Mosfellingur - 11.05.2023, Blaðsíða 40
Leirvogstunga 27, 270 Mosfellsbæ, sími: 864 6600
Gólfefna lausnir
fyrir heimili
og fyrirtæki
www.bmarkan.is
Sendið okkur myndir af nýjum Mosfellingum ásamt
helstu upplýsingum á mosfellingur@mosfellingur.is
GERÐ AÐALUPPDRÁTTA
VERKEFNA– OG
BYGGINGASTJÓRNUN
HAGKVÆMISATHUGANIR OG
ÁÆTLUNAGERÐ
UMSJÓN FRAMKVÆMDA
ÁSTANDSKOÐUN FASTEIGNA
WWW.TOGT.IS
togt@togt.is
sími8933022
GERÐ AÐALUPPDRÁTTA
VERKEFNA– OG
BYGGINGASTJÓRNUN
HAGKVÆMISATHUGANIR OG
ÁÆTLUNAGERÐ
UMSJÓN FRAMKVÆMDA
ÁSTANDSKOÐUN FASTEIGNA
WWW.TOGT.IS
togt@togt.is
sími8933022
GERÐ AÐALUPPDRÁTTA
VERKEFNA– OG
BYGGINGASTJÓRNUN
HAGKVÆMISATHUGANIR OG
ÁÆTLUNAGERÐ
UMSJÓN FRAMKVÆMDA
ÁSTANDSKOÐUN FASTEIGNA
WWW.TOGT.IS
togt@togt.is
sími 893 3022
Þverholti 3 - Sími: 566-6612
FÓTAAÐGERÐASTOFA
MOSFELLSBÆJAR
Þjónusta við mosfellinga
- Aðsendar greinar40
Smiðjuvegi 60 (rauð gata) Kópavogi - Sími 557 2540
Miðvikudaginn 19. apríl lögðu 24 starfsmenn
Höfðabergs land undir fót og skelltu sér í náms-
ferð til Brighton.
Ýmis námskeið voru í boði og gátu starfs-
menn valið sér námskeið eftir áhuga. Stór hópur
starfsmanna fór í skógarferð þar sem unnið var
að mörgum skemmtilegum verkefnum sem við
sjáum fyrir okkur að starfsmenn geti nýtt sér í
vettvangsferðum með börnum.
Aðrir fóru í sveitaferð þar sem áhersla var lögð
á nám og þroska barna. Námskeiðið var byggt
upp á fyrirlestrum um fjölmenningu, lífsleikni
og vellíðan í starfi með börnum.
Nokkrir úr stjórnendateymi leikskólans fóru
í tvær skólaheimsóknir til þess að kynna sér
kennsluhætti og aðbúnað.
Allir starfsmenn fóru á Numicon stærðfræði-
námskeið þar sem við kynntumst hugmynda-
fræðinni og unnum skemmtileg stærðfræði-
tengd verkefni. Þetta mun nýtast okkur vel í
starfinu á Höfðabergi þar sem mikil áhersla er
lögð á stærðfræði í víðum skilningi, þ.á m. tölur
og talnagildi.
Á öllum námskeiðunum byggðust verkefnin
á mikilli samvinnu og liðsheild. Gleðin var í
fyrirrúmi og skemmtu starfsmenn sér saman
við leik og störf.
Að sögn Tinnu og Maríu, leikskólastýra
Höfðabergs, heppnaðist ferðin vel í alla staði og
gerði góðan starfsanda enn betri.
„Það verður spennandi að nýta sér nýja þekk-
ingu í starfinu á Höfðabergi.“
Starfsfólk leikskólans Höfðabergs lagði land undir fót
Námsferð til Brighton
hópurinn frá höfðabergi
Þetta er setning sem ég nota í kennslu
hjá mér, oftast virða þau það og við töl-
um um hversu mikilvægt það er að geta
hlustað á hvert annað og hvílt símana
á meðan.
Það þarf ekki að segja það hér að
„síminn getur eitrað sálina“ við vitum
það öll. Við vitum að þetta tæki hefur
áhrif á kvíða, einmanaleika og hefur
neikvæð áhrif á sjálfsmynd fólks, ekki bara barna
og unglinga heldur einnig fullorðins fólk.
Nemendur okkar í FMOS eru hluti þeirrar
kynslóðar sem hefur alist upp við símanotkun
og það að taka upp síma og hringja til að panta
tíma í klippingu eða pizzu, hvað þá að mæta
á staðinn til að sækja um vinnu er mjög mikið
vandamál hjá mörgum og það er áhyggjuefni.
Við viljum að nemendur okkar tali saman í
frímínútum og höfum við því aukið afþreyingu
fyrir þá. Hvað höfum við gert? Við keyptum
körfuboltaspjald, körfubolta og fótbolta
í skotið okkar, við límdum „gamaldags“
borðspil á nokkur borð í anddyrinu,
taflborð, badmintonspaða og borð-
tennisborð.
Er þetta að bera árangur? Já, heldur
betur! Það er mjög góð tilfinning þegar
gengið er um skólann að sjá borðin
þéttsetin af nemendum sem eru búnir
að búa til alls kyns nýjar reglur í lúdó og slöngu-
spili, hugsandi nemendur við taflborðin, mikla
keppni í borðtennis, keppni í að halda flugunni
á lofti í badminton og aðrir að fá sér súrefni og
spila körfubolta. Þetta gerir það að verkum að
skólabragurinn verður annar og maður heyrir
hlátur og samtöl í staðinn fyrir þögnina.
Við fullorðna fólkið þurfum að vera fyrir-
myndir og auka afþreyingu sem hvetur til sam-
skipta og á meðan er síminn í hvíld.
Halla Heimis. íþrótta- og lýðheilsufræðingur hjá FMOS
Mannleg samskipti
fram yfir símana