Úrval - 01.04.1954, Side 2
Græskulaust gaman.
Framhald af 3. kápusíðu.
árum. Eg fékk bréf frá manni í
Miðvesturríkjunum, sem hafði les-
ið einhverja bók mína. Hann
móðgaði mig þegar í upphafi
bréfsins með því að segja, að hann
viss að ég læsi ekki þetta bréf.
Einkaritari minn mundi gera það,
en ekki ég. Það sem eftir var af
bréfinu var svo stílað til ritara
mins og sló hann henni nokkra
gullhamra i lokin, sagðist vona,
að hún væri ung og rauðhærð og
lagleg.
Ég hef aldrei haft einkaritara,
en ég bjó mér hann til á stundinni.
Eg skrifaði dónanum og lézt vera
einkaritari minn. Ég sagði honum,
að hann hlyti að vera skyggn, því
að ég væri einmitt ung og rauð-
hærð og fólk segði að ég væri ekki
ósnotur. Eg lét í ljós aðdáun mina
á glöggskyggni hans og kvaðst
hafa hugboð um, að hann væri
einmitt maður, sem mér þætti
gaman að kynnast. Ef hann kæmi
til New York, væri mér sönn á-
nægja að hitta hann. Eg gæti
fengið frí einn dag og svo gætum
við borðað saman og haft
skemmtilegt kvöld saman. Eg
skrifaði „Eunice Wagstaff" und-
ir bréfið og setti það í póst.
Tveim dögum síðar var hringt
til mín frá simstöðinni og spurt
hvort nokkur Eunice Wagstaff
væri hjá mér. Eg minntist bréfs-
ins og tók skeytið upp í símann.
Það hljóðaði svo: „Legg af stað
til New York í kvöld. Hittið mig
á morgun á Hótel B — “
Það hvarflaði að mér að stöðva
manninn — en svo komst ég að
þeirri niðurstöðu, að hann hefði
unnið til refsingar.
o
Roosevelt forseti ákvað eitt sinn
að prófa þá kenningu, sem margir
hafa haldið fram, að fólk gefi lít-
inn gaum að því, sem sagt er þeg-
ar það heilsast eða er kynnt fyrir
öðrum í samkvæmum. Hann valdi
til prófsins stóra veizlu í Hvíta
húsinu, þar sem hann tók í hönd-
ina á fjölmörgu fólki. 1 hvert
skipti sem hann heilsaði gesti,
brosti hann hinu fræga bfosi sínu
og muldraði um leið: „Ég myrti
ömmu mina í morgun". Aðeins
einn gestur heyrði það sém hann
sagði. Það var bankastjóri, og
það stóð ekki á svari hjá honum:
„Hún átti ekki betra skilið!"
Þýðendur (auk ritstjórans): Öskar Bergsson (Ó.B.)
og Ólafur Sveinsson (Ö.Sv.).
tTRVAL, — tímarit. — Kemur út 8 sinnum á ári.
Ritstjóri: Gísli Ólafsson, Leifsgötu 16, Reykjavík. Sími 4954.
Afgreiðsla Tjarnargötu 4. Áskriftarverð 70 krónur.
'O'tgefandi: Steindórsprent h.f.