
árlega, enda býður hótelið upp á hvorki færri né fleiri en fjórtán veislu-
og fundarsali og eru þeir síðarnefndu búnir fullkomnum tækjabúnaði
á alþjóðamælikvarða. Slíkir salir eru ekki eingöngu ætlaðir stórum
hópum því þeir eru misstórir og rúma allt frá 8 upp í 430 manns. Færri
vita sjálfsagt að á hótelinu er líka að finna rúmgóðan kvikmyndasal sem
tekur allt að 110 manns í sæti.
Sundlaugin á Hótel Loftleiðum er enn á sínum stað; yndislegur staður
fyrir gesti til þess að slaka á og hvíla hugann og þar er að sjálfsögðu
líka að finna heitan pott. Frítt er í sund fyrir hótelgesti.
MEÐ ÚTSÝNI TIL ESJUNNAR ...
Einhverja fullkomnustu ráðstefnuaðstöðu landsins og þótt víðar væri leitað er að finna á
Nordica Hotel við Suðurlandsbraut. Þar eru ellefu salir, ætlaðirtil funda og ráðstefnuhalds, og
eru þeir allir búnir því nýjasta sem finna má í tækni. Þar er líka glæsilegur veislusalur þar sem
hægt er að halda upp í 600 manna veislu.
Margir kjósa gjarnan að slaka vel á að loknum fundi eða ráðstefnu og þá þarf ekki að leita
langt. Á hótelinu er NordicaSpa, sem veitir fyrsta flokks þjónustu í þægilegu og afslöppuðu
andrúmslofti. Þar eru heitir pottar, gufuböð og sauna, gestum til þæginda og slökunar, að
ógleymdu herðanuddinu sem þjálfað fólk annast meðan gestir lygna aftur augunum í heitum
pottum og láta þreytuna líða úr sér. Að loknu slíku dekri er ákjósanlegt að þurfa ekki að ana út í
leit að matsölustað. Afar góðan slíkan stað, veitingastaðinn Vox, er að finna á Nordica hótelinu,
en þar býður yfirmatreiðslumeistarinn Hákon Már Örvarsson og hans fólk upp á klassíska,
evrópska matargerð. Enginn aukvisi þar á ferð þvi Hákon Már vann til bronsverðlauna í Bocuse
d'Or matreiðslukeppninni í Frakklandi. Því má bæta við að líkt og á Hótel Loftleiðum býðst
gestum ókeypis far með „miðbæjarskutlu"...
SKÝ
59
AUSTUR FYRIR FJALL ...
En ferðumst nú örlítið út fyrir höfuðborgina. Á Flúðum er að finna lcelandair hótel, Hótel Flúðir,
sem hefur marga kosti þegar velja skal stað utan borgarmarkanna. Þar gefast ótal tækifæri
til að njóta náttúrunnar - og ekki þarf að fara nema örfá skref til að kaupa Flúðagrænmetið
margfræga eða bregða sér í sund. Hótel Flúðir er kjörinn staður til að gista á þegar fólk vill
skoða sig um á þessu fallega hverasvæði og skoða markverða staði eins og Gullfoss og Geysi,
Skálholt og Þjórsárdal - svo ekki sé minnst á sjálfa Heklu. Það hótel, eins og önnur lcelandair
hótel er vel fallið til fundahalda, sem henta einkar vel minni hópum en í stuttri göngufjarlægð er
einnig hægt að halda stærri fundi.
Hótel Rangáersjarmerandihótel íbjálkahúsastíl.aðeinsírúmlega klukkustundarakstursfjarlægð
frá Reykjavík. Þar eru afar smekklega útbúin herbergi, 27 talsins. Glæsilegur bar og móttaka er
á hótelinu og í veitingasalnum er hægt að fá rétti sem þykja á heimsmælikvarða. Á Hótel Rangá
eru tveir fundarsalir og þvi hentar hótelið sérstaklega vel fyrir minni hópa og hvataferðarhópa.
Þar er ávallt eitthvað spennandi í boði fyrir hópa og getur hótelið verið fólki innan handar við skipulagningu dagskrár, sem getur samanstaðið af jafnólíkum
hugðarefnum og vínsmökkun, hestaferðum eða fjórhjólatúrum. Hvað er ævintýralegra en njóta kvöldkyrrðar á slíku hóteli og horfa á norðurljósin?
í fallegri náttúrunni á Kirkjubæjarklaustri er að finna Hótel Klaustur, þar sem tilvalið er að halda einkasamkvæmi og/eða fundi. Hótel Klaustur er ekkert
smáhótel heldur er þar að finna 57 herbergi og sali, sem henta vel fyrir veisluhöld og/eða fundi. Hlýlegur veitingasalur hótelsins getur tekið á móti 150
gestum til sitjandi borðhalds, en auk þess eru smærri salir í hótelinu sem hægt er að fá afnot af.
STUTT í UTANLANDSFLUGIÐ
Það er svolítið sérstök tilfinning að vera staddur á brúnni milli Bandaríkjanna
og Evrópu, en það er heitið sem Keflavík hefur hlotið. Margír kjósa að vera
í námunda við Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar fara þarf í flug snemma
morguns og því eðlilegt að sífellt fleiri kjósi að gista á Flughótelinu
í Keflavík.. Fólk leyfir sér þá að kúra örlítið lengur en ella, borða góðan
morgunverð í vistlegum salarkynnum og eiga stutta ferð fyrir höndum
á flugvöllinn. En Flughótelið hefur líka reynst vinsælt fyrir fundi. Þar eru
þrír fundarsalir, sá stærsti hentar allt að sextíu manns, en hinir minni eru
fyrir fimmtán eða 32. Þetta er því kjörinn fundarstaður; stutt að heimsækja
Bláa lónið og skoða hinn gríðarfallega Reykjanesskaga. Að kvöldi er svo
haagt að borða góðan mat og skella sér í heitan pott. Þetta er tilvalinn
staður fyrir fundi með útlendingum, sem njóta þess að heimsækja lítið
„þorp" og upplifa eitthvað einstakt, eins og hvalaskoðun eða heimsækja
víkingaskipið Islending.
STÆKKUN HÓTEL HÉRAÐS
Nýjustu fréttimar hjá lcelandair hótelunum eru viðbæturnar sem gerðar
voru á Hótel Héraði. Þótt ungt sé að árum, aðeins sex ára, stækkaði það
og efldist margfalt í sumar og haust þegartekin var í notkun ný viðbygging
hótelsins. Þá bættust við 24 herbergi, þannig að nú býður hótelið upp
á 60 hótelherbergi. Auk þessarar stækkunar hótelsins var á jarðhæðinni
opnaður nýr fundar- og ráðstefnusalur í haust þar sem 120 manns geta
setið fundi í einu. Hótel Hérað er einstaklega fallega hannað hótel og þar
er virkilega vandað til verka í einu og öllu. Gæðahótel á heimsmælikvarða
er ekki orðum aukið ...