Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 11
 SKINFAXI 11 Kópavogsblótið er ekki eina merkið um samstarf félaganna í Kópa- vogi, það er Breiðabliks, HK og Gerplu. Þessi félög hafa einnig, ásamt Kópavogsbæ og SÍK (Samstarfsvettvangi íþróttafélaganna í Kópavogi), sameinast um frístundavagn fyrir iðkendur félaganna. Vagnarnir fara á milli frístundarheimila í bænum og eru fyrst og fremst ætlaðir fyrir yngstu iðkendurnar. Ekki skiptir máli hvort iðkandi er í Breiðabliki, HK eða Gerplu. Einn vagn er fyrir alla. Eysteinn segir breytinguna vera til hagsbóta fyrir iðkendur og foreldra þeirra: „Það er glórulaust að hvert félag í sínu horni sé að reka frístunda- vagn og koma börnum á æfingar. Við vorum að gera þetta í sitthvoru lagi í fyrra þar sem iðkendur þurftu að vera í “rétta” búningnum til þess að komast í sinn vagn sem voru svo röng skilaboð. Sérstaklega í ljósi þess að margir af okkar iðkendum æfa einnig aðrar íþróttagreinar með HK og Gerplu. Að mínu mati dregur einn frístundavagn úr þessum ríg á milli iðkenda sem við vorum kannski ómeðvitað að ýta undir með því að keyra hver í sínum vagni.” Í samvinnu félaganna felst hagræðing fyrir flesta. „Við viljum reyna að minnka skutlið hjá foreldrum og einfalda hlutina eins og kostur er og það gerist best með því að félögin vinni saman. Við erum meira að segja farin að ræða saman um fleiri verkefni sem við sjáum ávinning í að vinna sameiginlega að,” segir Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmda- stjóri Breiðabliks. Verðlaunað fyrir nýsköpun og nýjungar UMSK hlaut hvatningarverðlaun UMFÍ á sambandsráðsfundi UMFÍ sem fram fór á Ísafirði undir lok október sl., fyrir nýjungar og nýsköpun í starfi. UMSK hefur meðal annars gefið aðildar- félögum sínum pannavelli og kynnt til sögunnar biathlon, nýja íþróttagrein sem er afbrigði af skíðaskotfimi. Valdimar Gunnars- son, framkvæmdastjóri UMSK, svaraði því til, spurður út í nýj- ungarnar í viðtali í Morgunblaðinu, að íslenskt samfélag breytt- ist hratt. Íþróttafélögin þurfi að bregðast við þeim aðstæðum. Nýjar íþróttagreinar ryðji sér til rúms og þátttaka í hefðbundn- um greinum láti undan síga. Allir þurfi að hreyfa sig. Það sé jákvæð þróun. Á sama tíma sé það verkefni íþrótta- og ung- mennafélaganna að koma til móts við þetta fólk með skipu- lögðu starfi, fræðslu eða öðru til að halda ungmennum sem lengst í starfinu. Mörg félög vinna saman Það er fjarri því að samvinna ungmennafélaganna í Kópa- vogi sé einsdæmi. • SamVest er samstarf sjö héraðs- sambanda á Vesturlandi og Vest- fjörðum í frjálsum íþróttum. Undir því merki eru haldnar margar sam- eiginlegar æfingar og stórt sumar- mót á hverju ári. Samstarfið hlaut hvatningarverðlaun UMFÍ árið 2015. • Knattspyrnufélögin Huginn Seyðisfirði og Höttur á Egilsstöð- um ætla að sameinast eftir að þau féllu bæði úr 2. deild karla í knattspyrnu. Þetta er í annað skiptið sem liðin sitthvorum megin Fjarðarheiðar sameinast. Síðast störfuðu þau saman á árunum 1999 til 2002.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.