Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1983, Blaðsíða 190
174
st.t6rnkfrfi rrykjavíkurborgap
Borgarstjórn
Borgarstjórn Reykjavíkur er nú skipuft 21 borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúar eru kjörnir beinni hlutbundinni kosningu til fjögurra
ára í senn, en borgarstjórn hefur þegar sam^ykkt aö borgarfulltrúar
verði fimmtán að loknum næstu borgarstjórnarkosningum áriö 1986.
Meginverkefni borgarstjórnar eru bessi:
1. Yfirstjóm á fjárreiöum borgarinnar.
2. Yfirstjórn verklegra framkvæmda borgarinnar.
3- Kjör borgarráös, borgarstjóra og nefnda borgarinnar.
4. Setning reglna um stjórn borgarmálefna, meöferö tiltekinna málefna
borgarinnar, gjaldskrár borgarfyrirtækja o.s.frv.
Sveitarstjórnarkosningar voru síðast haldnar í maí 1982.
Borgarráö
Borgarstjórn kýs fimm borgarfulltrúa í borgarráö og jafnmarga
borgarfulltrúa til vara. Borgarstjóri á sæti í borgarráöi, en hefur
ekki atkvæöisrétt þar, nema hann sé kjörinn í ráöið.
Borgarráð getur leyft, að flokkur, sem á fulltúa í borgarstjórn, en
ekki fulltrúa í borgarráði, megi tilnefna borgarfulltrúa til að sitja
fundi borgarráös með málfrelsi og tillögurétti. Borgarráö fer ásamt
borgarstjóra með framkvæmdastjórn málefna Reykjavíkurborgar að ]pví
leyti, sem hún er ekki öðrum fengin samkvæmt lögum, reglugeröum eða
sérstökum sambykktum borgarstjórnar. Borgarráö tekur, samkvæmt
heimild í sveitarstjórnarlögum frá 1961, fullnaðarákvöröun um ]>au mál,
sem til þess koma, nema um veruleg fjárhagsatriöi sé að ræöa, eöa
málefni, þar sem ákvörðun borgarstjórnar er sérstaklega áskilin aö
lögum, enda sé eigi ágreiningur í borgarráöi, né viö borgarstjóra, um
slíkar ákvarðanir.
Borgarstjóri
Borgarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvaröana Jieirra, sem
borgarstjórn tekur, (eða borgarráö í umboði hennar), og framkvæmd á
málefnum borgarinnar yfirleitt, að ]>ví leyti, sem borgarstjórn hefur
ekki ákveðið annaö um tiltekin mál.
Borgarstjóri situr fundi borgarstjórnar og borgarráös með óbundnu
málfrelsi og tillögurétti, en án atkvæöisréttar, nema hann sé
jafnframt borgarfulltrúi (borgarráðsmaöur).
Borgarritari er staögengill borgarstjóra og hefur meö höndum daglega
stjórn á fjármálum borgarinnar og umsjón meö skrifstofum hennar.
Borgarverkfræðingur hefur, í umboði borgarstjóra, með höndum
yfirstjórn verklegra framkvæmda borgarinnar og annarra tæknilegra
málefna, nema meðferö þessarra mála (einstök mál) sé sérstaklega
fengin öörum.