Mosfellingur - 11.05.2023, Blaðsíða 12

Mosfellingur - 11.05.2023, Blaðsíða 12
 - Frítt, frjáls og óháð bæjarblað12 Mosfellingurinn Bjarki Þór Sigurjóns- son er í útskriftarhóp Tækniskólans í grafískri miðlun sem heldur viða- mikla útskriftarsýningu dagana 12.- 18. maí. Á sýningunni gefur að líta fjöl- breytt verk eftir 19 nemendur, allt frá ljósmyndum upp í innbundnar bækur og prentgripi, þar á meðal ljósmyndabækur, auglýsingar, umbúðir, bæklinga og tíma- ritið Ask, sem er samstarfsverk- efni nema í grafískri miðlun. „Þetta er búið að vera rosalega skemmtilegur tími og ég mæli heilshugar með náminu, það er yfirgripsmikið og fá nemendur fjölbreytta kennslu í grafískri miðl- un, stofnun og rekstri fyrirtækis og fleira. Ég náði að tengja Mosfellsbæ aðeins inn í lokaverkefnið mitt, en við áttum að setja upp ráðstefnu og hafði ég Mosfellsbæ sem einn af styrktaraðilunum,“ segir Bjarki Þór hlæjandi. Sýningin er til húsa í gamla sjómannaskólanum við Há- teigsveg 35-39 og er opin kl. 15-18. Öllu til tjaldað á útskriftasýningu • Grafísk miðlun Bjarki Þór tekur þátt í viðamikilli sýningu TIL LEIGU Mjög gott, nýtt iðnaðarbil. Um 275 fm - aðalsalur + milliloft. Stór innkeyrsluhurð tæpir 5m að hæð. Stór salur með góðri lofthæð, milliloft innst í bilinu. Salerni og sturta. Eldhúsinn- rétting verður sett upp í samráði við leigjanda. Epoxy á gólfum.Góð niðurföll og aðgangur að rafmagni og vatni. Steypt bílaplan fyrir framan hús. Mjög snyrtilegt, nýtt og gott iðnaðarbil. Leiguverð á bilinu 2.500-3.000 kr. per fm. Fer eftir nánara samkomulagi, tímalengd og tryggingum. Græn sorptunnuflokkun er hafin í kirkjugörðum Lágafellssóknar Við Lágafell, eldri og nýja Mosfells- kirkjugarð var nýlega sett upp sorptunnu- skýli með flokkunartunnum. Nú er möguleiki fyrir aðstandendur leiða í kirkjugörðum og fyrir starfsemi kirkjunnar að flokka í eftirfarandi: Lífrænan garðaúrgang, blandað/almennt, pappír/pappa og plast. Fólk er vinsamlegast beðið um að fjarlægja sjálft með því að fara með heim eða í Sorpu ef um annan sorpúrgang er að ræða t.d. málma, kerti ofl. Lágafellssókn á grænni leið Notkunin á nýja frískápnum í Mosfellsbæ fer vel af stað. „Mosfellingum ber að þakka fyrir frábær viðbrögð því nánast á hverjum degi er matur settur í skápinn sem annars væri hent og þannig minkum við matarsó- un,“ segir Gerður Pálsdóttir einn umsjón- armanna. Unnið er að því að fá fyrirtæki og veit- ingastaði hér í bæ í samstarf. Meðlimir í Facebook grúbbunni eru orðnir rúmlega 700. Skápurinn er staðsettur bak við Kjarna í porti þar sem „gamli“ Bónus var með vöruafhendingu Í Facebook-hópnum er hægt að sjá nán- ari leiðbeininar um staðsetningu en verið er að skoða hvort hægt að að útbúa skilti fyrir ofan skápinn. Hér eru helstu leiðbeiningar varðandi noktun skápsins: • Allir geta nýtt matinn í skápunum ókeypis. • Neysla matarins er á eigin ábyrgð. • Setjið aðeins neysluhæfan mat í skáp- ana, mat sem þið mynduð borða sjálf. • Gangið vel um skápana og kringum þá. • Takið aðeins mat til eigin þarfa munið að fleiri en þið þurfa að fá að borða. Deilum og tökum tillit til annarra. • Gott er að merkja heimatilbúna rétti með dagsetningu og innihalds lýsingu. • Athugið „best fyrir” dagsetningar treystið eigin lyktar- og bragðskyni. • Helst ekki hrátt kjöt, fiskur eða eggja- vörur. • Engar opnar niðursuðudósir og krukkur. • Best ef mikið er af brauði að pakka vel inn hverju fyrir sig. • Ekkert áfengi né áfenga drykki . • Gott að mynda og senda skilaboð á FB hópinn þegar bætt er í skápana. Íbúar skiptast á mat • Góð leið til að minnka matarsóun Frískápurinn í Mosó fær góðar viðtökur

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.