Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.2020, Page 26

Skinfaxi - 01.02.2020, Page 26
26 S K I N FA X I Meirihluti styrkja til knattspyrnufélaga er til kominn vegna persónulegra tengsla beggja vegna borðs- ins. Dæmi um það er þegar maður þekkir mann, stjórnandi í fyrirtæki á barn í hópi iðkenda, hefur æft með félaginu sjálfur eða hann hefur stutt félagið alla tíð. Við- skiptalegir hagsmunir og fagleg sjónarmið ráða sjaldnar för. Á sama tíma hafa stór fyrirtæki dregið úr styrkjum til íþróttafélaga, hafa í hyggju að gera það og færa styrk- féð frekar í skýrt afmarkaða þætti, svo sem að vinna með umhverfisvernd eða sinna öðru sem getur talist til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í meistararitgerð Björns Berg Gunnars- sonar frá Háskóla Íslands í markaðsfræð- um og alþjóðaviðskiptum sem hann skil- aði af sér síðastliðið sumar. Í ritgerðinni skoðaði hann kostun nokkurra knatt- spyrnuliða og tók viðtöl við fólk, bæði á vegum fyrirtækja og íþróttafélaga, ræddi við það um styrkina og samstarfið og velti því upp hvað kunni að vera farsælt til framtíðar. Við ritgerðarskrifin ræddi Björn við for- svarsmenn nokkurra fyrirtækja og knattspyrnudeilda, þar á meðal Íslandsbanka, Skeljungs, TM, KR, Íslensks toppfótbolta og Breiða- bliks. Hann telur að þótt í þessu tilviki sé um knattspyrnufélög að ræða megi vel yfirfæra vangavelturnar yfir á önn- ur íþróttafélög og -deildir. Persónuleg tengsl skila enn flestum styrkjum Hægt að fá meira út úr stuðningi Björg Berg segir það hafa komið sér á óvart hve persónu- leg tengsl ráði miklu um styrkveitingar fyrirtækja til íþrótta- félaga. „Persónulegu tengslin ráða mestu og virðist lítill áhugi á að breyta því. Fyrirtæki geta þvert á móti kostað tiltekin íþróttafélög í hefðbundnu markaðsstarfi sínu,“ segir Björn Berg. Hann nefnir í ritgerðinni gríðarlegar upphæð- ir sem fyrirtæki leggi til íþróttastarfs víða erlendis. Oft er mikið gert úr stuðningin- um og hífa aðilarnir hvor annan upp, það er að segja, fyrirtækið stærir sig af því að styrkja íþróttafélag eða -grein og félagið hampar stuðningnum. „Í öðrum löndum, sérstaklega í Banda- ríkjunum, setja fyrirtæki fjármuni, kannski í eitt félag, og monta sig af samstarfinu. Segj- um að milljón dollarar fari í fjárstuðning en ein og hálf í auglýsingar fyrirtækisins til að segja frá stuðningnum. Hér á landi er algengara að lítil fyrirtækja styðji mörg lítil félög. En fyrirtækin á Íslandi auglýsa lítið hvað þau séu að styrkja. Það er eins og þau séu feimin að gera það. Í rauninni ættu þau að vera stolt af því og gera það á fjölbreyttan hátt. Eins geta íþróttafélögin verið duglegri við að auglýsa hverjir styrktaraðilar þeirra eru,“ segir hann og bendir á að það styrki samband fyrirtækja og íþróttafélaga. Íslendingar eru frekar ófagmannlegir þegar kemur að því að leita styrkja fyrir íþróttafélög og -deildir. Persónuleg tengsl skipta mestu máli. Björn Berg Gunnarsson skoðaði samband þróttafélaga og fyrirtækja í meistararitgerð sinni og komst að því að forystumenn íþróttafélaga mættu oft vera hugmynda- ríkari en þeir eru, svo sem þegar kemur að því að lyfta undir styrktaraðila félaganna. Fyrirtækin mættu sömuleiðis eins vera montnari af því að styrkja íþróttastarf, tiltekin félög eða deildir. „Félögin þurfa að skera sig úr með einhverjum hætti, fá fyrirtækin til að sjá stuðning sinn sem vettvang í kröftugri markaðssetningu vörumerkis eða finna annan sameiginlegan hag af mögulegu samstarfi“. Björn Berg Gunnarsson

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.