Úrval - 01.04.1954, Page 35
Austurlanclabúar eru ótrúleg:a leiknir
í að reikna á fingTunum, sem
án efa eru —
Elzía reikningsvél í heimi.
Grein úr „Vár Tid“,
eftir Arne Engelbert.
't'VRÖPUMENN sem ferðast
um Austurlönd fá oft tæki-
færi til að kynnast því hve
furðulega leiknir Austurlanda-
búar eru í reikningi, þó að þeir
.kunni hvorki að lesa né skrifa.
Það er hægt að verzla við þá,
þjarka um verð og kaupa ótal
hluti hvern með sínu verði •—•
og áður en Evrópumaðurinn er
búinn að átta sig hefur kaup-
maðurinn reiknað út heildar-
verðið. Ef hann er heiðarlegur,
þá kemur naumast fyrir að hann
reikni skakt.
Lestur og skrift eru þessum
mönnum óþekkt hugtök, en í
reikningi stenzt þeim enginn
hvítur maður snúning. Þeir nota
elztu, einföldustu og öruggustu
reikningsvél sem til er — fing-
nrna á höndum sér. Það er unun
að horfa á þá margfalda, deila
og leggja saman, sjá hvernig
fingurgómarnir leika hver á
móti öðrum, snertast og víxlast
sitt á hvað — og eftir ör-
skamma stund er svarið kom-
ið! Aðferðin er svo einföld, að
maður gæti óskað sér þess, að
börnin manns lærðu hana í
barnaskólanum. Það yrði án
efa skemmtileg tilbreyting í
reikningskennslunni og til létt-
is mörgurn þeim, sem eiga erf-
itt með að fylgjast með í þessu
erfiða fagi. Eins og kunnugt er
hafa börn yndi af allskonar
fingraleikjum, og þessi reikn-
ingslist er í rauninni ekki annað
en fingraleikur.
Aðferðirnar eru raunar marg-
ar. Nokkrar byggjast á tylftar-
kerfinu, þannig að allir fing-
ur útréttir tákna 10, annar
hnefinn krepptur táknar 11 og
báðir hnefar krepptir tákna 12.
Með þessari aðferð varð til sex
tuga skipting Babýloníumanna
til forna (5X12=60), en þá
skiptingu notum við enn í dag:
klukkutímanum skiptum við í
60 mínútur og mínútunni í 60
sekúndur.
En við fingrareikning er
tugakerfið auðveldast og
skemmtilegast. Til þess að gefa
lesendunum svolitla nasasjón af
þessari skemmtilegu reiknings-
list, skulu hér teknir þrír flokk-
ar innan margföldunartöflunn-
ar. Hver flokkur hefur sína að-