Skinfaxi - 01.02.2020, Blaðsíða 38
38 S K I N FA X I
Ánægjuvogin 2020
Lykiltölur í íþróttaiðkun nemenda í 8., 9. og 10. bekk árið 2020
Ánægjuvogin 2020* er unnin af Rannsóknum og
greiningu (R&g) fyrir ÍSÍ og UMFÍ. Niðurstöður
Ánægjuvogarinnar 2020 eru mjög jákvæðar fyrir
íþróttahreyfinguna á Íslandi.
Í niðurstöðum Ánægjuvogarinnar kemur skýrt
fram að þeim nemendum sem eru virkir í skipulögðu
íþrótta- og tómstundastarfi líður betur og vinna betur
í hópi en aðrir. Þar kemur einnig fram að 61% nem-
enda í efstu bekkjum grunnskóla æfi með íþrótta-
félagi einu sinni í viku eða oftar. Meirihluti nemend-
anna metur andlega og líkamlega heilsu sína góða,
er síður líklegur til að sýna af sér frávikshegðun og
neyta vímuefna. Niðurstöður sýna ótvírætt kosti
skipulagðs íþrótta- og tómstundastarfs, ákveðnir
þætti eru verndandi, ákveðnir þættir draga úr líkum
á því að barn leiðist út í einhvers konar frávikshegðun
og ljóst er að skipulagt starf hefur forvarnargildi.
Rannsóknir og greining hafa lagt spurningalista
fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk frá árinu 1992
í rannsókninni Ungt fólk. Í Ánægjuvoginni felst að
spurningum, tengdum íþróttum og íþróttaiðkun, er
bætt við spurningalistana. Listarnir voru lagðir fyrir
nemendur bekkjanna í febrúar á þessu ári og var
svarhlutfallið 85%.