Ský - 01.10.2004, Síða 60
ALEXANDER MCQUEEN - ENFANT TERRIBLE?
Stórkostlegur kjóll Bjarkar í myndbandi hennar við lagið „Who is it“, af plötunni
Medúllu, hefur vafalaust ekki farið framhjá neinum. Kjóllinn er svo þakinn bjöllum
að varla er hægt að tala um „kjól“; öllu heldur búning. Bjöllukórinn, sem er einnig
í myndbandínu, er í búningum þöktum bjöllum og allt þetta gerir myndbandið hið
glæsilegasta þótt það sé tekið upp á frekar látlausum stað. Eftir að myndbandið fór
í spilun er „bjöllukjóllinn“ þegar orðinn umtalaður og þó maður segi bara þetta eina
orð, þá vita allir hvað maður á við! Það er nokkuð magnað ... Heiðurinn af kjólnum
á breski hönnuðurinn Alexander McQueen en hann þykir með þeim fremstu og
framsæknustu í tískuheiminum í dag. Það er því ekki úr vegi að forvitnast meira um
þennan hönnuð.
VALINN BESTI
HÖNNUÐURINN FJÓRUM SINNUM
Alexander McQueen er yngstur sex systkina, fæddur í London
árið 1969. Hann var skírður Lee McQueen en breytti fyrra nafni
sínu í Alexander þegar hann fór að hasla sér völl í tískuheiminum.
Hann er sonur leigubílstjóra og var sendur í drengjaskóla þar sem
hann eyddi mestum tíma sínum í að teikna föt og kjóla svo það
var snemma Ijóst hvert stefndi. Foreldrar hans hvöttu hann þó
til að læra eitthvað „venjulegt" og vinna „eðlilega" vinnu. Það
er nokkuð dæmigert fyrir McQueen að hann skellti skollaeyrum
við því; lauk skyldunámi 16 ára gamall og eftir að hafa lagt inn
umsókn var honum strax boðin lærlingsstaða við búningagerð og
sem aðstoðarmaður hjá virtum klæðskerum í London. Næst tók
við vinna við leikbúningahönnun, allt frá fatnaði sem átti við á 16.
öld til dagsins í dag. Aðeins tvítugur að aldri var hann ráðinn til
hönnuðarins Koji Tatsuno og ári síðar var búið að ráða hann sem
aðstoðarfatahönnuð til Romeo Gigli í Mílanó. Árið 1994 kom hann
aftur heim til Bretlands og fór í nám við hinn virta St. Martins skóla
í London, þótt hann hefði ekki tilskilda menntun til að eiga þar inni.
Eftir að hafa litið á möppuna hans og séð hvað í honum bjó ákvað
inntökunefndin að hleypa honum að og sér eflaust ekki eftir því í
dag. Sem dæmi um hæfileika hans má nefna að lokaverkefnið hans
var keypt, eins og það lagði sig, af hinum virta stílista Isabellu Blow
en hún er sögð vera sú sem átti tillöguna að því að hann breytti
nafni sínu í Alexander. Árið 1996 var hann valinn aðalhönnuður
Givenchy-fyrirtækisins og þar starfaði hann fram til ársins 2001.
„BÍLSLYS" OG BRETADROTTNING
Það sem þykir einkenna hönnun McQueens og sýningar hans er
tilfinningahitinn sem liggur að baki verkunum og viss „hráleiki"
sem aðrir hönnuðir hafa ekki náð að beisla jafn vel og hann.
Honum tekst á einstakan hátt að koma þversögnum á framfæri í
fatnaði, blanda saman hefðbundnum fötum eða sniði við eitthvað
nútímalegt og hrátt. Breska pressan hefur kallað hann „enfant
terrible" eða hræðilega barnið, þar sem enginn veit upp á hverju
hann tekur næst. Margar sýningar hans hafa þótt mjög eldfimar,
til dæmis haustsýningin 1998 þar sem hann setti á svið hálfgert
bílslys og fyrirsæturnar voru meðal annars með staurfót. Helstu
búðir McQueens eru í London, New York og Mílanó en annars
er hægt að finna hönnun hans í ölium helstu tískuborgum heims
og eftir að Gucci-veldið keypti 51% í fyrirtækinu vex því ásmegin.
Nú er hann einnig farinn að hanna gleraugu og einbeita sér meira
að herrafatnaði. McQueen er einn yngsti fatahönnuður sem hefur
verið valinn besti fatahönnuður Bretlands og þann titil vann hann
ekki einu sinni heldur fjórum sinnum! Ekki nóg með það, hann
var einnig valinn besti alþjóðlegi hönnuðurinn af Samtökum
fatahönnuða í Bandaríkjunum í fyrra og sama ár var hann heiðraður
af Bretadrottningu með svokallaðri CBE-orðu en hún er veitt þeim
sem þykja vera Bretlandi til sóma á alþjóðavettvangi.
BJÖRKí ÓPERU?
Eins og iðulega er með fatahönnuði kynnast þeir stjörnunum
náið og McQueen er í miklu uppáhaldi hjá Kate Winslet. Kjóllinn
sem hún klæddist við Óskarsverðlaunahátíðina árið sem hún var
tilnefnd sem besta leikkona fyrir Titanic var hannaður af McQueen
og einnig sérhannaði hann brúðarkjól Winslet þegar hún gifti sig.
Sjálfur er McQueen frátekinn; hann giftist kærastanum sínum,
George Forsyth, á snekkju við Ibiza árið 2000 og var Kate Moss
ofurfyrirsæta brúðarmærvið þá athöfn.
( áhugaverðu viðtali við McQueen hjá Show-Studio gafst
mörgum stjörnum og blaðamönnum tækifæri til að spyrja hann
spurninga sem hann svarar oft stuttur í spuna en tekst samt að
vera hreinskilinn og einlægur. Ein þeirra sem leggur til spurningu
er Björk Guðmundsdóttir og hún spyr hvort hann myndi hanna
búninga fyrir óperur. Hans svar var: „Nei, ekki nema þú værir í
henni, þá myndi ég vilja gera búning á þig fyrir Madame Butterfly
og láta hana gerast á tunglinu." Því er ekki að neita að íslenska
hjartað í blaðamanninum tók kipp af stolti. Síðar í sama viðtali
sést kaldhæðna hliðin á McQueen þar sem hann er spurður
hvernig hann myndi gera nýja ímynd fyrir Michael Jackson og
svarið er: „Klæða hann í nasistabúning." Kannski er ekki skrítið
að hann sé yfirleitt kallaður óþekki strákurinn í tískuheiminum, en
þar sem hann virðist koma hreint fram, nokkuð sem er óalgengt í
tískubransanum, hvort sem hann kemur vel eða illa út, OG hrósar
Björk okkar, þá er því ekki að neita að það verður áhugavert að
sjá hvað þessi hæfileikamikli og ófyrirsjáanlegi hönnuður tekur sér
næst fyrir hendur. Höfum augun og hugann opin og víðsýnina í
fimmta gír. Annars gætum við misst af einhverju!
íízellw fer útrá&fyrú' áÉugrr sintv á> tí&kio ag- firem&kilnir
fólkimeð þvíað ranmakaþað í kjálinn ag-taka-út það
ákkigamerða&tafyrir le&endur Skýja