Mosfellingur - 11.05.2023, Blaðsíða 26
- Mosfellingurinn Anita Pálsdóttir26
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Downs-heilkenni er litningafrávik
sem veldur þroskahömlun. Um
það bil eitt af hverjum 800 börn-
um fæðast með heilkennið sem þekkt er
um allan heim, þvert á heimssvæði og
kynþætti.
Anita Pálsdóttir eignaðist barn með
Downs-heilkenni árið 2006. Hún segir
að það hafi verið henni mikið áfall þegar
hún fékk fréttirnar komin sjö mánuði á
leið. Hún fór strax að syrgja barnið sitt
sem hún hafði ætlað allt önnur tækifæri
í lífinu.
Anita er fædd á Akureyri 25. desember
1967. Foreldrar hennar eru Bjarney Stein-
unn Einarsdóttir og Páll Helgason tónlistar-
maður. Anita á tvo bræður, Helga f. 1963 og
Einar f. 1966.
Lékum okkur við Varmána
„Ég ólst upp í Mosfellsbæ frá fjögurra ára
aldri en fyrstu árin mín bjuggum við fjöl-
skyldan á Akureyri. Við fluttum í vinnuskúr
við Álafoss og leiksvæði okkar krakkanna
var á Álafosssvæðinu, í gömlu verksmiðj-
unni og við Varmána.
Ég man þegar ég og bræður mínir ásamt
einum vini vorum að leika okkur á heima-
gerðum plönkum úti í tjörninni Tító sem er
á bak við Þrúðvang. Yngri bróðir minn sem
var í þykkri úlpu datt útbyrðis í tjörnina og
bróðir minn og vinur okkar náðu honum
upp úr með erfiðismunum, þetta situr fast
í mér,“ segir Anita alvarleg á svip.
„Við færðum okkur svo um set fjölskyld-
an, í Byggðarholtið.“
Þar með lauk mínum ferli
„Ég gekk mína grunnskólagöngu í Var-
márskóla og fannst gaman í skólanum og
mér gekk vel að læra. Ég byrjaði sjö ára að
læra á píanó í Tónlistarskólanum í Brúar-
landi og þar var ég í eitt ár. Ég byrjaði svo að
læra á trompet hjá Lárusi Sveinssyni og var
í Skólahljómsveit Mosfellsbæjar í átta ár.
Á unglingsárunum langaði mig að breyta
til og fara að læra á annað hljóðfæri en
foreldrar mínir tóku það ekki í
mál og Lárus ekki heldur svo ég
gerði mér lítið fyrir og pakkaði
saman dótinu mínu og þar með
lauk mínum trompetferli.“
Þetta voru skemmtileg ár
„Við vinkonurnar byrjuðum ungar að
stunda handbolta en við spiluðum einnig
fótbolta á sumrin. Þegar ég fermdist þá fékk
ég hest í fermingargjöf frá foreldrum mín-
um og fékk í framhaldi mikinn
áhuga á hestamennsku, þetta
voru skemmtileg ár.
Eftir að grunnskóla lauk þá
þurftum við krakkarnir að sækja framhalds-
skóla til Reykjavíkur. Ég fór með rútunni
alla daga í Verslunarskólann, tók tvö ár þar
en kláraði stúdentinn frá Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti. Ég fór síðar í Tækniskóla
Íslands í rekstrarfræði og útskrifast þaðan
2005.
Á sumrin starfaði ég í trefladeildinni á
Álafossi, Búnaðarbankanum, skólagörð-
unum og svo starfaði ég lengi hjá Ragnari
Björnssyni á Western Fried en það var aðal
kjúklingastaðurinn í Mosfellssveit, ég á
góðar minningar þaðan.
Ég ólst upp í dásamlegri sveitasælu sem
nú er orðin að stórum bæ sem vex á ofur-
hraða, hér hefur mikið breyst,“ segir Anita
og brosir.
Syngja fyrir eldri borgara
Eftir framhaldsskóla hóf Anita störf hjá
Bílasölu Jöfurs, fór þaðan í ritarastarf hjá
Sakadómi Reykjavíkur og svo til Alþýðu-
sambands Íslands. Árið 1999 hóf Anita
störf sem ritari í Varmárskóla en 2003 færði
hún sig yfir á skrifstofu Borgarholtsskóla.
Hjá Vátryggingafélagi Íslands starfaði hún
í nokkur ár en í dag starfar hún sem mót-
tökuritari hjá Hjartavernd í Kópavogi.
Anita á þrjú börn, Róbert f. 1992, Rakel
Dóru f. 1998 og Katrínu f. 2006 og hundinn
Pablo Picasso. En hver skyldu vera áhuga-
mál Anitu? „Golfið og tónlistin eru mín
áhugamál í dag og svo hjóla ég þegar tími
gefst til, öll útivera finnst mér skemmtileg,
náttúran, fólkið og dýrin.
