Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.2020, Side 15

Skinfaxi - 01.02.2020, Side 15
 S K I N FA X I 15 Forseti Íslands: Gleðin felst í því erfiða Á ráðstefnunni sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, í ávarpi sínu ungt fólk upp til hópa búa yfir því sjálfstrausti sem þarf til þess að vilja móta eigin líf og er óhrætt við það. „Það sem þið takið ykkur fyrir hendur á að vera erfitt. Ef það er ekki erfitt, er það ekki þess virði að taka eitthvað að sér,“ sagði Guðni. Í ávarpinu fjallaði hann um ábyrgðina og það hvernig maður lætur til sín taka í samfélaginu þótt maður beri marga og mismunandi hatta. Hann lýsti m.a. þeim mótsögnum sem felast í því að vera sagnfræð- ingur og forseti. „Í starfi mínu er næstum því skrifað í starfslýsinguna að horfa fram á við. En það er skrýtið, því að ég er sagnfræðingur og í fyrri störfum er líka skrifað í starfslýsinguna að vera gagnrýninn. Þetta er hlutskipti sem maður velur sér. Listin snýst um að læra af liðinni tíð og finna sam- takamáttinn en vera um leið raunsær,“ sagði hann og lagði áherslu á að finna leiðir og læra listina að miðla málum. „Listin snýst um að læra af liðinni tíð og finna samtakamáttinn en vera um leið raunsær“ Netmiðillinn Vísir var með beina útsendingu frá pallborðs- umræðum ráðstefnunnar og var jafnframt streymt beint frá henni á Facebook. Hægt er að sjá pallborðs- umræðurnar með því að skanna inn QR-kóðann sem hér fylgir með. þátttakenda mættu hér á sína fyrstu ráðstefnu 78% þátttakenda lærðu eitthvað nýtt á ráðstefnunni. 95% þátttakenda fannst að Ungmennaráð UMFÍ eigi að halda áfram að standa fyrir svipuðum viðburðum. 97%

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.