Skinfaxi - 01.04.2018, Page 24
24 SKINFAXI
Allar manneskjur eru félagsverur og í öllum samfélögum reynir
á samskipti fólks. Fólk hefur samskipti eftir ýmsum leiðum og til
þess að samskipti séu ánægjuleg og ásættanleg fylgja einstakl-
ingar ákveðnum óskrifuðum samskiptareglum sem settar eru í hverju sam-
félagi. Gæði samskiptanna fara svo oftar en ekki eftir því hversu með-
tækilegir einstaklingar samfélagsins eru fyrir þessum reglum.
Grunnurinn liggur í góðum samskiptum
Góð mannleg samskipti eru yfirleitt talin einkennast af gagnkvæmri virð-
ingu, trausti, skilningi, góðri hlustun, einlægni, þolinmæði, samkennd
og sveigjanleika og flestir viðurkenna slíkar samskiptareglur og fara
eftir þeim, sjálfum sér og öðrum til hagsbóta og virðingar.
Það skiptir máli að vanda til verksins. Fólk ætti ávallt að hafa í huga
hvernig framkoma þess hefur áhrif á annað fólk í kringum það. Flest
gerum við það í beinum samskiptum okkar við aðrar manneskjur, t.d. á
vinnustaðnum, í skólanum eða á heimilinu, og við leggjum áherslu á að
kenna börnum og ungmennum færni í mannlegum samskiptum. Flest kom-
um við vel fram við annað fólk þegar við erum nálægt því og við kenn-
um börnunum okkar og ungmennum að gera slíkt hið sama.
Siðferði fólks skiptir máli
Til að samskipti séu farsæl og gefi af sér það sem tilteknir aðilar, sem
eiga samskipti, vænta af þeim er mikilvægt að fara eftir þeim atriðum
sem talin eru einkenna góð samskipti.
Til viðbótar við það skiptir siðferði miklu máli. Án góðs siðferðis er
erfitt að bera tilhlýðilega umhyggju og virðingu fyrir manneskju sem
maður á samskipti við en í flestum ef ekki öllum mannlegum samskiptum
reynir á siðferði. Siðferðisvitund á mikinn þátt í að skera úr um og móta
það hvernig fólk á samskipti sín í milli og hvort hegðun þess sé rétt eða
röng eða góð eða slæm.
Hafðu velferð barna og ungmenna
í fyrirrúmi
Í íþrótta- og æskulýðsstarfi reynir á samskipti fólks við ýmsar aðstæður.
Sum samskipti eru á jafningjagrundvelli en önnur eru á milli ábyrgðar-
aðila og þátttakenda í starfinu. Í slíkum samskiptum skiptir miklu máli
að vanda ávallt til verka og fylgja góðu siðferði. Ávallt skal stuðla að
velferð barna og ungmenna og hafa að leiðarljósi það sem þeim er
fyrir bestu í öllum samskiptum. Ábyrgðaraðilar skulu gæta vandvirkni
og samviskusemi auk þess að koma fram af umhyggju, heiðarleika og
virðingu gagnvart öllum þeim sem starfað er með eða fyrir. Hafa skal
í huga að orð og athafnir samrýmist starfi, umhverfi, stað og stund en
ábyrgðaraðilar innan hreyfinganna, starfsfólk og sjálfboðaliðar eru fyrir-
myndir þátttakenda í starfi og þeim ber að sýna góða hegðun og gott
fordæmi jafnt í starfi sem utan þess.
Hvernig eiga samskipti að vera
í íþrótta- og æskulýðsstarfi?
Sema Erla, framkvæmdastýra Æskulýðsvettvangsins, svarar
þeirri spurningu og bendir á hvað má og hvað má ekki.