Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 17

Skinfaxi - 01.04.2018, Blaðsíða 17
 SKINFAXI 17 Würth á Íslandi ehf www.wurth.is Norðlingabraut 8 Reykjavík Bíldshöfði 16 Tryggvabraut 24 AkureyriReykjavík beiskju hafi margar staðið sig vel þegar kom að hreyfingu barna og ungmenna. Austur-Þjóðverjar hafi staðið sig með prýði, ekki síður en Sovétmenn sem innleiddu ýmsar íþróttagreinar, þar á meðal fimleika, í námskrár grunnskóla. „Stjórnvöld í Austur-Evrópu gerðu sér grein fyrir mikilvægi líkams- greindar fyrir löngu,” segir Jeffrey. þar af 15% kvenna og 11% karla. Lausnin: Að borða betri mat og hreyfa sig meira. Breyta íþróttum til að fjölga iðkendum Það er erfitt að ræða við Kanadamann án þess að minnast á íshokkí sem kalla má þjóðaríþrótt þar í landi. Greinin hefur átt betri daga, liðum hefur gengið illa og iðkendum fækkað. Fækkunin skýrist ekki síst af því að mjög kostnaðarsamt er að æfa íshokkí og það er orðið vart nema á færi efnaðra foreldra að leyfa börnum sínum að æfa og keppa í íshokkí að einhverju marki. „Um nokkurt skeið fjölgaði nýjum iðkendum í íshokkí mjög hægt. Þá var brugðið á það ráð að prófa að bjóða upp á minni velli og styttri leiktíma, jafnvel upp á nokkrar mínútur. Þessi tilraun skilaði góðum árangri. Mönnum líkaði vel að taka þátt í styttri leikjum. Þeir skemmtu sér líka vel og fleiri fóru að æfa íshokkí,“ segir Jeffrey og nefnir þessa tilraun í heimalandi sínu sem frábæra tilraun til að auka gleði og ánægju í íþróttaiðkun. „Það er mikilvægt að hafa gaman af því að stunda íþróttir. Þegar iðkendur skemmta sér stunda þeir greinina lengur – jafnvel alla ævi.“ Ungmennin þurfa að fá að leika sér Jeffrey segir að mörgum finnist erfitt og jafnvel streituvaldandi að vinna með unglingum. Hann segir það eðlilegt. „Sýnt hefur verið fram á að heili ungmenna er í sífelldri mótun og mikið um að vera, bæði í höfðinu á þeim og í líkamanum enda hormónarnir á fullu. Það er erfitt að vera unglingur enda hafa þeir litla stjórn á líkömum sínum, þeir hafa ónákvæma rýmisskynjun og margir eru klaufalegir í hreyfingum. Þetta á sérstaklega við um stráka því að heili þeirra er að mótast fram yfir tvítugt og því þurfa þjálfarar að vera þolinmóðir, sérstaklega í samskiptum sínum við stráka,“ segir Jeffrey og rifjar upp þegar hann var staddur í fimleikasal í Moskvu um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Í salnum var hópur unglingsdrengja að hamast hver í öðrum og leika sér. „Það fer sú saga af sovéskum þjálfurum að þeir séu strangir og harðir við iðkendur. Ég spurði þess vegna þjálfarann hvað þessir drengir væru að gera þarna. Hann svaraði: „Þetta eru unglingar. Það á að láta þá vera og leyfa þeim að leika sér þar til þeir róast.“ 13% fólks glímir við ofþyngd

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.