Skinfaxi - 01.04.2018, Side 40
40 SKINFAXI
Um miðjan nóvember sl. kom út heimildarmynd um sögu Lands-
móta UMFÍ á svæði Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK).
Þetta er forvitnileg mynd enda gaman að sjá myndefni frá löngu
liðnum tíma og þróun mótanna frá því sem áður var.
Marteinn Sigurgeirsson segir fræjum myndarinnar hafa verið sáð á
Landsmóti UMFÍ á Selfossi árið 2013. „Ég hafði tekið saman myndefni
sem var látið rúlla á sögusýningu í tengslum við mótið. Texta og tal vant-
aði og var Jón M. Ívarsson söguritari fenginn til að útskýra fyrir fólki
það sem fyrir augu bar. Eftir mótið vaknaði áhugi á því að fanga sögu
Landsmótanna á HSK-svæðinu í mynd,“ segir Marteinn og bendir á að
forystu í því hafi haft sögu- og minjanefnd Ungmennafélags Selfoss.
Þetta er auðvitað ekki í fyrsta sinn sem Marteinn vinnur fyrir ung-
mennafélagið. Hann er borinn og barnfæddur Selfyssingur og hefur
lengi haldið utan um gamlar myndaupptökur, varðveislu og skráningu
þeirra fyrir UMFÍ. Skemmst er að minnst hundrað ára afmælis UMFÍ
árið 2008 en þá skipulagði Marteinn meðal annars sögusýningu UMFÍ
í Gerðarsafni í Kópavogi þar sem gamlar myndir voru látnar rúlla
með textum. Hann gerði jafnframt mynd um íþróttafrömuðinn Þorsteinn
Einarsson árið 2016.
„Eftir Landsmótið á Selfossi 2013 fór ég í gang, lagðist í viðtöl og
fór um sambandssvæðið. Þetta var töluverð vinna. Við náðum viðtölum
við fólk sem var á landsmótinu sem Sigurður Greipsson endurvakti í
Haukadal árið 1940, Hafstein Þorvaldsson og Jóhannes Sigmunds-
son og fleiri sem tengdust öðrum mótum og mundu eftir þeim. Þeir
Hafsteinn og Jóhannes gengu um sýninguna og ég tók upp á meðan
bunaði upp úr þeim fróðleikur um mótin,“ segir Marteinn. Hann nefnir
að til sé mjög gott myndefni til frá gömlu mótunum. Þau hafi sum hver
verið tekin upp á 16 mm filmur og varðveist vel. Dæmi um það eru
að kvikmynd var gerð um mótið í Hveragerði 1949 og gott efni á
Landsmóti UMFÍ á Laugarvatni 1965. Mótið þar var eftirminnilegt fyrir
gríðarlegan mannfjölda sem það sótti og hitabylgjuna sem þá gekk
yfir,“ segir hann.
Það bunaði upp úr þeim
fróðleikur um mótin
Mikilvægt að skrásetja söguna
Marteinn segir vel haldið utan um myndefni frá Landsmótum UMFÍ. Því
hafi verið komið fyrir í Kvikmyndasafni Íslands í Hafnarfirði, það skráð
þar og varðveitt við rétt hitastig. „Menn vönduðu sig hér áður fyrr, fengu
fagmenn í verkið og tóku upp á góðar filmur. Nú eru komnir góðir
skannar til að yfirfæra
myndefnið á stafrænt
form,“ segir hann og
bætir við að áhugavert
væri að skrásetja söguna
í fleiri fjórðungum á
meðan fólk er enn á lífi
sem var á staðnum og
man söguna. „Eins og
sagt er um tryggingar,
þá myndar maður ekki
eftir á,“ segir hann.
Guðmundur Kr. Jónsson, heiðursformaður HSK, stýrði teiti sem haldið var til að fagna útgáfu myndarinnar
um sögu Landsmóta UMFÍ á HSK-svæðinu. Hann og Guðríður Aadnegard, formaður HSK, afhentu fyrstu
diskana þeim sem unnu að heimildarmyndinni. Þau eru Marteinn Sigurgeirsson, Kristinn Bárðarson, sem
situr í minjanefnd knattspyrnudeildar Umf. Selfoss og fólk sem sæti á í sögu- og minjanefnd HSK, þau Kjartan
Lárusson, Þorgeir Vigfússon, Lísa Thomsen og Jón M. Ívarsson sagnfræðingur. Mynd: EO.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Marteinn Sigurgeirsson hefur gert
heimildarmyndum sögu Landsmóta UMFÍ á HSK-svæðinu.
Hann segir mikilvægt að fanga söguna í mynd svo að hún gleymist ekki.
Marteinn Sigurgeirsson kvikmyndagerðar-
maður sem gerði heimildarmyndina um
sögu Landsmóta UMFÍ á HSK-svæðinu.