Mosfellingur - 11.05.2023, Blaðsíða 30
- GM snillingar 65+18 www.mosfellingur.is30
Afturelding fékk endurnýjun á viðurkenn-
ingu félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ
á aðalfundi þess í Hlégarði í Mosfellsbæ
fimmtudaginn 27. apríl. Allar 11 deildir
félagsins fengu viðurkenninguna auk að-
alstjórnar.
Það var Andri Stefánsson framkvæmda-
stjóri ÍSÍ sem sá um að afhenda viðurkenn-
ingarnar fyrir hönd ÍSÍ. „Það er mjög mikil-
vægt fyrir félagið að hafa alla ferla uppfærða
í síbreytilegu umhverfi sem íþróttastarf er
í. Það er dýrmætt að geta leitað á einn stað
varðandi hin ýmsu mál sem upp koma í
íþróttastarfinu.“
Handbækurnar sem styðja við starfið má
finna á heimasíðu Aftureldingar.
8. flokkur drengja Aftureldingar í körfu-
bolta lék í lokamóti Íslandsmótsins nú um
helgina í Garðabæ og endaði liðið í þriðja
sæti sem er besti árangur í sögu körfuknatt-
leiksdeildarinnar.
Íslandsmótið í 8. flokki í körfubolta er
fyrir leikmenn í 8. bekk og yngri. Leikið er í
5 fjölliðamótum yfir veturinn þar sem eru 5
lið í hverjum riðli, A-riðill er sambærilegur
við efstu deild og lið fara milli riðla yfir vet-
urinn þannig að bestu liðin enda að lokum
í A-riðli.
Lið Aftureldingar vann sig upp í A-riðil
í vetur og keppti í honum um helgina á
síðasta fjölliðamóti vetrarins.
Allir leggja sitt af mörkum
Lokastaða mótsins var að Stjarnan varð
Íslandsmeistari, Fjölnir í öðru sæti og Aft-
urelding í því þriðja.
Leikmenn helgarinnar voru Ari Kristinn
Jóhannesson 2 stig, Björgvin Már Jónsson
36 stig, Dilanas Skertys 20 stig, Halldór Ingi
Kristjánsson 45 stig, Kristófer Óli Kjartans-
son 13 stig, Róbert Maron Róbertsson 2
stig, Sigurbjörn Gíslason 35 stig, Sigurður
Máni Brynjarsson 10 stig, Sölvi Beck 18
stig og Sölvi Már Lárusson 7 stig. Þjálfari
liðsins er Sævaldur Bjarnason og honum til
aðstoðar Hlynur Logi Ingólfsson.
Hvað er verið að gefa þeim að borða?
Það verður spennandi að fylgjast með
liðinu sem er gríðarlega hávaxið, svo hávax-
ið að í körfuboltaheiminum er spurt hvað
sé verið að gefa ungu fólki í Mosfellsbæ að
borða. En það er ekki bara hæðin sem er að
skila árangrinum, það eru allir að leggja sitt
af mörkum í liði Aftureldingar.
Mörg liðanna byggja á einum sterkum
leikmanni sem skorar meirihluta stig-
anna, en það á ekki við um Aftureldingu.
Stigaskor er þó ekki eini mælikvarðinn því
fráköst, stoðsendingar, blokka boltann og
verjast sem ein heild er allt mikilvægur
hluti af sigri.
Það er því greinilegt að framtíðin er björt
í körfuboltastarfinu í Aftureldingu.
8. flokkur drengja í körfubolta á lokamóti Íslandsmótsins
Eitt af þremur bestu
liðum á Íslandi í dag
sigurreifir í mótslok
Allar 11 deildir Aftureldingar fengu viðurkenningu
Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
deildirnar taka
við viðurkenningu