Ég hef sungið lengi með Rokkkór Íslands
og er líka í sönghóp sem kallar sig Söng-
elskur. Við höfum verið að syngja mikið
fyrir eldri borgara öll gömlu góðu lögin sem
þau muna eftir, mjög gefandi og gaman.“
Var nauðbeygð til að fara
Anita var 39 ára er hún gekk með sitt
þriðja barn, á meðgöngunni kom í ljós að
barnið hafði 3 eintök af litningi númer 21,
Downs heilkenni.
„Meðgangan gekk vel og á 20. viku fór ég
í sónar eins og ég hafði gert með hin börnin
mín tvö. Í sónar virtist allt vera í lagi með
litlu skvísuna sem var á leið í heiminn
nema það fannst vökvi í brjóstholi sem
þurfti að athuga. Eina sem hægt var að
gera var að fara í ástungu, því annaðhvort
var þetta sýking í fóstrinu eða litningagalli
svo ég var eiginlega nauðbeygð að fara í
þessa stungu sem ég og gerði, sýking hefði
þýtt aðgerð í Svíþjóð. Ég var búin að fara í
hnakkaþykktarmælingu og blóðprufu til að
athuga með Downs heilkenni en það kom
allt vel út.“
Byrjaði strax að syrgja
„Það kom svo á daginn eftir nánari
skoðanir að okkar litla snót var með þriðja
litning í öllum sínum frumum sem er kallað
Downs heilkenni. Þessar fréttir fékk ég þeg-
ar tveir mánuðir voru eftir af meðgöngunni.
Ég fékk sjokk, grét og byrjaði strax að syrgja
litla barnið mitt. Ég hugsaði um hvernig ég
gæti verið móðir fatlaðs barns, ég kunni
ekkert í þeim efnum. Það tók mig um tvær
vikur að syrgja, ég var að syrgja stúlku sem
ég hafði ætlað önnur tækifæri í lífinu.
Ég fór í það að læra ýmislegt um Downs
heilkennið, hafði samband við foreldra og
fékk bara góð viðbrögð. Downs börn geta
lifað sómasamlegu lífi alveg eins og við hin
og þau geta flest en eru með þroskafrávik,
það sem háir þeim mest er samfélagið sem
hleypir þeim ekki inn.“
Vildum að þau mynduðu sér skoðun
„Við ákváðum að segja systkinunum
ekki frá þessum fréttum, við vildum að þau
myndu sjá systur sína áður en þau mynd-
uðu sér skoðun um hana. Katrín fæddist
31. desember 2006, yndisleg mannvera.
Viku áður en hún kom í heiminn greindist
hún með hjartagalla, þannig að við fór-
um með hana tveggja mánaða til Boston
í hjartaaðgerð sem gekk vel. Ári eftir að-
gerðina fór hún að fá flogaköst og svo hefur
hún greinst með ýmiss konar önnur frávik,
einhverfu, hegðunarröskun og ADHD svo
eitthvað sé nefnt.“
Þetta er ótrúlega sárt
„Það er stundum þannig að þegar fólk
eignast fatlað barn þá verður það foreldrum
ofviða. Hegðun Katrínar minnar var orðin
þannig að það var ekki lengur ráðið við, ég
játaði mig sigraða og kallaði eftir hjálp, hún
er í dag í vistun á Klettabæ og þarf stuðning
tveggja aðila allan sólarhringinn.
Að þurfa að ganga í gegnum það að geta
ekki hugsað um barnið sitt er alveg ótrúlega
sárt því hún er mér alveg jafn kær og hin
börnin mín. Við eigum samt okkar góðu
gleðistundir saman sem eru gulls ígildi,“
segir Anita að lokum er við kveðjumst.
Anita ásamt börnum sínum, Róberti, Rakel Dóru,
Katrínu og hundinum Pablo Picasso.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Ég játa mig sigraða
Anita Pálsdóttir segir ótrúlega sárt að geta ekki hugsað um barnið sitt
Ég ólst upp í dásamlegri
sveitasælu sem nú er orðin
að stórum bæ sem vex á ofurhraða.
í golfi á spáni
tveggja ára í hjólatúr
HIN HLIÐIN
Eitt atriði um þig sem fólk veit ekki
um? Ég spila á skeiðar.
Uppáhaldsverslun? Vero Moda eftir að
þeir lækkuðu allt um 10% hjá sér.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Virðingarleysi og hroki.
Hver er þín óvenjulegasta lífsreynsla?
Að eignast fatlað barn.
Hvaða matur freistar þín?
Grænmetisréttur með kjúklingi.
Besta ráð sem þú hefur nýtt þér?
Frá góðri vinkonu, að minna sjálfa mig á
daglega hvað ég get verið þakklát fyrir.
Draumabílinn? Jeep Wrangler Rubicon
4x4 svartur.
Hvað er það fyndnasta sem þú hefur
lent í? Þegar við vinkonurnar vorum að
fermast og fengum massíft hláturskast.