Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 27
 SKINFAXI 27 Selfoss: Byggt yfir íþrótta- svæðið á 10 árum Fljótlega eftir sveitarstjórnarkosningar í sumar hóf nýr bæjar- stjórnarmeirihluti í Árborg að vinna með hugmyndir að upp- byggingu íþróttamannvirkja á íþróttasvæði Ungmennafélags Selfoss. Samkvæmt skipulagstillögu er gert ráð fyrir að hægt verði að byggja upp íþróttamiðstöð í nokkrum áföngum á tíu ár- um. Gangi allt eftir verður fullbyggð íþróttamiðstöð um 22.000 fermetrar og nemur heildarkostnaður miðað við núverandi áætl- un rúmum fimm milljörðum króna. Markmiðið með uppbyggingunni er að koma sem mestu af starfsemi Umf. Selfoss fyrir á einum stað og að sem fyrst verði farið í byggingu á fjölnota íþróttahúsi sem myndi nýtast knatt- spyrnu- og frjálsíþróttadeild auk annarra íþróttagreina sem mætti koma fyrir í húsinu. Einnig verði byggt heilsárshús fyrir frjálsar íþróttir, knattspyrnu, fimleika, lyftingaaðstöðu og fleiri greinar auk upphitaðs gervigrasvallar með flóðlýsingu. „Sveitarfélagið er í miklum vexti og íþróttalífið líka. Við gerum ráð fyrir því að pláss verði fyrir flestar íþróttagreinar á svæðinu á Selfossi allt árið um kring, fyrir iðkendur og almenning og að það fullnægi þörfinni í einhverja áratugi. Ég lít svo á að með þessu sé sveitarfélagið að styrkja heilsueflingu og ekki aðeins að bæta aðstöðu fyrir iðkendur heldur líka fyrir almenning á öllum aldri,“ segir Helgi S. Haraldsson, formaður frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss og forseti bæjarstjórnar Árborgar. Hann telur gott hljóð í íbúum sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðra framkvæmda, ekki síst þar sem búið sé að marka stefnuna til næstu ára. Í fyrsta áfanga framkvæmdanna er gert ráð fyrir helmingi af fjölnota íþróttahúsi með tartan-braut sem nær allan hringinn. Helgi segir að um þessar mundir sé verið að ljúka við hönnun hússins og megi vænta að verkið verði boðið út fljótlega eftir áramótin. Hinn helmingur hússins verður jafnframt síðasti áfangi verkefnisins. Gert er ráð fyrir að hann verði að veruleika í kring- um 2028–30 og verður með honum þá búið að byggja yfir og tengja saman allt íþróttasvæðið á Selfossi. Grafarvogur: Fjölnishöllin risin Nýtt alhliða íþróttahús Fjölnis í Egilshöll var tekið í notkun í Graf- arvogi í nóvember sl. í tilefni af 30 ára afmæli félagsins. Fast- eignafélagið Reginn byggði íþróttahúsið og mun sjá um rekstur þess. Húsið hefur verið rúmt ár í byggingu en skóflustunga að því var tekin í apríl árið 2017. Nýja íþróttahúsið er 2.500 fermetrar og er horft til þess að með því fjölgi valkostum í íþróttaiðkunum á vegum Fjölnis í Egilshöll. Í húsinu er rými fyrir tvo handbolta- og körfuboltavelli auk þess sem Borgarholts- skóli fær aðstöðu fyrir afreksíþróttabraut, ásamt öðru íþróttastarfi. Egils- höll sjálf er stærsta afþreyingar- og íþróttamiðstöð á Íslandi en hún er um 31 þúsund fermetrar. Þar eru knattspyrnusalur, skólaíþróttasalur, skautahöll, skotæfingasvæði, kvikmyndahús og keiluhöll auk fimleika- húss og nú er þar alhliða íþróttahús. Á síðasta ári kom 1,4 milljón manna í húsið og jafngildir það rúmlega 3.800 manns á hverjum degi. Jón Karl Ólafsson, formaður Fjölnis, sagði í ávarpi við vígslu íþrótta- hússins að iðkendum hefði fjölgað svo mikið að stofnendur félagsins hefðu ekki getað ímyndað sér það. Fjölnir sé nú orðið eitt af fjölmenn- ustu íþróttafélögum landsins. Jón Karl sagði undirbúning að byggingu íþróttahússins hafa tekið mörg ár en nú sé komin aðstaða sem sé til fyrirmyndar. Húsið heitir Fjölnishöllin. Jón Karl Ólafsson (t.h.) var kampakátur þegar hann vígði Fjölnishöllina í Grafarvogi í nóvember sl. Hér er hann með Guðmundi L. Gunnars- syni, framkvæmdastjóra Fjölnis. Sveitarfélagið Árborg er í miklum vexti og þarf því að stórbæta íþróttaastöðuna á Selfossi.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.