Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 40

Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 40
40 SKINFAXI Um miðjan nóvember sl. kom út heimildarmynd um sögu Lands- móta UMFÍ á svæði Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK). Þetta er forvitnileg mynd enda gaman að sjá myndefni frá löngu liðnum tíma og þróun mótanna frá því sem áður var. Marteinn Sigurgeirsson segir fræjum myndarinnar hafa verið sáð á Landsmóti UMFÍ á Selfossi árið 2013. „Ég hafði tekið saman myndefni sem var látið rúlla á sögusýningu í tengslum við mótið. Texta og tal vant- aði og var Jón M. Ívarsson söguritari fenginn til að útskýra fyrir fólki það sem fyrir augu bar. Eftir mótið vaknaði áhugi á því að fanga sögu Landsmótanna á HSK-svæðinu í mynd,“ segir Marteinn og bendir á að forystu í því hafi haft sögu- og minjanefnd Ungmennafélags Selfoss. Þetta er auðvitað ekki í fyrsta sinn sem Marteinn vinnur fyrir ung- mennafélagið. Hann er borinn og barnfæddur Selfyssingur og hefur lengi haldið utan um gamlar myndaupptökur, varðveislu og skráningu þeirra fyrir UMFÍ. Skemmst er að minnst hundrað ára afmælis UMFÍ árið 2008 en þá skipulagði Marteinn meðal annars sögusýningu UMFÍ í Gerðarsafni í Kópavogi þar sem gamlar myndir voru látnar rúlla með textum. Hann gerði jafnframt mynd um íþróttafrömuðinn Þorsteinn Einarsson árið 2016. „Eftir Landsmótið á Selfossi 2013 fór ég í gang, lagðist í viðtöl og fór um sambandssvæðið. Þetta var töluverð vinna. Við náðum viðtölum við fólk sem var á landsmótinu sem Sigurður Greipsson endurvakti í Haukadal árið 1940, Hafstein Þorvaldsson og Jóhannes Sigmunds- son og fleiri sem tengdust öðrum mótum og mundu eftir þeim. Þeir Hafsteinn og Jóhannes gengu um sýninguna og ég tók upp á meðan bunaði upp úr þeim fróðleikur um mótin,“ segir Marteinn. Hann nefnir að til sé mjög gott myndefni til frá gömlu mótunum. Þau hafi sum hver verið tekin upp á 16 mm filmur og varðveist vel. Dæmi um það eru að kvikmynd var gerð um mótið í Hveragerði 1949 og gott efni á Landsmóti UMFÍ á Laugarvatni 1965. Mótið þar var eftirminnilegt fyrir gríðarlegan mannfjölda sem það sótti og hitabylgjuna sem þá gekk yfir,“ segir hann. Það bunaði upp úr þeim fróðleikur um mótin Mikilvægt að skrásetja söguna Marteinn segir vel haldið utan um myndefni frá Landsmótum UMFÍ. Því hafi verið komið fyrir í Kvikmyndasafni Íslands í Hafnarfirði, það skráð þar og varðveitt við rétt hitastig. „Menn vönduðu sig hér áður fyrr, fengu fagmenn í verkið og tóku upp á góðar filmur. Nú eru komnir góðir skannar til að yfirfæra myndefnið á stafrænt form,“ segir hann og bætir við að áhugavert væri að skrásetja söguna í fleiri fjórðungum á meðan fólk er enn á lífi sem var á staðnum og man söguna. „Eins og sagt er um tryggingar, þá myndar maður ekki eftir á,“ segir hann. Guðmundur Kr. Jónsson, heiðursformaður HSK, stýrði teiti sem haldið var til að fagna útgáfu myndarinnar um sögu Landsmóta UMFÍ á HSK-svæðinu. Hann og Guðríður Aadnegard, formaður HSK, afhentu fyrstu diskana þeim sem unnu að heimildarmyndinni. Þau eru Marteinn Sigurgeirsson, Kristinn Bárðarson, sem situr í minjanefnd knattspyrnudeildar Umf. Selfoss og fólk sem sæti á í sögu- og minjanefnd HSK, þau Kjartan Lárusson, Þorgeir Vigfússon, Lísa Thomsen og Jón M. Ívarsson sagnfræðingur. Mynd: EO. Kvikmyndagerðarmaðurinn Marteinn Sigurgeirsson hefur gert heimildarmyndum sögu Landsmóta UMFÍ á HSK-svæðinu. Hann segir mikilvægt að fanga söguna í mynd svo að hún gleymist ekki. Marteinn Sigurgeirsson kvikmyndagerðar- maður sem gerði heimildarmyndina um sögu Landsmóta UMFÍ á HSK-svæðinu.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.