Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.2020, Side 6

Skinfaxi - 01.02.2020, Side 6
6 S K I N FA X I Skinfaxi 2. tbl. 2020 Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags Íslands (UMFÍ), hefur komið út samfleytt síðan árið 1909. Tímaritið dregur nafn sitt af hestinum fljúgandi sem dró vagn goð- sagnaverunnar Dags er ók um himin- hvolfið í norrænum sagnaheimi. R I TST J Ó R I Jón Aðalsteinn Bergsveinsson. Á BY R GÐA R M A Ð U R Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ. R I T N E F N D Gunnar Gunnarsson, formaður, Annas Jón Sigmundsson, Eiður Andri Guðlaugs- son, Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir, Sig- urður Óskar Jónsson og Soffía Meldal. P R E N T U N Prentmet Oddi. L J ÓS MY N D I R Ívar Sæland, Haraldur Jónasson, Gunnar Gunnarsson, Hafsteinn Snær Þorsteinsson, Jón Aðalsteinn Berg- sveinsson, Ólafur Þór Jónsson, Oscar Rybinski, Ágúst Atlason o.fl. UM BR OT O G H Ö N N U N Indígó. P R Ó FA R KA L E ST U R Helgi Magnússon. AU GLÝS I N GA R Styrksöfnun. FO R S Í Ð UMY N D Hópur karlalandsliðs Íslands í hópfim- leikum og föruneyti sem fór hringinn í kringum landið í sumar og hélt sýningar í íþróttahúsum. Markmið ferðarinnar var að búa til fyrirmyndir og fjölga ungum drengjum í hópi iðkenda í fimleikum. ST J Ó R N UM F Í Haukur Valtýsson, formaður, Ragnheiður Högnadóttir, varaformaður, Sigurður Óskar Jónsson, ritari, Guðmundur Sigurbergsson, gjaldkeri, Gunnar Gunn- arsson, meðstjórnandi, Jóhann Steinar Ingimundarson, meðstjórnandi, og Gunnar Þór Gestsson, meðstjórnandi. VA R AST J Ó R N UM F Í Hallbera Eiríksdóttir, Lárus B. Lárusson, Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir og Gissur Jónsson. SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA Þjónustumiðstöð UMFÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík, sími: 568 2929. umfi@umfi.is www.umfi.is STA R FS FÓ L K UM F Í Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningarfulltrúi og ritstjóri Skinfaxa, Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og framkvæmdastjóri Landsmóta (með aðsetur á Sauðárkróki), Ragnheiður Sigurðardóttir, landsfulltrúi og verk- efnastjóri, og Guðbirna Kristín Þórðar- dóttir, ritari. UM F Í Ungmennafélag Íslands er landssam- band ungmennafélaga á Íslandi. UMFÍ var stofnað í ágúst árið 1907. Sambandsaðilar UMFÍ eru 27 talsins sem skiptast í 21 íþróttahérað og 6 ung- mennafélög með beina aðild. Alls eru um 450 félög innan UMFÍ með rúmlega 270 þúsund félagsmenn. Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir hefur áhyggjur af hreyfingarleysi barna og ungmenna. Hún hafði samband við ÍBR og fleiri til að ýta átaksverkefninu #HVETJA í gang. „Ég held að íþróttafélög séu almennt mjög opin fyrir öllum hugmynd- um. Þar eru sérfræðingar í hvatningarstarfsemi og þar kann fólk að ná til annarra. Ég held að flestar hugmyndir fái aðgengi hjá þeim,“ segir Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir, formaður Hjólreiðafélags Reykjavíkur. Hún var að sýsla í garðinum sínum dag einn um miðjan október þegar hún fékk skyndilega innblástur. „Ég fékk hugmyndina þegar ég var að vinna úti í garði með mannin- um mínum í síðustu viku. Þetta er algjörlega rétti tíminn, áskorun sem krefst þess að við hvetjum aðra áfram, bæði börnin okkar og þá sem búa ekki við öflugt tengslanet. Ég leitaði til ÍBR og þar var vel tekið í hugmyndina um að styðja við samfélagslegt átaksverkefni,“ segir Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir, formaður Hjólreiðafélags Reykjavíkur. Kolbrún er forsprakki samfélagslega átaksverkefnisins #HVETJA. Átakið gengur út á að auka jákvæðni í samfélaginu og hvetja fólk til að passa upp á líkamlegt og andlegt heilbrigði sitt. Hugmyndin er að hver og einn fari út í stutta stund í senn til að koma blóðinu á hreyfingu, njóta dagsbirtunnar og bæta andlega líðan sína í leiðinni. Síðan er pælingin að fólk hvetji aðra til að hreyfa sig líka og það hvatt til að klukka aðra. Kolbrún segir líkur á að landsmenn þurfi að lifa með veirunni næstu vikur og mánuði. Því skipti máli að snúa bökum saman, auka jákvæðni í samfélaginu, sýna náungakærleika og að fólk passi hvert upp á annað. „Með því að hvetja aðra til þess að hreyfa sig sendum við fullt af jákvæðri hvatningu til annarra og stuðlum ekki aðeins að betri líkam- legri og andlegri líðan okkar sjálfra heldur annarra um leið,“ segir hún. Hjólreiðafélagið á aðild að Íþróttabandalagi Reykjavíkur (ÍBR), sem er sambandsaðili UMFÍ og Kolbrúnu fannst eðlilegasta skrefið í þróun hugmyndarinnar að leita þangað til að breikka pælinguna. Hugmyndir úr grasrótinni fá vængi „Við erum alltaf tilbúin til að skoða allar góðar hugmyndir sem berast okkur. Þessi hugmynd smellpassaði inn í samfélagslega nálgun ÍBR. Hugmyndin var vel uppsett og verkefnið úthugsað, með skýran skilgreindan tilgang og markmið sem gagnast öllum,“ segir Silja Úlfarsdóttir, upplýsingafulltrúi Íþróttabanda- lags Reykjavíkur (ÍBR). Ásamt ÍBR er Rauði krossinn samstarfsaðili verkefnisins. Bakhjarlar þess eru Íslensk erfðagreining, VÍS, 66°Norður og Arion banki. Facebook-síða verkefnisins er: https://www.facebook.com/hvetja2020/ Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir, formaður Hjólreiðafélags Reykjavíkur. „ÍBR hefur reynst okkur í Hjólreiðafélaginu afar vel. Þar er líka mikið af börnum og öðrum iðkendum sem hafa ekki verið á æfingum síðustu vikurnar,“ segir Kolbrún. Átakinu #HVETJA var ýtt úr vör 28. október 2020 og stendur það til 15. nóvember. Kolbrún vonast til að það lifi sjálfstæðu lífi áfram.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.